Viðskipti
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 223 ›
Nýr forstjóri Icelandic Group Finnbogi Baldvinsson hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group, og tekur hann við af Björgólfi Jóhannssyni, sem tók við forstjórastarfi Icelandair Group um miðjan síðasta mánuð. Viðskipti innlent 8.2.2008 16:34
Hagnaður Eyris dróst saman milli ára Eyrir Invest hagnaðist um 797 milljónir króna á síðasta ári samanborið við tæpa 1,6 milljarða krónur í hitteðfyrra. Eigið fé Eyris jókst um 51 prósent í fyrra með hagnaði og hlutafjáraukningu. Viðskipti innlent 8.2.2008 11:50
Vinur verðbréfaskúrksins handtekinn Franska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði í gæsluvarðhaldi verðbréfamiðlara sem talinn er geta átt aðild að umsvifamiklum verðbréfaviðskiptum Jerome Kerviels. Kerviels tapaði 4,9 milljörðum evra, jafnvirði um 480 milljörðum íslenskra króna, í áhættusömum og framvirkum verðbréfaviðskiptum í nafni franska bankans Societe Generale. Þetta er umsvifamesta tap miðlara í heimi. Viðskipti erlent 8.2.2008 10:40
Langþráð hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um tæp 1,8 prósent þegar viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgja Exista og FL Group, sem bæði hafa hækkað um rúmt prósent. Önnur félög hafa hækkað minna. Straumur rekur lestina með 0,16 prósenta hækkun. Viðskipti innlent 8.2.2008 10:14
Ráðherrar funda um efnahagshorfur Fjármálaráðherra sjö stærstu iðnríkja heims eru nú staddir í Tókýó í Japan en þeir munu funda um dræmar efnahagshorfur á næstu mánuðum á morgun. Viðskipti erlent 8.2.2008 09:58
Hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðurinn hefur farið vel af stað í Evrópu í dag eftir fremur slappa viku. Gærdagurinn var sérstaklega slæmur en fjárfestar voru almennt óánægðir með stýrivaxtaákvörðun bæði í Bretlandi og á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 8.2.2008 08:58
365 féll um 6,8 prósent Gengi hlutabréfa í 365 féll um tæp 6,8 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Félagið skilaði ágætu uppgjöri en svo virðist sem væntanleg hlutafjáraukning hafi farið illa í fjárfesta. Á eftir fylgdu SPRON og Exista en SPRON féll um rúm 3,7 prósent. Gengi annarra félaga lækkaði minna en þó mest í bönkum og fjárfestingafélögum. Viðskipti innlent 7.2.2008 16:54
Óánægja með stýrivaxtaákvörðun á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Hlutabréfamarkaðir féllu í Evrópu í kjölfarið. Viðskipti erlent 7.2.2008 13:36
Stýrivextir lækka í Bretlandi Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, lækkaði stýrivexti um 25 punkta í dag og standa vextirnir nú í 5,25 prósentum. Þetta er í samræmi við spár markaðsaðila sem segja að bankastjórnin standi frammi fyrir erfiðum aðstæðum. Hann vilji halda verðbólgu niðri á sama tíma og aðstæður á fjármálamörkuðum séu með versta móti, vextir með hæsta móti og lánsfé því dýrt. Viðskipti erlent 7.2.2008 12:18
Stefnir í fjöldauppsagnir hjá Northern Rock Útlit er fyrir að allt að 2.400 manns verði sagt upp hjá breska bankanum Northern Rock á næstu þremur árum eigi að takast að snúa við rekstrinum. Þetta segir Paul Thompson, einn þeirra sem leiðir yfirtökutilboð Richard Bransons í bankann. Viðskipti erlent 7.2.2008 11:50
Rólegt á markaði í veðurhamnum Gengi Existu lækkaði um eitt prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgdu Straumur, FL Group, Landsbankinn og SPRON, sem hefur lækkað um 0,5 prósent. Bakkavör og Kaupþing eru hins vegar einu fyrirtækin sem hafa hækkað í dag, bæði um 0,55 prósent, á afar rólegum degi. Viðskipti innlent 7.2.2008 10:43
HBSC sagður bjóða í Société Generale Gengi hlutabréfa í franska bankanum Société Generale hækkaði um rúm sex prósent á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag eftir að orðrómur fór á kreik að evrópski risabankinn HSBC sé að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í bankann. Viðskipti erlent 6.2.2008 11:34
SPRON féll um rúm sex prósent í byrjun dags SPRON tók snarpa dýfu rétt eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag þegar gengi þess féll um 6,17 prósent. Viðskipti innlent 6.2.2008 10:17
BHP hækkar tilboðið í Rio Tinto Ástralska námafélagið BHP Billiton hefur hækkað óvinveitt yfirtökutilboð sitt í ál- og námurisann Rio Tinto. Helsta ástæðan fyrir bættu tilboði er gagntilboð frá Chinalco, stærsta álfélagi Kína, sem er í ríkiseigu, í Rio Tinto. Gengi hlutabréfa í BHP féll um fimm prósent í kjölfarið. Viðskipti erlent 6.2.2008 09:37
Disney-risinn siglir gegnum niðursveifluna Hagnaður Disney-risans var umfram væntingar á fyrsta ársfjórðungi, sem lauk í enda janúar samkvæmt bókum afþreyingafyrirtækisins. Það skrifast á góða sölu á DVD-myndum á borð við „High School Musical“ og fjölgun gesta í Disneyland- og Disneyworldgarðana. Viðskipti erlent 6.2.2008 09:02
Búast við samþykki Yahoo tilboðsins Bandarískir stjórnmálamenn hittast seinna í vikunni til að ræða tilboð Microsoft í Yahoo. Stjórn Yahoo veltir nú fyrir sér 44,6 milljarða dollara tilboðinu en nefnd á vegum þingsins segir að hún muni grandskoða tilboðið 8. febrúar næstkomandi. Viðskipti erlent 3.2.2008 21:28
Sjálfstæður atvinnurekandi - eða ríkur? Þeir Bandaríkjamenn sem vinna fyrir sjálfan sig, eða þéna meira en eina milljón bandaríkjadala ( 65 milljónir íslenskra króna) á ári, eru líklegri til að verða skoðaðir sérstaklega af ríkisskattstofu Bandaríkjanna en aðrir Bandaríkjamenn. Viðskipti erlent 3.2.2008 11:26
Viðskiptavinir Egg bankans mótmæla kortasvipti Reiðir viðskiptavinir internetbankans Egg hafa mótmælt ákvörðun bankans um að ógilda kreditkort þeirra eftir 35 daga. Egg segir að 161 þúsund kortum verði lokað þar sem lánstraust korthafanna hafi versnað frá því að þeir tóku upp viðskipti við bankann. Viðskipti erlent 2.2.2008 17:45
Microsoft vill kaupa Yahoo Fyrirtækin Microsoft og Yahoo eru bæði í samkeppni við leiðandi leitarvélarisann Google. Nú hefur Microsoft boðist til að kaupa Yahoo með peningum og hlutabréfum á tæplega þrjú þúsund milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 2.2.2008 15:54
Útflutningur á óunnum botnfiski eykst Útflutningur á óunnum botnfiski hefur aukist fyrstu fjóra mánuði fiskveiðiársins miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin í útflutningi á óunninni ýsu eða 32 prósent. Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri það fýsilegra fyrir fyrirtæki að vinna aflann hér á landi. Viðskipti innlent 2.2.2008 12:39
Nova boðar harðnandi samkeppni á farsímamarkaði Samskiptafyrirtækið Nova býður fría farsímanotkun að eitt þúsund krónum á mánuði þeim 3G farsímaeigendum sem skrá sig í viðskipti til fyrirtækisins í eitt ár. Þá er öllum sem kaupa 3G farsíma hjá Nova boðið að nota símann endurgjaldslaust fyrir tvö þúsund krónur á mánuði þegar gengið er til liðs við fyrirtækið. Viðskipti innlent 2.2.2008 11:29
Starfsmenn Skagen fá 12 milljónir í bónus Á meðan flestir aðilar á verðbréfamörkuðum heims bera sig illa fagna eigendur, starfsmenn og viðskiptavinir norska fjárfestingarsjóðsins Skagen. Sjóðnum tókst furðuvel að halda sjó síðustu mánuði og við ársuppgjör í vikunni var ávöxtunin svo góð að hver einasti starfsmaður fékk sem svarar um tólf milljónum íslenskra króna í bónus. Viðskipti erlent 2.2.2008 10:01
Flaga fellur eftir háflug Gengi Flögu féll um 3,2 prósent eftir ofsaflug í vikunni. Gengi bréfa í svefnrannsóknarfyrirtækinuhafði legið í lægstu lægðum alla síðustu viku en tók skyndilegan kipp undir vikulokin og rauk upp um rúm 160 prósent á fjórum viðskiptadögum. Viðskipti innlent 1.2.2008 17:04
Microsoft vill kaupa Yahoo Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft er sagður hafa lagt fram tilboð í netveituna Yahoo upp á 44,6 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 2.890 milljarða íslenskra króna, að því er breska ríkisútvarpið hermir. Viðskipti erlent 1.2.2008 11:53
Verðbólga í hæstu hæðum á evrusvæðinu Verðbólga mælist 3,2 prósent á evrusvæðinu í þessum mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Verðbólga hefur aldrei verið meiri en nú og er hætt á stöðnun á evrusvæðinu, að sögn markaðsaðila. Viðskipti erlent 31.1.2008 12:53
Metafkoma hjá OMX-samstæðunni OMX-samstæðan, sem meðal annars á Kauphöll Íslands, hagnaðist um 986 milljónum sænskra króna á síðasta ári samanborið við 911 milljónir króna í hitteðfyrra. Þetta jafngildir 10,1 milljarði íslenskra króna en afkoman hefur aldrei verið betri. Það af nam hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi 225 milljónir sænskra króna á fjórða ársfjórðungi. Viðskipti innlent 31.1.2008 12:27
Flaga upp um rúm 180 prósent á viku Gengi bréfa í svefnrannsóknafyrirtækinu Flögu hélt áfram að hækka í dag, nú um rúm sjö prósent við upphaf viðskipta. Gengið hefur rokið upp um rúm 180 prósent á rétt um viku. Viðskipti innlent 31.1.2008 10:17
Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti um hálft prósentustig í dag og standa vextirnir nú í þremur prósentum. Þetta er í takt við spár markaðsaðila. Viðskipti erlent 30.1.2008 20:52
Hagvöxtur með minnsta móti í Bandaríkjunum Hagvöxtur jókst um 0,6 prósent á fjórða og síðasta fjórðungi nýliðins árs í Bandaríkjunum. Til samanburðar var hagvöxtur 4,9 prósent á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti erlent 30.1.2008 14:14
„Skynsamleg ákvörðun í ljósi aðstæðna,“ segir forstjóri Kaupþings „Eins og aðstæður eru núna sáum við ekki fram á að ná fram þeim samlegðaráhrifum sem við stefndum að," segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, en bankinn tilkynnti í morgun að hætt hefði verið við yfirtöku á hollenska bankanum NIBC. Viðskipti innlent 30.1.2008 10:30
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent