Viðskipti
95 96 97 98 99 100 101 102 103 … 223 ›
Nú sér fyrir endann á hækkunarferli stýrivaxta Hvort sem Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti lítillega á aukavaxtaákvörðunardegi sínum á morgun eða heldur þeim óbreyttum ber sérfræðingum saman um að eftir áramót verði ferli stýrivaxtahækkana bankans sem hófst í maí 2004 örugglega lokið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
Gjaldeyrishömlum aflétt í Taílandi Ríkisstjórn Taíland tilkynnti í dag að hún muni aflétta gjaldeyrishömlum á alþjóðlega fjárfesta. Hömlurnar urðu til þess að fjöldi erlendra fjárfesta losuðu sig við taílenska hlutabréfaeign sína með þeim afleiðingum að gengi hlutabréfa í Taílandi hrundi í morgun. Viðskipti erlent 19.12.2006 16:49
Mikill samdráttur íbúðalána hjá innlánsstofnunum Verulegur samdráttur var á milli ára í nóvember í nýjum íbúðalánum innlánsstofnana, eða 77 prósent. Greiningardeild Landsbankans segir samdráttinn á milli ára svipaða frá miðju ári. Ný útlán banka hafi náð hámarki skömmu eftir að þau hófust haustið 2004 og fóru hæst í rúma 34 milljarða króna í október sama ár. Viðskipti innlent 19.12.2006 16:28
Íslandsmarkaður breytir um nafn Á hluthafafundi Íslandsmarkaðar hf., 12. þessa mánaðar var ákveðið að breyta um nafn á félaginu. Það mun eftirleiðis heita Reiknistofa fiskmarkaða hf. Viðskipti innlent 19.12.2006 10:26
Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,25 prósentum. Bankinn hækkaði stýrivexti síðast um 25 punta í júlí í sumar og lét af núllvaxtastefnu sinni, sem hafði verið viðvarandi síðastliðin fimm ár. Viðskipti erlent 19.12.2006 10:01
Promens lýkur kaupum á Polimoon Promens hf., dótturfyrirtæki Atorku hefur fallið frá eftirfarandi skilyrðum í tengslum við kaup fyrirtækisins á Polimoon ASA. Gert er ráð fyrir að kaupunum verði lokið þann 28. desember næstkomandi. Viðskipti innlent 18.12.2006 17:03
Norsk Hydro og Statoil sameinuð Norsku ríkisfyrirtækin Norsk Hydro og olíufyrirtækið Statoil hafa samþykkt að ganga í eina sæng með það fyrir augum að stofna nýjan olíurisa, sem verður einn sá stærsti sinnar tegundar í heiminum sem sinnir olíuframleiðslu á hafi úti. Gengi hlutabréfa í Norsk Hydro hefur hækkað um 24 prósent í kauphöllinni í Olsó í Noregi í dag vegna fréttanna. Viðskipti erlent 18.12.2006 09:32
Óbreytt verðbólga innan EES Samræmd vísitala neysluverðs innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins var óbreytt á milli mánaða í nóvember. Verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, hér á landi var óbreytt á milli mánaða eða 6,1 prósent, að sögn Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 18.12.2006 09:21
Óbreytt verðbólga í Bandaríkjunum Vísitala neysluverðs hélst óbreytt á milli mánaða í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta jafngildir því að verðbólga sé 2,2 prósent vestanhafs á ársgrundvelli, sem er þvert á spár greiningaraðila sem bjuggust við að vöruverð myndi hækka um 0,2 prósent á milli mánaða. Helsta ástæðan er lækkun á eldsneytisverði. Viðskipti erlent 15.12.2006 16:33
Apple frestar birtingu ársuppgjörs Bandaríski tölvuframleiðandinn Apple greindi frá því í dag að fyrirtækið hefði frestað því að senda ársskýrslu sína til bandarískra fjármálayfirvalda. Ástæðan mun vera rannsókn yfirvalda á kaupréttarákvæðum stjórnenda hjá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 15.12.2006 14:32
FL Group með mikla fjárfestingagetu FL Group situr uppi með mikla fjárfestingagetu eftir að sala á 22,6 prósenta hlut félagsins í Straumi-Burðarási var samþykkt í morgun. Greiningardeild Glitnis segir að þrátt fyrir að hlutirnir séu seldir með tapi þá hafi félagið náð að auka hlutafé á yfirverði á erfiðum hlutafjármarkaði í sumar. Viðskipti innlent 15.12.2006 12:00
Gengi BAE Systems hækkaði mikið Gengi hlutabréfa í breska fyrirtækinu BAE Systems hækkaði snarlega, eða um 5,1 prósent, þegar viðskipti hófust á markaði í Lundúnum í morgun eftir að yfirvöld í Bretlandi greindu frá því í gær að þau hefðu fellt niður rannsókn á fyrirtækinu vegna vafasamra viðskipta þess við Sádi-Arabíu. Viðskipti erlent 15.12.2006 10:46
FL Group selur hlut sinn í Straumi FL Group hefur samþykkt að selja 22,6 prósent hlut sinn í Straumi-Burðarási Fjárfestingarbanka hf. til bankans sjálfs og viðskiptavina hans. Kaupendur greiða 18 krónur fyrir hvern hlut og nemur verðið 42,1 milljarði króna. Innlent 15.12.2006 10:21
Samskiptamiðstöð ekki í frjálsri samkeppni Samkeppniseftirlitinu telur ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna erindis frá félaginu Hröðum höndum, sem mælti yrði um fjárhagslegan aðskilnað samkvæmt 14. gr. samkeppnislaga innan Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Viðskipti innlent 15.12.2006 10:02
Bandaríkjamenn og Kínverjar ná sáttum Stjórnvöld í Kína hafa sæst á að breyta gengisstefnu sinni, m.a. til að að færa það nær gengi bandaríkjadals með það fyrir augum að minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna. Þetta var niðurstaðan að loknum fundi bandarískrar sendinefndar sem fór áleiðis til Kína í vikunni til fundar við ráðamenn. Viðskipti erlent 15.12.2006 09:26
OMX gerir tilboð í kauphöllina í Slóveníu Norræna kauphallarsamstæðan OMX hefur gert kauptilboð í öll bréf Kauphallarinnar í Ljubljana í Slóveníu. Tilboðið hljóðar upp á 4,2 milljónir evra eða rúmar 386 milljónir íslenskra króna. Viðskipti erlent 14.12.2006 16:08
Ekki víst hvort Ryanair hækkar yfirtökutilboð Michael O'Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair, hefur hvorki viljað segja af né á hvort flugfélagið ætli að hækka yfirtökutilboð sitt í írska flugfélagið Aer Lingus. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða um 136 milljarða krónur en hluthafar hafa fram til morgundags til að ákveða hvort þeir taki því. Viðskipti erlent 14.12.2006 13:48
Olíuverð hækkaði um rúman dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu tók kipp í dag í kjölfar þess að aðildarríki OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, ákváðu að minnka olíuframleiðslu ríkjanna um allt að hálfa milljón olíutunna á dag frá og með febrúar á næsta ári. Heildarsamdrátturinn á árinu nemur 1,7 milljónum tunna á dag. Viðskipti innlent 14.12.2006 13:26
Markaðsvirði Icelandair hækkaði um milljarð við skráningu Markaðsvirði Icelandair hækkaði um tæpan milljarð við skráningu félagsins í Íslensku kauphöllinni í morgun. Forstjóri fyrirtækisins segir skráninguna auka sveigjanleika fyrirtækisins og reiknar með að virði félagsins muni vaxa á næstu tólf mánuðum. Innlent 14.12.2006 11:50
FL Group fær allt að 37 milljarða FL Group hefur skrifað undir þriggja ára samning við breska bankann Barclays Capital um allt að 400 milljóna evra fjármögnun. Þetta jafngildir til tæplega 37 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag. FL Group fengið aðgang að ríflega 1 milljarði evra eða um 92 milljörðum íslenskra króna það sem af er árs fyrir tilstilli virtra alþjóðlegra bankastofnana. Viðskipti innlent 14.12.2006 11:50
Forstjóri Icelandair í viðtali á Bloomberg Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group Holding, sagði í viðtali í beinni útsendingu á Bloomberg sjónvarpsstöðinni í dag, skömmu eftir skráningu flugfélagsins í Kauphöll Íslands, að sveigjanleiki Icelandair skipti félagið miklu máli enda væri það mikilvægur lykill að velgengni flugfélaga. Viðskipti innlent 14.12.2006 10:55
Icelandic Group lokar verksmiðju í Bandaríkjunum Icelandic USA Inc., dótturfélag Icelandic Group hf., ætlar að loka verksmiðju sinni í Cambridge, Maryland fyrir lok næsta árs. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að félagið getur sinnt allri framleiðslu og dreifingu fyrirtækisins í verksmiðju sinni og í nýlegri dreifingarmiðstöð sem í Newport News í Virginíuríki í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 14.12.2006 10:31
Olíuverð hækkaði fyrir fund OPEC-ríkja Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag. Ástæðan er fundur OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, síðar í dag en þar verður tekin ákvörðun um það hvort dregið verði úr olíuframleiðslu aðildarríkjanna til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. Þá dró úr olíubirgðum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 14.12.2006 09:51
Tilboði tekið í Qantas Ástralska flugfélagið Qantas hefur tekið yfirtökutilboði ástralska fjárfestingabankans Macquarie, bandaríska sjóðsins Texas Pacific og annarra fjárfesta. Tilboðið hljóðar upp á 11,1 milljarð bandaríkjadal eða ríflega 771 milljarð íslenskra króna. Þetta er einhver stærstu fyrirtækjakaup í flugheiminum. Viðskipti erlent 14.12.2006 09:33
Fraktflugfélög að sameinast? Bandarísku fraktflugfélögin United og Continental eru sögð eiga í viðræðum sem geti leitt til þess að félögin verði sameinuð. Viðræðurnar eru sagðar hafa farið í gang eftir að U.S. Airways gerði yfirtökutilboð í Delta. Viðskipti erlent 13.12.2006 15:29
Stýrivextir hækkaðir í Noregi Seðlabanki Noregs hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. Vaxtahækkunin tekur gildi á morgun. Í rökstuðningi stjórnar bankans segir að ákvörðunin hafi verið tekin til að koma í veg fyrir að verðbólga fari úr böndunum. Þá gaf stjórnin í skyn, að vextirnir yrðu hækkaðir frekar. Viðskipti erlent 13.12.2006 15:22
Eignir lífeyrissjóðanna nálgast 1500 milljarða Eignir lífeyrissjóðanna námu 1.425 milljörðum króna í lok október og jukust um tæpa níu miljarða í mánuðinum. Frá þessu er greint í Morgunkorni Glitnis og vísað í tölur Seðlabankans. Innlent 13.12.2006 12:16
Tveir bankar spá óbreyttum stýrivöxtum Greiningardeildir Landsbankans og Glitnis spá því báðar að Seðlabankinn ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum í 14 prósentum á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans í næstu viku, 21. desember næstkomandi. Þetta er þvert á fyrri spár bankanna sem gerðu ráð fyrir 25-50 punkta hækkun. Innlent 13.12.2006 12:29
Lækkað verðmat á Össur Verðmatsgengi á stoðtækjafyrirtækinu Össuri hefur verið lækkað úr 132,4 krónum á hlut í 125,0 krónur. Verðmatsgengið er talsvert yfir markaðsgengi en greiningardeild Glitnis ráðleggur fjárfestum að kaupa bréf í félaginu horfi þeir til langs tíma. Viðskipti innlent 13.12.2006 10:50
Tilboð í Qantas fellt Stjórn ástralska flugfélagsins Qantas hafnaði í dag yfirtökutilboði ástralska fjárfestingabankans Macquarie og fjárfestingafélagsins Texas Pacific. Tilboðið hljóðaði upp á 8,6 milljarða bandaríkjadali eða um 598 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 13.12.2006 10:23