Viðskipti
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 223 ›
Bandaríkjadalur svífur langt yfir krónuna Bandaríkjadalur fór rétt í þessu í 87,1 íslenskar krónur og hefur ekki verið dýrari síðan snemma í nóvember árið 2002. Hann hefur styrkst um 40 prósent gagnvart krónu frá áramótum. Viðskipti innlent 5.9.2008 09:49
Enn ein lækkanarhrinan gengur yfir Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í Nasdaq-OMX kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa lækkað um 1,85 prósent frá upphafi viðskiptadagsins í dag. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum eftir skell í gær. Viðskipti erlent 5.9.2008 09:12
Fjárfestar sáu rautt í dag Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála féllu um tvö prósent og meira í dag. Óbreytt stýrivaxtastig á evrusvæðinu og í Bretlandi auk vísbendinga um versnandi horfur í efnahagsmálum í Evrópu ollu falli á helstu hlutabréfum í álfunni. Í Bandaríkjunum ollu neikvæðar fréttir úr smásöluverslun og vísbendingar um breytt neyslumynstur því að fjárfestar urðu svartsýnir. Þá bætti ekki úr skák að atvinnuleysi hefur ekki verið meira síðan í nóvember árið 2003. Viðskipti erlent 4.9.2008 23:39
Dollarinn rýfur 86 krónu múrinn Bandaríkjadalurinn rauf 86 krónu múrinn fyrir stundu. Það hefur ekki gerst síðan seint í nóvember árið 2002. Hann fór yfir 85 krónurnar í fyrsta sinn í tæp sex ár í gær. Viðskipti innlent 4.9.2008 15:51
Úrvalsvísitalan niður um rúmt prósent - annan daginn í röð Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka féll um 6,2 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins sem litaðist af rauðum lit lækkunar á hlutabréfamarkaði. Þetta er jafnframt annar dagurinn í röð sem Úrvalsvísitalan lækkar um rúmt prósent. Viðskipti innlent 4.9.2008 15:31
Hagræðingahaustið mikla Hagræðing felst í sameiningu fjármálafyrirtækja hér á landi. Þetta segir greiningardeild Glitnis í Morgunkorni sínu í dag. Þar er bent á að 34 fjármálafyrirtæki séu starfandi hér á landi sem hafa starfsleyfi. Verði það að teljast einstakt í ekki stærra hagkerfi. Viðskipti innlent 4.9.2008 11:11
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í fimm prósentum. Þetta er fimmti mánuðurinn í röð sem vaxtastigið stendur óbreytt og í samræmi við spár. Viðskipti erlent 4.9.2008 11:04
Exista leiðir lækkun dagsins Gengi hlutabréfa í Existu féll um 2,4 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta lækkun dagsins. Viðskipti innlent 4.9.2008 10:14
Enn veikist íslenska krónan Gengi krónunnar hefur veikst um 0,33 prósent í morgun og stendur gengisvísitalan í 161,1 stigi. Bandaríkjadalur kostar nú rúmar 85 krónur og hefur ekki verið dýrari síðan í desember árið 2002, líkt og fram kom í Fréttablaðinu í dag. Viðskipti innlent 4.9.2008 09:45
Húsnæðisverð fellur í Bretlandi Húsnæðisverð í Bretlandi hefur lækkaði um 12,7 prósent á milli ára í ágúst, samkvæmt tölum breska fasteignalánasjóðsins Halifax Þetta er talsvert meira en fasteignalánveitandinn Nationwide sagði fyrir nokkru en hann reiknaði svo til að verðið hafi fallið um 10,7 prósent á milli ára. Viðskipti erlent 4.9.2008 09:28
Svíar hækka stýrivexti Sænski seðlabankinn ákvað í dag að hækka stýrivexti um 25 punkta og verða þeir eftirleiðis 4,75 prósent. Bankastjórnin sagði í morgun að breytingar verði ekki gerðar á vöxtunum út árið vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Viðskipti erlent 4.9.2008 09:14
Búist við óbreyttum vöxtum á meginlandinu Stýrivaxtadagur er á evrusvæðinu og í Bretlandi á morgun. Sérfræðingar reikna flestir með óbreyttu vaxtastigi þrátt fyrir svartsýnar efnahagshorfur á næstunni. Viðskipti erlent 3.9.2008 17:27
Icelandair sveif eitt upp í Kauphöllinni Icelandair var eitt um að fljúga upp á hlutabréfamarkaði í dag. Flugið var ekki hátt en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 0,49 prósent. Á móti lækkaði gengi flestra skráðra félaga. Viðskipti innlent 3.9.2008 15:29
Lækkun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað nokkuð á helstu hlutabréfamörkuðum í dag. Minnkandi hagvöxtur á evrusvæðinu og svartsýnar horfur eiga hlut að máli, samkvæmt erlendum fjölmiðlum. Viðskipti erlent 3.9.2008 11:24
Exista fellur eftir flug í gær Gengi hlutabréfa í Existu féll um 4,15 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Félagið hækkaði mest í gær, eða um 3,49 prósent. Að öðru leyti litast hlutabréfamarkaðurinn af lækkun. Viðskipti innlent 3.9.2008 10:14
Krónan veikist í kjölfar styrkingar Gengi íslensku krónunnar hefur veikst um rúm 0,8 prósent á gjaldeyrismarkaði í dag. Í gær styrktist það um 0,6 prósent. Um svipað leyti og tilkynnt var um lántöku ríkisins upp á 30 milljarða króna rauk það reyndar upp um 1,2 prósent þegar mest lét. Viðskipti innlent 3.9.2008 10:00
Mikill vöxtur í farsímahluta Opera Software Hagnaður norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera Software námu 17,7 milljónum norskra króna, jafnvirði um 270 milljóna íslenskra, á öðrum ársfjórðungi samanborið við 2,2 milljónir á sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 3.9.2008 09:38
Atvinnuleysi í Bretlandi ekki meira í sjö ár Atvinnuleysi hefur aukist mikið í Bretlandi í kjölfar samdráttar í efnahagslífinu. Ástandið hefur ekki verið verra í rétt tæp sjö ár, samkvæmt upplýsingum KPMG og fleiri fyrirtækja sem tengjast breskum atvinnumarkaði. Viðskipti erlent 3.9.2008 09:09
Bakkavör komið í vaxtargírinn Bakkavör ætlar að blása í heilmikla söluaukningu á næstu fjórum árum. Fyrirtækið er þeim bræðrum Ágústi og Lýði Guðmundssonum svo hjartfólgið að frekar selur Exista eignir en horfa upp á eignarhlut sinn í Bakkavör þynnast. Þetta segir Ágúst Guðmundsson, forstjóri fyrirtækisins,í stóru viðtali við breska viðskiptadagblaðið Financial Times í dag. Viðskipti innlent 2.9.2008 15:42
Nokkur hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 3,49 prósent í enda viðskiptadagsins í Kauphöllinni. Félagið tók sprett á fyrstu mínútum dagsins. Á hæla Existu fylgdi gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri, sem fór upp um 2,48 prósent. Þá hækkaði gengi Bakkavarar um 2,3 prósent. Viðskipti innlent 2.9.2008 15:33
Samdrætti spáð í Bretlandi Miklar líkur eru á samdráttarskeiði í Bretlandi á þessu ári. Þetta kemur fram í hagspá Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Viðskipti erlent 2.9.2008 14:52
Exista tekur fram úr öðrum í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Existu rauk upp um rétt rúm fjögur prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag í þrettán viðskiptum upp á rúma 63 milljónir króna. Þetta er talsvert yfir annarri hækkun á markaði í dag. Viðskipti innlent 2.9.2008 10:09
Olíuverð ekki lægra síðan í apríl Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði verulega í dag en fellibylurinn Gústav fór yfir Mexíkóflóa í gær. Verðið er undir 106 dölum á tunnu og hefur ekki verið lægra í heila fimm mánuði. Viðskipti erlent 2.9.2008 09:05
Færeyingarnir tóku daginn Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um 2,74 prósent í Kauphöllinni í dag. Fast á hæla þess var gengi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, sem hækkaði um 2,43 prósent. Talsvert á hæla þeirra var gengi bréfa í Alfesca, sem hækkaði um rétt rúmt prósent. Að öðru leyti einkenndi lækkun viðskiptadaginn á hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 1.9.2008 16:00
Commerzbank kaupir Dresdner Bank Þýski risabankinn Commerzbank ákvað í gær að kaupa landa sinn Dresdner-banka. Kaupverð nemur 9,8 milljörðum evra, jafnvirði 1.200 milljörðum íslenskra króna. Viðskiptin gera Commerzbank að öðrum umsvifamesta banka Þýskalands á eftir Deutsche Bank. Viðskipti erlent 1.9.2008 13:33
Össur og Bakkavör ein á uppleið Gengi hlutabréfa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri hefur hækkað um 1,1 prósent í upphafi viðskiptadagsins í dag. Það er mesta hækkun dagsins. Á eftir Össuri fylgir Bakkavör, en gengi bréfa þess hefur hækkað um tæp 0,4 prósent. Önnur félög hafa ekki hækkað í verði. Viðskipti innlent 1.9.2008 10:08
Viðskiptavikan byrjar á lækkun Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. Erlendir fjölmiðlar eru almennt sammála um að snörp lækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði á föstudag og svartsýnar spár fjárfesta til skamms tíma hafi litað markaðinn. Viðskipti erlent 1.9.2008 09:37
Olíuverðið fýkur upp í fellibylnum Heimsmarkaðsverð á hráolíu fauk upp um 1,6 prósent í dag og stendur nú í tæpum 118 dölum á tunnu. Veðurofsi af völdum fellibylsins Gústavs við Mexíkóflóa er um að kenna en starfsfólk olíuvinnslufyrirtækja við flóann er að yfirgefa svæðið. Viðskipti erlent 29.8.2008 12:33
Byr sektað um milljón á dag Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að sekta sparisjóðinn Byr um eina milljón króna á dag vegna tafa á upplýsingum. Málið varðar tafir á gögnum sem eftirlitið óskaði eftir vegna rannsóknar á samruna Spron og Kaupþings. Viðskipti innlent 29.8.2008 12:51
Dregur úr hagvexti á Indlandi Hagvöxtur hefur dregist saman á Indlandi, einu af þeim nýmarkaðslöndum þar sem vöxturinn hefur verið hvað mestur fram til þessa. Vöxturinn hefur ekki verið minni í þrjú ár. Viðskipti erlent 29.8.2008 11:16
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent