Íþróttir
214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 334 ›
Boltinn er hjá þeim Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Manchester City segir að boltinn sé í höndum forráðamanna félagsins þegar kemur að því að framlengja samning hans. Barton gerði allt vitlaust hjá félaginu í vetur þegar hann fór fram á að verða seldur eftir að erfiðlega gekk að smíða nýjan samning handa honum. Sport 11.5.2006 20:28
Nýr forseti kosinn 2. júlí Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid tilkynnti í dag að nýr forseti yrði kjörinn þann 2. júlí næstkomandi, en mikil upplausn hefur verið í herbúðum liðsins á leiktíðinni. Real getur tryggt sér öruggt sæti í meistaradeildinni með sigri í lokaleik sínum í deildinni gegn Evrópumeisturum félagsliða í Sevilla. Real hefur nú ekki unnið titil í þrjú ár, sem er lengsta gúrkutíð í sögu félagsins. Sport 11.5.2006 20:44
Haukar deildarbikarmeistarar Haukar urðu í kvöld deildarbikarmeistarar karla í handknattleik þegar liðið lagði Fylkir í rafmögnuðum og tvíframlengdum leik í Árbænum 36-35. Haukarnir unnu því einvígið samtals 2-0. Andri Stefan var markahæstur hjá Haukum með 9 mörk og Jón Karl Björnsson skoraði 8 en hjá Fylki voru Eymar Kruger og Heimir Örn Árnason markahæstir með 8 mörk hvor. Sport 11.5.2006 21:39
Spáir að England nái í úrslitaleikinn Sven-Göran Eriksson er bjartsýnn á gengi sinna manna í enska landsliðinu á HM í sumar og spáir því að ef liðið hafi heppnina með sér muni það ná alla leið í úrslitaleikinn í Berlín þann 9. júlí. Sport 11.5.2006 19:49
Blikar burstuðu Val Íslandsmeistarar Breiðabliks burstuðu Val 5-1 í meistarakeppni kvenna í knattspyrnu á Stjörnuvelli í kvöld, eftir að hafa verið yfir 3-1 í hálfleik. Edda Garðarsdóttir og Vanja Stefanovic skoruðu tvö mörk hvor fyrir Blika og Greta Mjöll Samúelsdóttir eitt. Guðný Óðinsdóttir skoraði mark Vals. Sport 11.5.2006 21:13
Inter bikarmeistari annað árið í röð Inter Milan varð í kvöld bikarmeistari á Ítalíu annað árið í röð eftir að liðið lagði Roma 3-1 á heimavelli sínum í síðari leik liðanna og því samanlagt 4-2. Esteban Cambiasso, Julio Cruz og Obafemi Martins skoruðu mörk heimamanna í kvöld, en Shabani Nonda minnkaði muninn fyrir Rómverja. Sport 11.5.2006 21:06
Malmö lagði Djurgården Nokkrir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Malmö vann sigur á Djurgården 3-2, þar sem Emil Hallfreðsson var í liði Malmö og Kári Árnason kom inn sem varamaður í liði Djurgården. Sport 11.5.2006 20:18
Breiðablik yfir í hálfleik Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa vænlega stöðu þegar flautað hefur verið til leikhlés í meistarakeppni kvenna í knattspyrnu. Breiðablik er yfir 3-1 gegn Val, en leikurinn fer fram á Stjörnuvellinum í Garðabæ. Sport 11.5.2006 20:12
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur kynningarfundur fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu þar sem forráðamenn, þjálfarar og fyrirliðar liðanna í Landsbankadeildinni spáðu í spilin fyrir komandi vertíð í sumar. Íslandsmeisturunum frá því í fyrra, FH og Breiðablik er spáð áframhaldandi velgengni í sumar. Sport 11.5.2006 19:05
Stjórn Juventus segir af sér Stjórn knattspyrnufélagsins Juventus sagði af sér á einu bretti í dag eftir að sannað þótti að stjórnarmenn félagsins hefðu með skipulögðum hætti haft áhrif á það hvaða dómarar dæmdu leiki liðsins í gegn um tíðina. Sönnunargögn eins og upptökur af símtölum voru lögð fram í málinu og því gátu stjórnarmenn ekki annað en sagt af sér. Sport 11.5.2006 19:00
Bowen fékk flest atkvæði í varnarúrvalinu Bruce Bowen hjá San Antonio Spurs fékk flest atkvæði allra þegar tilkynnt var hvaða leikmenn væru í varnarliði ársins í NBA deildinni í dag. Bowen hlaut fleiri atkvæði en nýkjörinn varnarmaður ársins, Ben Wallace hjá Detroit. Sport 11.5.2006 18:13
Enginn leikmaður stærri en Manchester United Bryan Robson ráðleggur framherjanum Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United að endurskoða viðhorf sín ef hann ætli sér að eiga framtíð hjá liðinu, því enginn leikmaður sé stærri en Manchester United. Sport 11.5.2006 17:47
Alonso hefur engar áhyggjur af Ferrari Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segist ekki hafa meiri áhyggjur af Ferrari-liðinu en öðrum keppinautum sínum það sem af er keppnistímabilinu, en Ferrari hefur sem kunnugt er sigrað í tveimur síðustu keppnum. Sport 11.5.2006 17:09
Sharapova vill jafna verðlaunafé Tenniskonan Maria Sharapova hefur nú bæst í hóp þeirra kvenna sem fara fram á það við alþjóða tennissambandið að verðlaunafé á mótum verði jafnað í karla- og kvennaflokki. Enn eru nokkur mót sem greiða körlunum hærra verðlaunafé en konunum og þar fer hið íhaldssama Wimbledon-mót fremst í flokki. Sport 11.5.2006 16:29
Hefur fulla trú á Walcott á HM Arsene Wenger segist hafa fulla trú á því að táningurinn Theo Walcott geti gert fína hluti með enska landsliðinu á HM í sumar ef hann fær á annað borð tækifæri til þess. Sport 11.5.2006 15:52
Gallas tilbúinn að kaupa sig út Breska blaðið The Independent segir að franski varnarmaðurinn William Gallas sé tilbúinn til að kaupa sig út úr samningi sínum við Englandsmeistara Chelsea til að komast í burtu frá Englandi. Gallas á eitt ár og fimm milljónir punda eftir af samningi sínum, en er sagður vilja reyna fyrir sér á meginlandinu þar sem fjöldi liða hefur sýnt honum áhuga. Sport 11.5.2006 14:55
Birmingham hefur enga sál Fyrrum fyrirliði Birmingham sparar ekki stóru orðin nú þegar hann er á förum frá félaginu og kennir Steve Bruce um að liðið hafi fallið í fyrstu deildina í vetur. Hann segir ennfremur að liðið hafi enga sál. Sport 11.5.2006 14:25
Ólöf María á pari Ólöf María Jónsdóttir lék fyrsta keppnisdaginn á pari á móti á Panoramica-vellinum á Spáni í dag, en mótið er liður í evrópsku mótaröðinni. Ólöf lék á 72 höggum og er því greinilega að ná sér betur á strik en á fyrsta mótinu í Tenerife um daginn, þar sem hún komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Sport 11.5.2006 14:20
Hatton er óhræddur Enski hnefaleikarinn Ricky Hatton er óhræddur við þá áskorun sem hann tekst á við annað kvöld þegar hann berst við hinn örvhenta Luiz Collazo í Boston. Hatton ætlar sér sem kunnugt er stóra hluti í Bandaríkjunum og bíður færis að fá að berjast við Floyd Mayweather í framtíðinni. Bardaginn annað kvöld verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 11.5.2006 14:03
Skotar möluðu Búlgara Skotar unnu 5-1 stórsigur á Búlgörum í opnunarleik sínum á Kirin Cup-mótinu sem haldið er í Japan um þessar mundir. Rangers-leikmennirnir Kris Boyd og Chris Burke skoruðu báðir tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir landsliðið. Sport 11.5.2006 13:52
Hreinsað til hjá Manchester City Segja má að vorhreingerningar séu nú hafnar í herbúðum Manchester City, en í dag voru hvorki meira né minna en tíu leikmenn látnir fara frá félaginu. Þar á meðal voru þeir Kiki Musampa, David Sommeil og Albert Riera, en félagið mun ekki endurnýja samninga þessara leikmanna. Sport 11.5.2006 13:45
Tottenham að landa Berbatov? Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að úrvalsdeildarlið Tottenham sé nálægt því að landa búlgarska framherjanum Dimitar Berbatov frá Bayer Leverkusen fyrir hátt í 11 milljónir punda. Berbatov var í hópi markahæstu manna í þýsku úrvalsdeildinni í vetur en vitað er að framherjinn knái vill skipta um umhverfi fyrir næstu leiktíð. Sport 11.5.2006 13:36
Clippers burstaði Phoenix LA Clippers jafnaði metin í einvíginu við Phoenix Suns í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í nótt með öruggum 122-97 sigri á útivelli. Heimamenn áttu ekkert svar við stóru mönnunum hjá Clippers og það voru ekki síst fráköstin sem gerðu útslagið í gær, þar sem Clippers hafði ótrúlega yfirburði 57-26. Sport 11.5.2006 12:45
Viðsnúningur í Miami Annar leikur Miami og New Jersey í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA í nótt bauð upp á algjöran viðsnúning frá fyrsta leiknum, en heimamenn í Miami mættu miklu ákveðnari til leiks í gær og gerðu nánast út um leikinn á fyrstu sex mínútunum. Sport 11.5.2006 02:39
McClaren kennir dómurunum um tapið Steve McClaren, stjóri Middlesbrough, kennir dómurum leiksins um tapið stóra fyrir Sevilla í úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Hann segist stoltur af frammistöðu leikmanna sinna, en taldi þá ekki eiga möguleika í leiknum því allt hafi gengið þeim í óhag hvað varðar dómgæsluna. Sport 10.5.2006 21:48
Eigandi Dallas sektaður um 14 milljónir Hinn litríki eigandi NBA-liðs Dallas Mavericks, milljarðamæringurinn Mark Cuban, var í dag sektaður um sem nemur 14 milljónum íslenskra króna fyrir ósæmilega hegðun um helgina. Helmingur sektarinnar kemur til vegna þess að hann fór inn á völlinn í fyrsta leik San Antonio Spurs og Dallas Mavericks á dögunum, en hinn helmingurinn vegna skrifa hans á bloggsíðu sinni þar sem hann gagnrýndi störf dómara í deildinni. Sport 10.5.2006 21:08
Hammarby á toppinn Íslendingaliðið Hammarby smellti sér á toppinn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar liðið burstaði Gais 5-2. Gunnar Þór Gunnarsson var í liði Hammarby í leiknum og Jóhann Guðmundsson var í liði Gais. Sport 10.5.2006 21:02
Sevilla burstaði Middlesbrough Sevilla er Evrópumeistari félagsliða eftir öruggan 4-0 sigur á Middlesbrough í úrslitaleiknum í kvöld. Luis Fabiano kom spænska liðinu á bragðið á 26. mínútu, en í síðari hálfleikurinn var eign Sevilla. Maresca skoraði tvívegis á sex mínútum og Freddy Kanoute bætti við fjórða markinu skömmu fyrir leikslok. Sport 10.5.2006 20:43
Beiðni Tottenham vísað frá Enska knattspyrnusambandið hefur vísað frá beiðni Tottenham um að fá að spila lokaleik sinn gegn West Ham í úrvalsdeildinni á ný og taldi sambandið Lundúnaliðið ekki færa næg rök fyrir því að grípa þyrfti til svo róttækra aðgerða. Beiðni Tottenham var lögð fram eftir að tíu leikmenn liðsins voru nánast ófærir um að spila lokaleikinn eftir að hafa fengið matareitrun kvöldið áður. Sport 10.5.2006 19:46
Sevilla hefur yfir í hálfleik Spænska liðið Sevilla hefur yfir 1-0 gegn Middlesbrough þegar flautað hefur verið til leikhlés í úrslitaleik liðanna um Evrópubikar félagsliða, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Það var Luis Fabiano sem skoraði mark Sevilla á 21. mínútu. Sport 10.5.2006 19:28