

Á sunnudagskvöld vann FC Kaupmannahöfn 2-1 útisigur á Vejle. Það var 10. tap Vejle í röð í efstu deild danska fótboltans. Tapið þýðir að Vejle á nú metið yfir slökustu byrjun í sögu efstu deildar þar í landi.
Kortrijk, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar, varð að sætta sig við 3-0 tap á útivelli gegn silfurliði síðasta tímabils, Union St. Gilloise, í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Framherjinn Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði annað marka Nordsjælland í góðum sigri í efstu deild kvenna í Danmörku. Þá fékk Glódís Perla Viggósdóttir tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Bayern München vann öruggan 4-0 sigur á Werder Bremen.
Kristall Máni Ingason lagði grunninn að sigri Sönderjyske á Ishöj í bikarkeppni karla í knattspyrnu í Danmörku. Það tók hann aðeins tvær mínútur að skora eftir að hann kom inn af bekknum.
Sønderjyske vann dramatískan 2-1 sigur á Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Kristall Máni Ingason lagði upp fyrra mark liðsins.
West Ham United tapaði illa fyrir Manchester United, 3-0, í 1. umferð ensku úrvalsdeildar kvenna í dag.
Midtjylland jók forskot sitt í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri gegn FC Kaupmannahöfn. Elías Rafn Ólafsson varði mark heimamanna en Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekk gestanna.
Íslensku landsliðskonurnar voru í góðum gír þegar Kristianstad vann 4-1 sigur á AIK í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag.
Danmerkurmeistarar Nordsjælland unnu öruggan 4-1 útisigur á B93 í dönsku efstu deild kvenna í fótbolta. Íslenska landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði eitt mark meistaranna.
Nóel Atli Arnórsson, leikmaður Álaborgar í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu og yngri landsliða Íslands, er með brotið bein í fæti. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolti.net.
Rasmus Falk, fyrirliði FC Kaupmannahafnar, missti af nágrannaslagnum gegn Bröndby á dögunum þar sem eiginkona hans, Jacqueline Ann Sofie Falk Østergaard, þurfti að gangast undir aðgerð eftir að hafa fætt fyrirbura fyrr í sumar.
Dönsku meistararnir í Nordsjælland komast ekki áfram í næstu umferð í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby er úr leik í dönsku bikarkeppninni eftir stórt tap á móti C-deildarfélaginu Frem í kvöld. Það var ekki aðeins tapið sem var vandræðalegt fyrir Íslendingaliðið heldur einnig hvernig liðið tapaði þessum leik.
FC Kaupmannahöfn hefur fundið arftaka landsliðsframherjans Orra Steins Óskarssonar. Sá heitir German Onugkha og var markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á síðustu leiktíð.
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir er mætt til Bröndby í Danmörku og mun spila með liðinu út yfirstandandi leiktíð. Hún verður annar Íslendingurinn í herbúðum liðsins en Hafrún Rakel Halldórsdóttir spilar einnig með Bröndby.
Mikael Neville Anderson og félagar í AGF komust upp í toppsætið í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta með góðum sigri í gær en annað Íslendingalið tók toppsætið til baka í dag.
Kristall Máni Ingason skoraði fyrir Sönderjyske í dag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson var allt í öllu í Árósum í dag þegar AGF vann góðan heimasigur og komst á toppinn í dönsku úrvalsdeildinni.
FC Kaupmannahöfn hefur staðfest að landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson hafi verið seldur til spænska efstu deildarliðsins Real Sociedad og hefur spænska liðið nú þegar kynnt hann til leiks. Orri Steinn varð um leið dýrasti leikmaður sem FCK hefur selt frá upphafi.
Lyngby er komið á blað í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir sigur á Vejle í kvöld. Sævar Atli Magnússon kom inn af bekknum í fyrri hálfleik. Þá voru Íslendingar í eldlínunni á Ítalíu sem og Þýskalandi.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því nú síðdegis að landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson sé á leið til spænska félagsins Real Sociedad.
Íslenska landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var áfram á skotskónum í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði tvö af þremur mörkum Nordsjælland í 3-2 sigri gegn Bröndby í fjórðu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.
Landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson er afar eftirsóttur og virðist spænska félagið Real Sociedad tilbúið að leggja mest undir til að tryggja sér þennan unga Íslending.
Á sunnudaginn var Orri Steinn Óskarsson, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu og FC Kaupmannahafnar, orðaður við Englandsmeistara Manchester City. Blaðamaður sem sérhæfir sig í liði Man City telur Orra Stein ekki vera á leið til liðsins að svo stöddu.
Morten Wieghorst, tímabundinn landsliðsþjálfari Dana í fótbolta, stýrir ekki liðinu í tveimur landsleikjum í næsta mánuði.
Englandsmeistarar Manchester City fylgjast vel með gangi mála hjá íslenska landsliðsframherjanum Orra Steini Óskarssyni.
FC Kaupmannahöfn tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Nordsjælland í dag, 3-2. Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrra mark FCK.
Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland unnu sterkan 3-2 sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Gott gengi Mikaels Neville Anderson og félaga í AGF hélt áfram þegar þeir unnu 0-4 útisigur á Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.