Viðskipti
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 223 ›
Bréf Atlantic Petroleum hækka um 12 prósent Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um heil 12,11 prósent í fyrstu viðskiptunum í Kauphöll Íslands í dag. Félagið greindi frá því í morgun að það hefði fundið töluverða olíu af miklum gæðum á Hook Head svæðinu austur af Írlandi. Þetta er langmesta hækkunin í Kauphöllinni í dag. Viðskipti innlent 10.10.2007 10:03
Óttast að dregið geti úr hagvexti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir hagvöxt geta orðið minni á heimsvísu á næsta ári vegna lausafjárkrísunnar á fjármálamörkuðum. Sjóðurinn setur hins vegar fyrirvara við spá sína og tekur fram að nægar vísbendingar séu uppi um að hagkerfið geti hrist óróleikann á fjármálamörkuðum frá í enda sumars af sér. Viðskipti erlent 10.10.2007 09:34
Verðbólga mælist nú 4,5 prósent Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,51 prósent á milli mánaða í október og mælist tólf mánaða verðbólga því 4,5 prósent samanborið við 4,2 prósent í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna, en þær gerðu ráð fyrir að vísitalan myndi hækka á bilinu 0,5 til 0,8 prósent á milli mánaða. Viðskipti innlent 10.10.2007 09:00
Lokagengi Dow Jones aldrei hærra Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag og fór Dow Jones-hlutabréfavísitalan í methæðir. Ástæðan voru auknar væntingar fjárfesta um að seðlabanki landsins muni halda áfram að lækka stýrivexti. Viðskipti erlent 9.10.2007 20:39
Atorka eykur við sig í NWF Atorka Group hefur aukist við hlut sinn um rúmlega eitt prósent í breska dreifingarfyrirtækinu NWF Group og fer nú með 21,55 prósenta eignarhluta í félaginu. Viðskipti innlent 9.10.2007 17:09
Teymi hækkaði mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa breyttist almennt afar lítið við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í einungis sex fyrirtækjum hækkaði, þar af bréf í Teymi langmest, eða um 4,44 prósent. Gengi bréfa í öðrum félögum ýmist stóð í stað eða lækkaði. Mesta lækkunin var á gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum, sem fór niður um þrjú prósent. Viðskipti innlent 9.10.2007 15:43
Beðið eftir uppgjörstölum vestanhafs Gengi helstu hlutabréfavísitalna í Bandaríkjunum hefur hækkað í dag en fjárfestar bíða afkomutalna nokkurra stórfyrirtækja fyrir þriðja ársfjórðung þar í landi. Mesta eftirvæntingin liggur í tölum bandaríska álrisans Alcoa, sem birtir tölur sínar eftir lokun markaða vestanhafs í kvöld auk þess sem bandaríski seðlabankinn birtir álit sitt um stöðu efnahagsmála af síðasta vaxtaákvörðunarfundi sínum í september síðar í dag. Viðskipti erlent 9.10.2007 15:11
Styttist í risayfirtöku Royal Bank of Scotland, belgíski bankinn Fortis og hinn spænski Santander hafa tryggt sér samþykki 85 prósent hluthafa fyrir yfirtökutilboði í hollenska bankann ABN Amro. Viðskipti erlent 6.10.2007 11:14
Frekara tap vegna fasteignalána Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch gerir ráð fyrir því að bankinn skili tapi á þriðja ársfjórðungi vegna tapaðra fasteignalána í Bandaríkjunum. Gangi spáin eftir verður þetta í fyrsta sinn sem bankinn skilar tapi í sex ár. Viðskipti erlent 6.10.2007 10:37
Össur leiðir hækkanalestina í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa tók ágætan kipp við opnun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Athygli vekur að gengi allra hlutabréfa í félögum sem greiningardeild Glitnis segir í afkomuspá sinni búa yfir helstu tækifærunum hækkaði í morgun. Viðskipti innlent 5.10.2007 10:29
Nokkur félög í methæðum Gengi hlutabréfa hækkaði almennt í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Atorku hækkaði langmest skráðra félaga, eða um 8,19 prósent, og fór í 11,10 krónur á hlut og hefur aldrei verið hærra. Þá fór gengi fleiri félaga í methæðir, svo sem Landsbankans. Viðskipti innlent 4.10.2007 15:57
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum á evrusvæðinu. Þetta er í samræmi við spár fjármálasérfræðinga. Bankinn hefur engu að síður viljað hækka vextina upp á síðkastið en haldið að sér höndum vegna aðstæðna á fjármálamarkaði auk þess sem gengi evru gagnvart bandaríkjadal hefur sjaldan verið hærra. Viðskipti erlent 4.10.2007 12:07
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandabanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósent. Þetta er í takt við spár sérfræðinga, sem segja bankann vilja skoða áhrif óróleika á fjármálamörkuðum á breskt efnahagslíf áður en næstu skref verði tekin. Viðskipti erlent 4.10.2007 11:14
LÍ sagður bjóða 87 milljarða í írskan sparisjóð Landsbankinn er sagður líklegur til að gera tilboð í írska sparisjóðinn Irish Nationwide Building Society á næstunni. Kaupverð liggur í um einum milljarði evra, jafnvirði 87 milljörðum íslenskra króna. Gengi bréfa í Landsbankanum hefur hækkað um tæpt prósent í dag, stendur í 42,3 krónum á hlut og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti innlent 4.10.2007 10:44
Gengi Atorku rýkur upp Gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað afar lítið eftir að viðskipti hófust í Kauphöllinni í morgun. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í Atorku hefur hækkað langmest það sem af er dags, eða um 6,73 prósent. Gengi einungis þriggja félaga hefur hækkað en jafn mörg lækkað. Önnur félög standa í stað. Viðskipti innlent 4.10.2007 10:10
Kreditkortavelta eykst milli ára Kreditkortavelta heimila var 17,8 prósentum meiri á fyrstu átta mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 4.10.2007 09:37
Lykilkraftar útrásar orkugeira sameinast Félögin Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy hafa verið sameinuð undir nafni þess fyrrnefnda. Eignir sameinaðs félags nema 65 milljörðum króna og heildarhlutafé 40 milljarðar. Starfsmönnum Orkuveitunnar býðst að kaupa hlut í félaginu á genginu 1,3. Félagið á að skrá á markað innan tveggja ára. Viðskipti innlent 4.10.2007 09:06
Straumur hækkaði mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lok viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í Straumi hækkaði mest, eða um 3,33 prósent og standa bréf fjárfestingabankans í 21,7 krónum á hlut. Gengi bréfa í FL Group hækkaði næstmest, eða um 3,1 prósent. Viðskipti innlent 3.10.2007 15:32
Sameining í orkugeiranum Sameina á fjárfestingafélögin Reykjavik Energy Invest (REi) og Geysi Green Energy sem bæði fjárfesta í orkuiðnaði. REi er í meirihlutaeigu Orkuveitu Reykjavíkur, en stærsti hluthafi Geysis Green er FL Group. Samkvæmt heimildum Markaðarins verður sameiningin kynnt á blaðamannafundi seinna í dag. Viðskipti innlent 3.10.2007 14:14
Gengi Northern Rock rýkur upp vegna yfirtökufrétta Gengi hlutabréfa í breska fasteignalánafyrirtækinu Northern Rock hefur hækkað um heil tíu prósent í dag eftir að fjárfestingafélagið JC Flowers greindi frá því að það hefði tryggt sér 15 milljarða punda, jafnvirði tæpra 1.900 milljarða íslenskra króna, sem mun nýtast við yfirtöku á félaginu. Viðskipti erlent 3.10.2007 12:59
Kraftur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa tók sprettinn við opnun viðskipta í Kauphöllinni í morgun og rauk Úrvalsvísitalan upp um 1,23 prósent. FL Group leiddi hækkanalestina en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 4,65 prósent. Þegar stundarfjórðungur var liðinn frá opnun Kauphallarinnar kom lækkanakippur sem olli því að bréf í Straumi tóku toppsætið af FL Group. Viðskipti innlent 3.10.2007 10:13
Morgan Stanley segir upp 600 manns Bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley ætlar að segja upp allt að 600 manns í hagræðingarskyni. Endurskipulagning stendur yfir á fasteignalánadeild fyrirtækisins. Fimm hundruð manns verður sagt upp í Bandaríkjunum en hundrað í Evrópu. Keppinautar bankans, svo sem Lehman Brothers, hafa gripið til svipaðra ráðstafana vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Viðskipti erlent 3.10.2007 09:49
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Bretlandi Samtök verslunar í Bretlandi segir nauðsynlegt að Englandsbanki lækki stýrivexti en það muni auka bjartsýni neytenda á horfur í efnahagsmálum. Vaxtaákvörðunarfundur Englandsbanka er á morgun en reiknað er með því að bankastjórnin haldi stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósentum að sinni. Viðskipti erlent 3.10.2007 09:29
Vísitölurnar upp og niður Gengi hlutabréfavísitalna hefur sveiflast nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag. Hækkun var við lok viðskipta í Asíu í morgun og sló vísitalan í Kína enn eitt metið. Vísitölur í Evrópu hafa verið upp og niður. Bloomberg varar við of mikilli bjartsýni. Viðskipti erlent 3.10.2007 09:12
Promens kaupir framleiðslueiningu á Spáni Promens yfirtók í dag framleiðslueiningu spænska fyrirtækisins STE Packaging Development á snyrtivöruumbúðum. Kaupverð er trúnaðarmál en það verður greitt með handbæru fé. Fyrirtækið er staðsett í Esparraguera, nálægt Barcelona á Spáni. Starfsmenn fyrirtækisins eru 33 talsins en árssala fyrirtækisins nemur 3,8 milljónum evra, 332 milljónum króna. Viðskipti innlent 2.10.2007 16:03
Ebay ofgreiddi fyrir Skype Bandaríska uppboðsveitan Ebay segist hafa ofmetið verðið á netsímafyrirtækinu Skype. Fyrirtækið keypti fyrirtækið fyrir rétt um tveimur árum og greiddi fyrir það heila 2,6 milljarða dala, jafnvirði rúmlega 161 milljarð íslenskra króna. Viðskipti erlent 2.10.2007 15:46
Úrvalsvísitalan tók sprettinn Gengi hlutabréfa tók sprettinn rétt fyrir lokun viðskipta í Kauphöllinni fyrir nokkrum mínútum. Gengi bréfa í 365 leiddi lestina fram eftir degi en það hækkaði langmest skráðra félaga í Kauphöllinni, eða um 7,97 prósent. Gengi allra fjármálafyrirtækjanna hækkaði sömuleiðis. Föroyabanki er það undanskilinn en gengi bréfa í honum lækkaði mest, um 2,17 prósent. Viðskipti innlent 1.10.2007 15:37
Fasteignalánin bíta í afkomu UBS Svissneski alþjóðabankinn UBS greindi frá því í dag að hann þurfi að afskrifa fjóra milljarða svissneskra franka, jafnvirði 211 milljarða íslenskra króna, vegna tapaðra útlána á bandarískum fasteignalánamarkaði. Þetta mun skila sér í því að bankinn tapar á bilinu 600 til 800 milljónum franka á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti erlent 1.10.2007 09:14
Úrvalsvísitalan óbreytt eftir daginn Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,01 prósent við lokun viðskipta í dag eftir nokkuð sveiflukenndan dag. Þetta er svipað genginu á erlendum hlutabréfamörkuðum en vísitölur erlendis hafa sveiflast nokkuð beggja vegna núllsins. Gengi bréfa í Tryggingamiðstöðinni hækkaði mest í dag, eða um 2,17 prósent. Viðskipti innlent 24.9.2007 15:48
Smávegis hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hefur hækkað lítillega eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takt við þróun á erlendum hlutabréfamörkuðum en vísitölur hafa sveiflast beggja vegna núllsins. Gengi bréfa í Straumi hefur hækkað mest, eða um 0,78 prósent. Gengi bréfa í Icelandic Group hefur hins vegar lækkað mest það sem af er dags, um 1,35 prósent. Viðskipti innlent 24.9.2007 10:26