Lög og regla

Sextíu úrum stolið í nótt
Brotist var inn hjá úrsmið við Laugaveginn í nótt og þaðan stolið að minnsta kosti sextíu úrum. Þjófurinn braut rúðu í útihurð og gler í sýningarskápum og lét greipar sópa. Hann var eldsnöggur á vettvangi og komst undan með þýfið og er enn ófundinn. Andvirði þýfisins nemur hundruðum þúsunda króna.
Fleygði hassinu fram af svölum
Fjögur hundruð grömm af hassi fundust í húsleit á heimili tuttugu og fimm ára manns í Reykjavík seinni partinn á þriðjudag. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu.

Nígeríumaðurinn farinn úr landi
Þrítugur Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni er farinn úr landi. Maðurinn var tekinn í kjölfar þess að þrítugur Ungverji var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis í áttatíu hylkjum.

Viðurkennir fyrningu kærunnar
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum viðurkennir að kæra sem kona lagði fram á hendur fyrrverandi eiginmanni sínum fyrir líkamsárás var orðin fyrnd þegar maðurinn var ákærður.
Fór strax úr landi
Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við innflutning á tæpu kílói kókaíni fyrir tveimur vikum hefur verið látinn laus. Sá sem flutti kókaíni inn er tæplega þrítugur Ungverji en hann situr enn í gæsluvarðhaldi.

Sextán ára stúlka undir stýri
Lögreglan í Keflavík stöðvaði sextán ára stúlku á bíl í miðbænum í gærkvöldi og var hún að sjálfsögðu réttindalaus vegna aldurs. Í ljós kom að hún hafði fengið bílinn lánaðan upp á að vinkona hennar, sem hefur réttindi, æki bílnum. Hún ók hins vegar sjálf en sú með réttindin fékk að sitja í sem farþegi.
Eþíópímaður dæmdur í fangelsi
Eþíópíumaður með sænskt ríkisfang var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir aðstoða par frá Eþíópíu við að komast ólöglega inn í landið. Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð skömmu fyrir áramót ásamt fólkinu sem kom hingað frá Osló, en ferðinni var heitið áfram vestur til Bandaríkjanna.
Par með fíkniefni
Par var handtekið grunað um að fíkniefnamisferli. Það var lögreglan í Keflavík sem handtók parið. Fólkið hafði ekið í bíl eftir Reykjanesbrautinni, misst stjórn á honum og ekið út af.
Ölvaður á veghefli
Lögreglan á Egilsstöðum var á Fljótsdalsheiði við framkvæmdasvæði Kárahnjúka í gærmorgun þegar hún stöðvaði veghefilsstjóra sem var þar við vinnu grunaðan um ölvun í starfi.

Börkur í sjö og hálfs árs fangelsi
Börkur Birgisson, 25 ára Hafnfirðingur, var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir tilraun til manndráps og fjölda líkamsárása.

Á sér langa afbrotasögu
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 25 ára Hafnfirðing, Börk Birgisson í sjö og hálfs árs fangelsi, m.a. fyrir að slá annan mann ítrekað í höfuðið með öxi. Hann á sér langa afbrotasögu.

Þungur dómur fyrir árás með öxi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 25 ára Hafnfirðing, Börk Birgisson, í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps og alvarlegar og hættulegar líkamsárásir. Hann var meðal annars ákærður fyrir að hafa slegið mann í andlitið með flösku sem brotnaði og barið hann síðan með hnefum.
Festi bíl sinn á Fróðárheiði
Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði.
Enn að heiman
Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar.
Ákvörðun sýslumanns kærð
Kona sem ásakar mann um stuld á þremur teikningum Muggs hefur kært ákvörðun sýslumannsins á Patreksfirði, um að fella málið niður, til ríkissaksóknara.

Skiptastjóri FF til Lúxemborg
Sigurður Gizurarson, skiptastjóri í gjaldþrotamáli Frjálsrar fjölmiðlunar, ætlar sjálfur að leita upplýsinga í Lúxemborg um dótturfyrirtæki Frjálsrar fjölmiðlunar og hugsanlegar eigur þeirra þar.

Rúmlega 100 manns rýmdu hús sín
Lokið er rýmingu húsa sem ákveðnar hafa verið á Vestfjörðum. Alls hafa 103 íbúar í 37 húsum þurft að yfirgefa heimili sín í dag vegna snjóflóðahættu. 49 á Patreksfirði, 23 á Ísafirði, Hnífsdal og í dreifbýli Ísafjarðarbæjar og 31 á Bolungarvík og tveimur bæjum þar við. Almannavarnir munu fylgjast grannt með þróun mála í nótt.
Sporin komu upp um þjófana
Þrír menn voru handteknir undir morgun eftir að hafa brotist inn á skrifstofur Borgarskipulags og stolið þaðan tölvubúnaði. Lögregla rakti spor þeirra frá innbrotsstaðnum að heimili eins þeirra þar sem þeir voru allir gripnir og þýfið fannst.

Yfir hundrað íbúa rýmdu hús sín
Fimmtíu íbúar úr fimmtán húsum við Urðarstíg, Mýrar og Hóla á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu og leituðu íbúar til ættingja og vina í bænum. Í Bolungarvík voru sjö hús rýmd auk eins sveitabæjar og fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarðarbæ.

Rifbrotinn og allur lurkum laminn
Nói Marteinsson, bifreiðastjóri á Tálknafirði, var hætt kominn í gær þegar flutningabíllinn sem hann ók fór út af veginum í blindbyl og niður 150-200 snarbratta hlíð. Bíllinn er gjörónýtur. Nói rifbrotnaði og er lurkum laminn eftir að hafa barist í bílhúsinu niður í árfarveg, þar sem bíllinn stöðvaðist. </font /></b />
Bíldekk skall á rútu
"Það sluppu allir ómeiddir því dekkið lenti sem betur fer bara utan á rútunni en fór ekki inn í bílinn, það hefði getað kostað mannslíf," segir Sveinn Sigurbjarnarson eigandi rútu sem varð fyrir bíldekki sem losnaði af tengivagni sem var að koma úr gagnstæðri átt í Fagradal í Suður-Múlasýslu á laugardag.
Bókhaldið ófært
Jón H. Snorrason segir fyrst og fremst stjórnendur hjá Frjálsri fjölmiðlun og öðrum félögum tengdum fyrirtækinu vera til rannsóknar hjá embættinu.
Tollstjóri greiði bætur
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Tollstjórann í Reykjavík til að greiða Kolbrúnu Björndsdóttur grasalækni 200 þúsund krónur í miskabætur fyrir að leggja hald á jurtir sem hún hafði pantað frá Bretlandi árið 2001.

Trúa börnunum en vantar sannanir
Saksóknari fellir niður rúmlega helming mála vegna meints kynferðisbrots á börnum þar sem ekki þykir líklegt að ákæra leiði til sakfellingar. Oftast vantar frekari sannanir. </font /></b />

Sprengdu þakskyggni
Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti.
Miðast við lög og dómafordæmi
Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að saksóknarar embættisins fari yfir rannsóknargögn hvers máls og það þurfi að vera líklegt eða verulega líklegt að ákæra leiði til sakfellingar til að málið leiði til ákæru.
Snjóblásari utan í bíl
Árekstur varð á Seyðisfirði um tvöleytið í gær þegar snjóblásari fór utan í fólksbíl. Snjóblásarinn var að aka inn á veg rétt fyrir utan bæinn og sá ekki bíl sem kom þar aðvífandi.

Frjáls fjölmiðlun til rannsóknar
Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir fjölda mála vera til rannsóknar sem tengist gjaldþroti Frjálsrar fjölmiðlunar, fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess.

Kertalogi orsök brunans
Bruni á Akureyri í fyrrinótt orsakaðist af kerti sem brann niður án þess að íbúinn yrði þess var fyrr en of seint. Kertið brann í gegnum borð sem það stóð á. Nágranni sýndi mikið snarræði og bjargaði stúlkunni sem þar bjó út undir bert loft en hún var að reyna að skríða út úr reykjarkófinu af sjálfsdáðum.

Urðum að leita skjóls
Fjórir vélsleðamenn biðu í neyðarskýli í Héðinsfirði í fimm klukkutíma án þess að vita hvað hefði orðið um fimmta manninn sem var með þeim í för á laugardag. "Ég reyndi að fara á eftir honum en komst ekki neitt," segir Ragnar Már Hansson sem beið ásamt þremur öðrum eftir hjálp í neyðarskýlinu.