Íþróttir

Berst ekki næsta hálfa árið
Hnefaleikarinn Ricky Hatton mun ekki berjast næsta hálfa árið vegna ljótra skurða sem hann hlaut í bardaganum við Carlos Maussa um síðustu helgi. Hatton hafði mikla yfirburði í bardaganum en skarst mjög illa eftir að höfuð þeirra skullu saman og þurfi að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum eftir bardagann.

Doncaster-Aston Villa í beinni á Sýn
Þrír leikir fara fram í deildarbikarkeppninni á Englandi í kvöld. Viðureign Doncaster og Aston Villa verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:35. Annar áhugaverður leikur á dagskrá er viðureign Arsenal og Reading, en forvitnilegt verður að sjá hvernig toppliðinu í fyrstu deild gengur á Highbury. Að lokum eigast við Milwall og Birmingham.

Valur og Stjarnan mætast í kvöld
Í kvöld fer fram einn leikur í DHL-deild karla í handbolta, en það er leikur Vals og Stjörnunnar sem frestað var á sínum tíma vegna þáttöku Vals í Evrópukeppninni. Valur getur styrkt stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri í kvöld og hefst leikurinn klukkan 20 og verður í Laugardalshöllinni.
Kristleifur tekur við Hetti
Í dag var tilkynnt að Kristleifur Andrésson hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hattar, en hann hefur séð um þjálfun liðsins síðan Kirk Baker sagði starfi sínu lausu á dögunum. Kristleifur er öllum hnútum kunnugur hjá Hetti, enda þjálfaði hann liðið veturinn 2003-04.

Beckham vill að númer sjö verði hengt upp
Það verða sérstakar minningarathafnir um George Best á Old Trafford í vikunni, bæði á bikarleiknum annað kvöld og fyrir næsta deildarleik liðsins á laugardaginn. David Beckham er með sérstaka hugmynd um hvað gera skuli við númerið sem Best bar á treyju sinni forðum.

Orlando vann fjórða leikinn í röð
Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando Magic vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið skellti Boston á útivelli, en Dallas Maverics vann mjög nauman sigur á botnliði Toronto Raptors og þurfti flautukörfu í lokin til að tryggja sigurinn.

Í viðræðum við Warnock
Stjórnarformaður Portsmouth er nú í viðræðum við forráðamenn Sheffield United um að fá að ræða formlega við Neil Warnock, stjóra liðsins, um að taka við liði Portsmouth. Warnock hefur náð frábærum árangri með United í 1. deildinni í vetur, en Portsmouth er að leita að eftirmanni Alain Perrin sem var rekinn á dögunum.

Sektaður fyrir ummæli í garð dómara
David O´Leary hefur verið sektaður um 5000 pund fyrir að hafa notað dónalegt orð- og látbragð við Graham Poll dómara eftir að flautað var til leiksloka eftir sigur Aston Villa á grönnum sínum í Birmingham í síðasta mánuði.
Stórleikur Loga Gunnarssonar
Logi Gunnarsson var heldur betur í stuði í gær þegar hann skoraði 29 stig fyrir lið sitt Bayeruth í þýsku 1. deildinni, þegar það lagði Lich á útivelli 87-81. Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir Napoli sem sigraði Siena í ítölsku A-deildinni í gær og er lið hans í öðru sæti í deildinni.

Stórleikur Kobe Bryant dugði skammt
Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og þar bar hæst einvígi Los Angeles Lakers og New Jersey Nets, þar sem Kobe Bryant skoraði 38 stig í síðari hálfleik fyri Lakers og 46 stig alls, en það dugði ekki til sigurs eins og oft áður í vetur.

Ver bónusgreiðslur landsliðsmanna
David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að bónusgreiðslur á hendur enska landsliðinu fyrir gott gengi á HM næsta sumar séu fullkomlega réttlætanlegar og séu jafnvel lægri en þær voru fyrir síðustu keppni.

Dómarar hafa mig undir smásjá
Miðjumaðurinn harðskeytti Edgar Davids hjá Tottenham, segir að sér þyki dómarar í ensku úrvalsdeildinni vera full spjaldaglaðir við sig, en Davids hefur fengið sjö gul spjöld í þeim ellefu leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið í vetur.

Chelsea sektað vegna óláta stuðningsmanna
Chelsea hefur verið gert að greiða 30.000 punda sekt vegna óláta stuðningsmanna liðsins á Stamford Bridge eftir bikarleik við West Ham síðastliðið haust, þar sem þáverandi leikmaður liðsins, Mateja Kezman, hlaut höfuðmeiðsl eftir að hlut var kastað í hann úr stúku West ham og lögregla lenti í átökum við stuðningsmenn Chelsea.

Verðskuldaður sigur Manchester United
Manchester United hirti öll þrjú stigin gegn West Ham á Upton Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. George Best var minnst við sérstaka athöfn fyrir leikinn, en þegar í leikinn var komið var það hin nýja stjarna Manchester-liðsins, Wayne Rooney, sem skein skærast og leiddi lið sitt til sigurs 2-1.
Auðveldur sigur íslenska liðsins
Íslenska landsliðið í handknattleik vann í dag auðveldan sigur á Norðmönnum í þriðja og síðasta vináttuleik liðanna í Kaplakrika í dag 32-26. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið og þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson skoruðu 6 hvor. Ísland vann því tvo af þremur leikjum liðanna, en þau skildu jöfn í Mosfellsbæ í gær.

Jafnt hjá Boro og West Brom
Mark Nígeríumannsins Yakubu kom í veg fyrir að botnlið West Brom nældi sér í mikilvæg þrjú stig á Riverside í dag, þar sem liðið gerði 2-2 jafntefli við Middlesbrough. Mark Viduka kom Boro yfir með góðu skoti, en þeir Nathan Ellington og Kanu komu gestunum yfir. Jöfnunarmark Yakubu kom á 65. mínútu, en hann fór illa með færi sem hefði geta gert út um leikinn í lokin.

Fulham sigraði Bolton
Tveimur leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fulham vann góðan og verðskuldaðan sigur á Bolton 2-1, þar sem Brian McBride skoraði bæði mörk Lundúnaliðsins en Sylvain Legwinski minnkaði muninn með sjálfsmarki. El Hadji Diuf fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútum leiksins.

Þeir eru að reyna að flæma mig í burtu
Vandræðagemsinn Laurent Robert hjá Portsmouth segir að verið sé að reyna að flæma sig í burtu frá liði Portsmouth og segir að hann fái allar skammirnar í kjölfar hörmulegs gengis liðsis.

Blóðugur sigur hjá Ricky Hatton
Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er heimsmeistari hjá IBF og WBC samböndunum eftir öruggan en blóðugan sigur gegn Carlos Maussa í Sheffield í nótt. Þrátt fyrir að hljóta ljóta skurði við bæði augu mjög snemma í bardaganum, var sigur Hatton aldrei í hættu og hann vann á rothöggi í níundu lotu.

Verður líklega áfram hjá FH
Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, býst fastlega við því að vera áfram hjá liðinu þrátt fyrir að hafa reynt fyrir sér erlendis að undanförnu. Davíð fór til Reading þar sem hann æfði með liðinu um stund en félagið hætti við að fá hann eftir að hafa fylgst með honum í ungmennalandsleik Íslands og Svíþjóðar.
Svekkjandi jafntefli
Snorri Steinn Guðjónsson var ekki sáttur. "Það er engin spurning að við vorum betri aðilinn í þessum leik, við vorum samt sem áður ekki að spila jafn vel og í gær en við vissum að Norðmennirnir kæmu grimmir til leiks og við vorum í stökustu vandræðum með varnarleikinn í fyrri hálfleik.

Undir smásjá Crystal Palace
Vopnfirðingurinn Víglundur Páll Einarsson gæti verið á leiðinni til enska 1. deildarliðsins Crystal Palace, en hann var nýlega til reynslu hjá félaginu í tíu daga og verður skoðaður nánar af forráðamönnum félagsins í leik með liði sínu, Þór frá Akureyri.

Gerrard á skilið að vinna
Rafael Benitez er ekki í vafa um hver eigi að vera leikmaður ársins í Evrópu.

Frestar atvinnumennskunni
Bjarni Ólafur Eiríksson, varnarmaðurinn sterki úr Val, frestaði för sinni í heim atvinnumennskunnar og lét skólann ganga fyrir. Bjarni Ólafur stundar nám við Kennaraháskóla Íslands og þar sem hann hafði misst mikið úr skólanum frestaði hann því að fara til reynslu hjá Midtjylland í Danmörku og Lyn í Noregi sem bæði vildu fá hann til sín.

Heiðar berst áfram fyrir sæti sínu hjá Fulham
Heiðar Helguson er ákveðinn í því að bíða þolinmóður eftir tækifærinu í byrjunarliði Fulham.

Góður sigur á Sviss í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann góðan sigur á Sviss 25-22 í undankeppni EM á Ítalíu í kvöld. Hanna Stefánsdóttir var markahæst með 6 mörk og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoruðu 4 hvor. Íslenska liðið hefur unnið tvo af þremur leikjum sínum í riðlinum og mæta Tyrkjum á morgun.

Hart tekist á á Selfossi á morgun
Það verður metþáttaka í Íslandsmótinu í réttstöðulyftu sem fram fer í Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi klukkan 14:00 á morgun, en þar mæta til leiks sannkallaðar stórstjörnur í bransanum, ungir sem og lengra komnir.

Ísland burstaði Noreg í Eyjum
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann auðveldan sigur á Norðmönnum 32-23 í Vestmannaeyjum í kvöld, eftir að hafa verið yfir 15-11 í hálfleik. Þetta var fyrsti leikur liðanna af þremur, en þau mætast að Varmá á morgun klukkan 16:15 og á sama tíma á sunnudag í Kaplakrika.

Seldi hlut sinn í Formula One Group
Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone og þýski bankinn BayernLB hafa selt hlut sinn í Formula One Group til handa hóps sem kallar sig CVC Capital Partners, sem á fyrir vikið 75% í Formula One Group. Ecclestone mun þó áfram gegna forstjóra stöðu í fyrirtækinu og á enn nokkurn hlut í því, en hann hefur hagnast gríðarlega á umsvifum sínum í fyrirtækinu og er mjög umdeildur.
Ísland yfir 15-11 í hálfleik
Íslenska landsliðið í handbolta hefur fjögurra marka forystu gegn Norðmönnum í fyrsta leik liðanna af þremur, en spilað er í Vestmannaeyjum. Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa skorað fimm mörk hvor fyrir íslenska liðið.