Seðlabankinn
33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 48 ›
Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira. Viðskipti innlent 2.12.2021 07:37
Fimmtíu milljarða viðsnúningur í viðskiptajöfnuði 13,1 milljarða króna afgangur var á viðskiptajöfnuði við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Það er 50 milljarða króna betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 12,5 milljarða króna betri en á sama fjórðungi árið 2020. 31,1 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2021. Viðskipti innlent 1.12.2021 11:30
Ekki augljóst að fjárlögin muni styðja við lágt vaxtastig Það er ekki augljóst að rekstur ríkissjóðs á næstunni, eins og hann birtist í nýju fjárlagafrumvarpi sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær, muni leggjast sérstaklega á sveif með að styðja við peningastefnu Seðlabanka Íslands í því skyni að viðhalda lægri vöxtum en ella. Innherji 1.12.2021 07:01
Mál málanna Verðbólga er mál málanna þessa dagana en eftir nokkur ár af verðstöðugleika hér á landi er hún mætt aftur með töluverðum látum. Tólf mánaða verðbólga er búin að vera í kringum 4,5% allt árið og hefur ekki verið hærri frá árinu 2013. Uppsöfnuð verðbólga frá upphafi árs 2020 er að nálgast 10%. Umræðan 29.11.2021 10:01
Fimm milljarða króna innflæði í hlutabréfasjóði og blandaða í október Nettó innflæði í hlutabréfasjóði og blandaða sjóði nam tæplega 5 milljörðum króna í október. Ef litið er aftur til áramóta hefur nettó innflæði í sjóði af þessari gerð numið ríflega 50 milljörðum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðlabanka Íslands. Innherji 26.11.2021 19:49
Fórnarlömb verðbólgunnar Þótt vaxandi verðbólga og viðsnúningur í vaxtavæntingum um heim allan eigi sér margar orsakir, er sú stærsta einfaldlega sú að viðspyrnan eftir að mestu takmörkunum vegna heimsfaraldursins var aflétt, hefur verið mun kröftugri en flestir reiknuðu með. Umræðan 26.11.2021 10:00
Hægt hefur á vexti peningamagns Hægt hefur á vexti peningamagns það sem af er ári eftir kraftmikinn vöxt á seinni hluta síðasta árs. Þetta kom fram í nóvemberhefti Peningamála, sem er gefið út af Seðlabankanum. Innherji 22.11.2021 20:00
Ásókn í breytilega vexti hefur ekki verið minni síðan í byrjun árs 2019 Í október voru 85 prósent nýrra íbúðalána til heimila með föstum vöxtum en einungis 15 prósent með breytilegum vöxtum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands um útlán í bankakerfinu. Veiting íbúðalána með breytilegum vöxtum hefur ekki verið minni frá því í janúar 2019. Innherji 22.11.2021 16:07
Seðlabankastjóri: Mikilvægt að lífeyrissjóðir geti fjárfest meira erlendis Ekki er útlit fyrir að breytingar verði gerðar strax í byrjun næsta árs til hækkunar á því 50 prósenta hámarki sem erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna mega vera sem hlutfall af heildareignum þeirra. Hlutfall erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR og Lífeyrissjóður verslunarmanna – var um mitt þetta ár komið í liðlega 42 prósent. Innherji 18.11.2021 20:31
SA vill lækka eða fresta samningsbundnum launahækkunum Samtök atvinnulífsins vilja lækka eða fresta samningsbundum launahækkunum á næsta ári til að forðast frekari vaxahækkanir og saka verkalýðshreyfinguna um ábyrgðarleysi. Forseti ASÍ segir launafólk hins vegar rétt núna vera að ná þeim kaupmætti sem glataðist í hruninu. Innlent 18.11.2021 20:00
Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri SA takast á í Pallborðinu Seðlabankastjóri varpaði sprengju inn í stöðuna á vinnumarkaði í gær þegar hann sagði óheppilegt að launafólk fengi greiddan hagvaxtarauka ofan á laun sín næsta vor. Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mæta í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi í dag til að ræða vaxandi óróa í samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Innlent 18.11.2021 11:48
Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér" „Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn? Innherji 18.11.2021 10:09
Komi ekki til greina að henda hagvaxtaraukum út um gluggann Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina. Innlent 17.11.2021 21:42
Hótun verkalýðsleiðtoga yfirlýsing um að þeir ætli að semja um verðbólgu Seðlabankastjóri telur að það hafi verið „mistök“ af hálfu aðila vinnumarkaðarins að ná ekki saman í haust um að falla frá hinum svonefnda hagvaxtarauka á næsta ári, sem tryggir launafólki hlutdeild í ávinningnum þegar landsframleiðsla á hvern íbúa eykst, en hann mun að óbreyttu virkjast og leiða til enn meiri launahækkana en áður var spáð. Innherji 17.11.2021 20:20
Seðlabankastjóri segir óheppilegt að launafólk fái hagvaxtarauka Seðlabankastjóri segir óheppilegt að laun hækki næsta vor með svo kölluðum hagvaxtarauka sem samið var um í lífskjarasamningunum. Miklar launahækkanir, hækkun á verði íbúðarhúsnæðis og hrávöru í útlöndum kyndi undir verðbólgunni. Innlent 17.11.2021 19:20
Versnandi verðbólguhorfur Verðbólguhorfur hafa versnað frá spá Seðlabanka Íslands í ágúst sem reiknar með að hún verði komin upp í 4,7 prósent undir lok þessa árs. Viðvarandi hækkun húsnæðisverðs og launa og verðs á hrávörum í útlöndum eru meginforsendurnar fyrir því að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína í morgun um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 17.11.2021 13:14
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður stýrivaxtahækkun Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,0%. Viðskipti innlent 17.11.2021 09:16
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því tvö prósent. Viðskipti innlent 17.11.2021 08:30
Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig í næstu viku og fari úr 1,5% í 1,75%. Telur deildin nokkrar líkur á 0,5 prósentustiga hækkun en að hin niðurstaðan verið ofan á. Viðskipti innlent 12.11.2021 09:06
Spá umtalsverðri hækkun verðbólgu í nóvember Greining Íslandsbanka spáir umtalsverðri hækkun ársverðbólgu og að hún mælist 5,1% í nóvember. Hún hefur ekki mælst svo mikil síðan um mitt ár 2012. Verðbólga mældist 4,5% í október en hækkandi íbúðaverð og innflutt verðbólga eru nú helstu áhrifaþættir þrálátrar verðbólgu. Viðskipti innlent 10.11.2021 10:11
Senda Seðlabankanum tóninn og hyggjast sækja hverja einustu krónu Verkalýðshreyfingin mun ekki veita neinn afslátt í komandi kjaraviðræðum og hyggst sækja hverja einustu viðbótarkrónu sem heimilin hafa greitt í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans. Viðskipti innlent 26.10.2021 22:25
Við munum sækja hverja einustu krónu Við gerð síðustu kjarasamninga var litið til þess að samningar hefðu í för með sér lækkun vaxta. Við sömdum því með hófstilltari hætti til að leggja grunn að því að auka ráðstöfunartekjur launafólks með fleiri þáttum en beinum launahækkunum. Skoðun 26.10.2021 12:31
SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“ Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða. Viðskipti innlent 22.10.2021 18:25
Þéttingarstefnan skapi íbúðaskort í Reykjavík Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins í Reykjavík segja þéttingarstefnu meirihutans í húsnæðismálum eiga sinn þátt í að skapa skort á nýjum íbúðum í borginni. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir hins vegar met hafa verið slegið í fjölda íbúða á undanförnum árum. Innlent 21.10.2021 19:20
Tekist var á um húsnæðismálin í Pallborðinu Í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 12:30 fær Heimir Már Pétursson fréttamaður til sín Pawel Bartoszek formann skipulags- og samgönguráðs, Eyþór Arnalds oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og Kolbrúnu Baldursdóttur oddvita Flokks fólksins í borgarstjórn til að ræða deildar meiningar um stöðu húsnæðismála og framboð á nýjum íbúðum í Reykjavík. Innlent 21.10.2021 11:41
Vildu aftur ganga lengra en seðlabankastjóri Tveir af fimm nefndarmönnum í peningastefnunefnd Seðlabankans vildu hækka stýrivexti meira en gert var við síðustu vaxtákvörðun. Þann 6. október tilkynnti nefndin að vextir yrðu hækkaðir úr 1,25 prósentum í 1,50 prósent. Viðskipti innlent 20.10.2021 17:04
Telja að stýrivextir nái 4,25 prósentum árið 2023 Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti á þessu og næsta ári. Reiknað er með samfelldum hagvexti næstu þrjú árin, 5,5% á næsta ári, 1,7% árið 2023 og 2% árið 2024. Áætlað er að verg landsframleiðsla nái sama stigi og fyrir faraldurinn undir lok næsta árs. Viðskipti innlent 20.10.2021 09:32
Kennir vaxtalækkunum um hækkun húsnæðisverðs Gylfi Zoega, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, segir ekki rétt að vextir hafi verið hækkaðir á þessu ári vegna þess að lóðaskortur hafi haft í för með sér hækkun húsnæðisverðs. Viðskipti innlent 16.10.2021 16:01
Þörf á „nýju Breiðholti“ til að leysa vandann Formaður VR segir að húsnæðismálin verði þungamiðja komandi kjarabaráttu. Neyðarástand blasi við ef húsnæðisþörfinni verður ekki mætt, sem nemi nýju Breiðholti að hans mati. Innlent 12.10.2021 11:34
Minna eftir í veski landsmanna út af stöðunni í Reykjavík Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir málfutning borgarstjóra um 3000 byggingarlóðir villandi. Alltof fáar íbúðir séu reistar á hverju ári í borginni sem komi niður á ráðstöfunartekjum heimilanna. Innlent 11.10.2021 18:31