
Erlendar

Gullboltinn kynntur í morgun
Angela Merkel kanslari Þýskalands og Franz Beckenbauer, forseti framkvæmdanefndar, kynntu boltann sem notaður verður í úrslitaleiknum á HM.

Frakkar og Ítalar leika til úrslita á HM
Zinedine Zidane skoraði sigurmark Frakka gegn Portúgölum úr vítaspyrnu á 33. mínútu undanúrslitaviðureignar liðanna í Munchen í dag. Leikurinn var hinn fjörugasti á köflum, en eins og svo oft áður var það reynt og þaulskipulagt lið Frakka sem stóð uppi sem sigurvegari. Það verða því Frakkar og Ítalar sem leika til úrslita á HM í Berlín á sunnudaginn.

Frakkar leiða í hálfleik
Frakkar hafa yfir 1-0 gegn Portúgölum í leik liðanna í undanúrslitunum á HM. Zinedine Zidane skoraði mark Frakka úr vítaspyrnu eftir um 30 mínútna leik. Portúgalar hafa færst heldur í aukana eftir að þeir fengu á sig markið með Cristiano Ronaldo fremstan í flokki. Áhorfendur eru þó ekki jafn hrifnir af kappanum og baula á hann í hvert sinn sem hann fær boltann. Sigurvegarinn í kvöld mætir Ítölum í úrslitaleik mótsins.

Frakkar komnir yfir
Frakkar hafa náð forystu gegn Portúgölum í undanúrslitaleiknum á HM í Munchen. Ricardo Carvalho felldi Thierry Henry innan teigs og dæmd var vítaspyrna eftir rúmlega hálftíma leik. Spyrnuna tók gamla kempan Zinedine Zidane sem steig á punktinn og lét ekki vítabanann Ricardo hafa áhrif á sig og skoraði af öryggi.

Federer gerði andstæðing sinn orðlausan
Tenniskappinn Roger Federer er kominn í undanúrslitin á Wimbledon mótinu í tennis eftir að hann valtaði yfir Króatann Mario Ancic 6-4, 6-4 og 6-4. Federer þótti leika ótrúlega í dag og það virtist ekki hafa nein áhrif á hann að fresta þurfti leiknum um tíma vegna rigninga.

Fabio Aurelio til Liverpool
Liverpool hefur fengið til sín vinstri bakvörðinn Fabio Aurelio á frjálsri sölu frá spænska liðinu Valencia, en Aurelio þessi varð einmitt spænskur meistari undir stjórn Rafa Benitez þegar hann stýrði liðinu á sínum tíma. Þá hefur Liverpool einnig gert samning við tvítuga miðvörðinn Gabriel Paletta frá argentínska liðinu Atletico Banfield og fyrr í dag fékk Mark Gonzalez loks atvinnuleyfi hjá félaginu eftir að það keypti hann fyrir ári síðan.

West Ham kaupir Carlton Cole
Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur fest kaup á framherjanum Carlton Cole frá Englandsmeisturum Chelsea. Cole er 22 ára gamall og hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea, þrátt fyrir að leika á tíðum vel fyrir enska U-21 árs liðið. Hjá West Ham mun hann keppa við þá Dean Ashton, Teddy Sheringham, Bobby Zamora og Marlon Harewood um stöðu í framlínunni.

Figo og Ronaldo í byrjunarliði Portúgala
Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Frakka og Portúgala fyrir leik liðanna í undanúrslitunum á HM. Leikurinn hefst klukkan 19 og er í beinni útsendingu á Sýn. Þeir Luis Figo og Cristiano Ronaldo verða báðir í byrjunarliði Portúgala eftir að hafa vera tæpir vegna meiðsla. Frakkar mæta til leiks með óbreytt lið.

Dreymir um að vinna tvisvar í röð
Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgala, getur heldur betur skrifað nafn sitt í sögubækur ef hann gerir Portúgala að heimsmeisturum í knattspyrnu. Hann segir að takmark sitt með liðið fyrir HM í ár hafi verið að ná í átta liða úrslitin, en nú sé hver leikur eins og draumur sem verði að veruleika fyrir liðið.

Bolton og Arsenal sýna áhuga
Umboðsmaður Argentínumannsins Javier Saviola segir að Arsenal og Bolton í ensku úrvalsdeildinni hafi sýnt leikmanninum áhuga, sem og lið Pananthinaikos í Grikklandi. Saviola er samningsbundinn Barcelona, en umboðsmaður hans segir ekkert koma til greina fyrir leikmanninn nema að spila á Spáni eða Englandi.

Wigan hafnar tilboði West Ham í Chimbonda
Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan neitaði í dag fjögurra milljóna punda tilboði West Ham í franska landsliðsbakvörðinn Pascan Chimbonda. Tottenham hafði áður fengið tilboði upp á þrjár milljónir punda neitað og hafa forráðamenn Wigan neitað að selja hann fyrir minna en sex milljónir. Chimbonda fór fram á að verða seldur frá Wigan í vor og er ekki talinn eiga framtíð hjá félaginu í kjölfarið.

Chelsea klagar Real Madrid til FIFA
Nú fyrir stundu greindi fréttavefur BBC frá því að ensku meistararnir Chelsea væru búnir að senda FIFA kæru vegna meintra ólöglegra viðræðna spænska félagsins Real Madrid við hollenska kantmanninn Arjen Robben.

Gonzalez loksins kominn með atvinnuleyfi
Liverpool hefur loksins fengið atvinnuleyfi fyrir vængmanninn Mark Gonzalez frá Chile, einu ári eftir að félagið festi kaup á honum. Ekki tókst að fá atvinnuleyfi fyrir hann á sínum tíma, því landslið Chile þótti ekki standa nógu hátt á styrkleikalista FIFA. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, er í skýjunum yfir nýja leikmanninum.

Capello tekinn við Real Madrid
Þjálfarinn sterki Fabio Capello hefur tekið við þjálfun spænska stórliðsins Real Madrid. Þetta var staðfest á blaðamannafundi í Madrid í dag. Capello var áður hjá liði Juventus á Ítalíu þar sem hann gerði liðið að tvöföldum meisturum, en eins og flestir vita á ítalska félagið nú undir högg að sækja vegna spillingarmálsins stóra. Capello er öllum hnútum kunnugur á Bernabeu, þar sem hann stýrði Real til sigurs í spænsku deildinni þegar hann stýrði liðinu árið 1997.

Bowyer enn sektaður
Lee Bowyer, leikmaður West Ham og fyrrum leikmaður Newcastle, var í dag sektaður um 1600 pund fyrir þátt sinn í slagsmálunum frægu við Kieron Dyer í fyrra, en dómsmáli í kjölfar þessa er nú lokið. Þessi upphæð er aðeins skiptimynt í samanburði við sektina sem hann þurfti að greiða enska knattspyrnusambandinu á sínum tíma, en Bowyer hefur þurft að punga út hátt í 300 þúsund pundum í sektir.

Morientes komin til Valencia
Spænski framherjinn Fernando Morientes er genginn formlega í raðir Valencia fyrir um þrjár milljónir punda eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag. Morientes náði sér aldrei á strik í ensku úrvalsdeildinni og segist fagna nýjum kafla í lífi sínu.

Viss um að landa Fabregas
Ramon Calderon, nýkjörinn forseti Real Madrid, segist 70% viss um að geta landað miðjumanninum efnilega Cesc Fabregas frá Arsenal á næstunni. Calderon lýsti því yfir í kosningabaráttunni að hann ætlaði að koma pilti til heimalandsins á ný, en ljóst er að Arsenal verður tregt til að láta þennan frábæra knattspyrnumann renna sér úr greipum.

Bridgestone sér um alla hjólbarða árið 2008
Forráðamenn japanska dekkjaframleiðandans Bridgestone hafa undirritað samning sem tryggir að framleiðandinn skaffar öllum keppnisliðunum dekk á heimsmeistaramótinu árið 2008. Michelin hættir að skaffa dekk í formúlu eitt eftir yfirstandandi tímabil, en þar á bæ eru menn mjög ósáttir við starfshætti í íþróttinni og segja hana mismuna dekkjaframleiðendum.

Mjög stoltur af liði sínu
Jurgen Klinsmann var að vonum vonsvikinn eftir tapið fyrir Ítölum í kvöld, en hrósaði liði sínu í hástert fyrir góðan anda og baráttu á mótinu. Hann hrósaði ítalska liðinu fyrir frammistöðuna í kvöld og bætti við að fátt hefði komið sér á óvart, því hann hefði búist við gríðarlega erfiðri baráttu þar sem bæði lið hefðu fengið tækifæri til að gera út um leikinn.

Ítalar í úrslitin
Ítalar eru komnir í úrslitaleikinn á HM eftir dramatískan 2-0 sigur á heimamönnum Þjóðverjum í framlengdum leik í Dortmund í kvöld. Allt stefndi í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma og fyrri hálfleik framlengingar.

Framlengt í Dortmund
Staðan að loknum venjulegum leiktíma í leik Þjóðverja og Ítala er jöfn 0-0 og því þarf að grípa til framlengingar. Eins og reikna mátti með mætast stálin stinn þegar þessi lið eru annars vegar og ljóst að taugar leikmanna verða þandar á næstu mínútum.

Jafnt í hálfleik
Enn hefur ekki verið skorað mark í leik Þjóðverja og Ítala í undanúrslitum HM, en leikurinn fer fram í Dortmund. Ítalska liðið hefur verið öllu sterkara það sem af er leiknum en heimamenn hafa 45 mínútur til að finna svör við því.

Tvær breytingar á liði Þjóðverja
Jurgen Klinsmann hefur gert tvær breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Ítölum. Bastien Schweinsteiger og Torsten Frings detta út úr liðinu frá leiknum gegn Argentínu og í þeirra stað koma þeir Tim Borowski og Sebastien Kehl. Marco Materazzi er á ný í vörn Ítala eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.

Fabregas spenntur yfir áhuga Real Madrid
Umboðsmaður táningsins efnilega Cesc Fabregas hjá Arsenal, segist ekki geta neitað því að skjólstæðingur hans sé spenntur yfir miklum áhuga spænska stórliðsins Real Madrid á að fá hann í sínar raðir. Nýkjörinn forseti Real hefur lýst því yfir að hann ætli að krækja í stjörnuna ungu, en hann er með langtímasamning við Arsenal og það verður því að teljast nokkuð langsótt.

Ronaldo og Figo tæpir?
Nokkrar spurningar hafa vaknað um þáttöku þeirra Luis Figo og Cristiano Ronaldo í undanúrslitaleiknum við Frakka á morgun, því hvorugur þeirra æfði með liðinu í dag, heldur tóku þeir létta æfingu sitt í hvoru lagi í Munchen.

Boltinn grét undan mér
Luiz Felipe Scolari gerði létt grín að sjálfum sér sem leikmanni á blaðamannafundi í dag þegar hann talaði um að sjónarsviptir yrði af þeim Figo og Zidane þegar þeir leggðu skóna á hilluna á næstunni.

Verðum að gæta okkar á Portúgölunum
Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelse og franska landsliðinu, segir að hann og félagar hans verði að vera vel á verði í leiknum gegn Portúgölum í undanúrslitum HM á morgun. Hann segir Portúgalina vera þolinmóða og duglega að veiða mótherja sína í gildrur.

Líkleg byrjunarlið í kvöld
Leikur Þjóðverja og Ítala í undanúrslitunum á HM hefst klukkan 19 í kvöld og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Búið er að tilkynna líkleg byrjunarlið þjóðanna. Torsten Frings tekur út leikbann hjá Þjóðverjum eftir ólætin í leiknum við Argentínumenn. Michael Ballack og Miroslav Klose eru búnir að hrista af sér smávægileg meiðsli og eiga að vera klárir, en ólíklegt þykir að Alessandro Nesta verði klár hjá Ítölum vegna nárameiðsla sem hafa kostað hann síðustu tvo leiki.

Rossi semur til ársins 2010
Manchester United hefur framlengt samning ítalska framherjans Giuseppe Rossi til ársins 2010. Rossi er aðeins 19 ára gamall og þykir mikið efni. Hann kom nokkuð við sögu hjá liðinu á síðustu leiktíð og hefur Sir Alex Ferguson látið hafa eftir sér í samtali við sjónvarpsstöð félagsins að hann myndi treysta Rossi til að spila reglulega með aðalliðinu ef sú staða kæmi upp í nánustu framtíð.

Ætlaði að rjúka í Ronaldo
Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enski framherjinn Wayne Rooney hafi ætlað að storma inn í búningsherbergi portúgalska landsliðsins eftir leik þjóðanna um helgina, þar sem enskum þótti Ronaldo reyna að hvetja dómarann til að reka félaga sinn hjá Manchester United af velli.