Íþróttir
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Snorri skoraði tíu mörk Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tíu mörk, þar af sjö úr vítum, fyrir félag sitt, Minden, er það lagði Concordia Delitzsch, 38-26, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Minden er í fjórtánda sæti deildarinnar eftir leikinn. Sport 7.11.2005 10:06
Þórarinn til Keflavíkur Knattspyrnumaðurinn Þórarinn Kristjánsson mun að öllum líkindum skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Keflavík, í vikunni. Þórarinn hefur verið í viðræðum vð Grindavík og Keflavík síðustu vikur en Grindvíkingar hafa slitið viðræðunum þar sem þeir sáu sér ekki fært að mæta launakröfum Þórarins sem ku vera í hærri kantinum. Sport 7.11.2005 10:03
Afturelding sigraði í Eyjum Enn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í dag. Afturelding gerði góða ferð til Eyja og sigraði ÍBV 27-20 eftir að hafa verið með fimm marka forystu í hálfleik. Guðmundur Hrafnkelsson var maður leiksins og varði vel í marki Mosfellinga. Sport 6.11.2005 20:32
Ánægður þrátt fyrir tapið Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist stoltur af baráttu sinna manna á Old Trafford í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði sínum fyrsta leik í deildarkeppninni í háa herrans tíð. Hann vildi þó ekki gera of mikið úr möguleikum Manchester United í baráttunni um meistaratitilinn. Sport 6.11.2005 20:04
Benedikt setti heimsmet Kraftlyftingamaðurinn Benedikt Magnússon stóð við stóru orðin þegar hann keppti á Evrópumótinu í Finnlandi í dag og setti glæsilegt heimsmet í réttstöðulyftu, með því að lyfta 440 kílóum. Hann átti svo góða tilraun við 455, en hársbreidd vantaði uppá að sú lyfta færi upp. Sport 6.11.2005 18:14
Manchester United sigraði Chelsea Chelsea tapaði í fyrsta sinn í fjörutíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið sótti Manchester United heim á Old Trafford. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark United með laglegum skalla í fyrri hálfleik. Sport 6.11.2005 17:55
Árni Gautur besti markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur verið útnefndur besti markvörðurinn í norska boltanum á yfirstaðinni leiktíð, en hann var í dag sæmdur Kniksen-verðlaununum svokölluðu, þar sem dómarar, leikmenn og þjálfarar velja bestu leikmenn ársins. Árni varð sem kunnugt er meistari með liði sínu Valerenga á dögunum. Sport 6.11.2005 17:05
Fletcher kemur United yfir Darren Fletcher var rétt í þessu að koma Manchester United í 1-0 gegn Chelsea á Old Trafford með laglegu skallamarki eftir um hálftíma leik, sem fer mjög fjörlega af stað. Sport 6.11.2005 16:33
Mikilvægur sigur Everton Everton krækti í þrjú dýrmæt stig í botnbaráttunni í dag þegar liðið lagði Middlesbrough 1-0 á heimavelli sínum. Það var James Beattie sem skoraði sigurmarkið með skalla í fyrri hálfleik. Sport 6.11.2005 16:28
Eiður á varamannabekknum gegn United Eiður Smári Guðjohnsen verður á varamannabekk Chelsea þegar liðið tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar sem er að hefjast núna klukkan 16:00. Sport 6.11.2005 15:56
Milwaukee lagði Miami Milwaukee Bucks hefur byrjað vel í NBA deildinni í vetur og í nótt vann liðið þriðja leik sinn í röð þegar það skellti Miami á heimavelli sínum 105-100. Michael Redd og Bobby Simmons skoruðu báðir 23 stig fyrir Milwaukee og T.J. Ford 13 stigum og 11 stoðsendingum. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Ellefu aðrir leikir voru á dagskrá í nótt. Sport 6.11.2005 15:13
Manchester United mætir Chelsea í dag Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá í enska boltanum í dag þegar Manchester United tekur á móti Englandsmeisturum Chelsea. Leikur liðanna hefst klukkan 16, en klukkan 14 eigast við Everton og Middlesbrough. Sport 5.11.2005 21:56
Philadelphia bíður erfitt verkefni Lið Philadelphia 76ers hefur enn ekki unnið leik í deildarkeppni NBA það sem af er tímabili, en í kvöld sækir liðið Indiana heim í leik sem verður annar tveggja í beinni útsendingu á NBATV. Hinn leikurinn er viðureign LA Clippers og Minnesota Timberwolves. Sport 5.11.2005 21:32
Shearer fer í aðgerð í Þýskalandi Eftir að hafa hjálpað liði sínu Newcastle til sigurs á Birmingham í úrvalsdeildinni í dag, fer Alan Shearer til Þýskalands á mánudaginn þar sem hann mun gangast undir aðgerð við kviðsliti. Stephen Carr, félagi hans hjá Newcastle er ný kominn úr svipaðri aðgerð og vona þeir félagar að þeir verði klárir í slaginn fyrir leikinn við Chelsea eftir hálfan mánuð. Sport 5.11.2005 21:25
Birgir Leifur á úrtökumótið Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG tryggði sér í dag keppnisrétt á síðasta úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi, en það fer fram á Spáni í næstu viku. Birgir lauk keppni á úrtökumótinu í Katalóníu í dag á pari og keppir ásamt átta öðrum kylfingum um fjögur síðustu sætin á lokamótinu. Sport 5.11.2005 21:10
Dómarinn kostaði okkur leikinn David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, kenndi dómaranum um tapið fyrir Liverpool í dag og sagði að vítaspyrnudómurinn undir lokin hefði verið þvættingur. Steven Gerrard skoraði úr spyrnunni og í kjölfarið bætti Liverpool við öðru marki og kláraði leikinn. Sport 5.11.2005 20:41
Lærisveinar Alfreðs áfram Þýska liðið Magdeburg tryggði sér í dag sæti í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handknattleik, þegar liðið lagði Chehovski Moskvu 37-28 á heimavelli sínum. Sigfús Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg, en Arnór Atlason skoraði ekki að þessu sinni. Sport 5.11.2005 19:03
Sjötti sigur Wigan í röð Nýliðar Wigan héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í ensku úrvalsdeildinni í dag, þegar liðið vann Portsmouth 2-0 á útivelli. Þetta var sjötti sigur Wigan í röð í deildinni og liðið er nú aðeins sex stigum á eftir toppliði Chelsea og situr í öðru sæti deildarinnar eftir ellefu umferðir, nokkuð sem engan hefði órað fyrir í upphafi leiktíðar. Sport 5.11.2005 19:23
Hlynur sá um Stjörnuna Lærisveinar Sigurðar Sveinssonar í Fylki unnu góðan sigur á Stjörnunni í DHL-deild karla í handknattleik í dag 21-19. Markahæstur hjá Fylki var Eymar Kruger með sex mörk, en Patrekur Jóhannesson skoraði 6 fyrir Stjörnuna. Maður leiksins var þó án efa Hlynur Morhens í marki Fylkis, en hann varði 24 skot í leiknum. Sport 5.11.2005 18:55
Hamilton tryggði Detroit sigur í lokin Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi og þar bar hæst sigurkarfa Rip Hamilton á lokasekúndunni gegn Boston í æsispennandi leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Sport 5.11.2005 18:27
Breiðablik fór með sigur af hólmi Lið Breiðabliks vann lið Icelandair í úrslitum á Mastersmótinu í Egilshöll í dag, en mótið var kennt við markaskorarann Ian Rush, fyrrum leikmann Liverpool, en lið hans hafnaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Víkingi í leiknum um þriðja sætið. Sport 5.11.2005 18:05
Stórtap hjá Haukum í Danmörku Karlalið Hauka tapaði stórt fyrir danska liðinu Arhus GF í Meistaradeildinni í handbolta í dag 34-21, eftir að hafa verið undir 17-7 í hálfleik. Haukar þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í síðasta leik sínum í riðlakeppninni ef þeir ætla sér að komast áfram í keppninni. Sport 5.11.2005 17:56
Ívar með sigurmark Reading Ívar Ingimarsson var hetja Reading í dag þegar liðið sigraði QPR í ensku 1. deildinni. Ívar skoraði sigurmark liðsins á 66. mínútu leiksins og heldur Reading því öðru sæti deildarinnar á eftir Sheffield United. Sport 5.11.2005 17:48
Auðveldur sigur Arsenal Arsenal vann auðveldan 3-1sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag og Blackburn lagði Charlton nokkuð óvænt 4-1. Þá vann Fulham sigur á Manchester City 2-1, Newcastle lagði Birmingham 1-0 og West Ham vann West Brom 1-0. Sport 5.11.2005 17:07
Arsenal 2-0 yfir í hálfleik Nú er kominn háfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal hefur 2-0 yfir í hálfleik gegn Sunderland. Robin van Persie og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. Blackburn hefur 2-1 yfir gegn Charlton, Fulham hefur yfir 2-1 gegn Manchester City og jafnt er hjá Newcastle og Birmingham, sem og í leik West Ham og West Brom. Sport 5.11.2005 15:48
Liverpool vann Aston Villa Liverpool vann góðan útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrsta leik dagsins. Liverpool vann 2-0 og það voru þeir Steven Gerrard og Xabi Alonso sem skoruðu mörk liðsins á síðustu mínutunum. Sport 5.11.2005 15:20
Tveir leikir í beinni Það verða tveir leikir í beinni útsendingu á NBA TV stöðinni á Digital Ísland í nótt. Fyrri leikurinn er viðureign Detroit Pistons og Boston Celtics, en síðari leikurinn er rimma Golden State Warriors og Utah Jazz. en þar eru á ferðinni lið sem ekki hafa sést mikið á skjánum hérlendis. Veislan byrjar fljótlega upp úr miðnætti. Sport 4.11.2005 23:45
Njarðvík lagði ÍR Njarðvíkingar sigruðu ÍR 70-65 í baráttuleik í deildarbikarkeppninni í kvöld, en þetta var fyrri leikur liðanna í átta-liða úrslitunum. Jeb Ivey var stigahæstur Njarðvíkinga með 22 stig, en hitti frekar illa í leiknum. Theo Dixon var stigahæstur hjá ÍR með 22 stig. Sport 4.11.2005 22:59
Fram lagði Selfoss Nokkrir leikir fóru fram í DHL-deild karla og kvenna í kvöld. Í kvennaflokki unnu Valsstúlkur sigur á Fram með 30 mörkum gegn 26. Í karlaflokki fóru fram þrír leikir, Þór og FH skyldu jöfn 25-25, HK lagði Víking/Fjölni 32-28 og Fram sigraði Selfoss á útivelli 28-27. Sport 4.11.2005 22:50
O´Neal verður frá í 2-4 vikur Shaquille O´Neal verður frá keppni í tvær til fjórar vikur með Miami Heat, eftir að hafa snúið sig illa á ökkla í leiknum við Indiana síðustu nótt. Þetta staðfestu læknar liðsins í dag. O´Neal hafði byrjað tímabilið nokkuð rólega og var aðeins með 15 stig og 6 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Sport 4.11.2005 20:35
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent