
Samgönguslys

Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax
Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax.

Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna
Umferðarslys varð við Geldingaá á Vesturlandsvegi og búast má við umferðartöf.

Ölvaður ökumaður velti bíl í Breiðholti
Lögreglunni var tilkynnt um ölvaðan mann sem sýndi ógnandi tilburði gagnvart vegfarendum í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt.

Segir fáránlegt að enginn axli ábyrgð á banaslysinu
Hópur mótorhjólamanna hefur efnt til mótmæla næstkomandi mánudag til að mótmæla því að enginn ætli að bera ábyrgð á mistökum við vegagerð, sem leiddu til banaslyss tveggja mótorhjólamanna á Kjalarnesi fyrir fjórum árum. Hópurinn ætlar að hittast á Korputorgi klukkan 19, aka saman upp á Kjalarnes, og stöðva þar hjólin á báðum akreinum í stutta stund í mótmælaskyni. Skipuleggjandi segir fáránlegt að enginn taki ábyrgð.

Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang
Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum.

Einn alvarlega slasaður eftir slysið
Einn er alvarlega slasaður eftir bílslys sem varð á Holtavörðuheiði síðdegis í gær þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman.

Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu
Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum.

Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt
Stjórnendur Boeing hafa samþykkt að játa sök og greiða 243 milljónir dala, jafnvirði tæpra 34 milljarða króna, í sekt vegna brota fyrirtækisins á samkomulagi við yfirvöld.

Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður
Ökumaður mótorhjóls, sem hafnaði utanvegar við Gígjukvísl í gær, er á lífi en töluvert slasaður.

Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys
Alvarlegt umferðarslys varð við Gígjukvísl á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður mótorhjóls féll af hjólinu og hafnaði utan vegar.

Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði
Slys varð á Norðurlandsvegi í Vatnsskarði í kvöld þegar jeppi hafnaði utanvegar. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Akureyri.

Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest
Guðmundur Erlendsson neyddist til nauðhemla á bifhjóli sínu er hann ók eftir þjóðvegi eitt um Langadal í átt að Akureyri á sunnudagskvöldið vegna bifreiðar á vegarhelmingi hans sem ók á móti honum úr gagnstæðri átt. Bifreiðin hafi þá ætlað að taka fram úr bílalest á hinum vegarhelmingnum.

Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu
Börkur Hrólfsson rútubílstjóri var á leið til Keflavíkur um tvöleytið eftir hádegi í gær, þegar sofandi ökumaður ók í veg fyrir hann rétt hjá álverinu í Straumsvík. Engin meiriháttar slys urðu á fólki, en Börkur segir algjörri heppni, loftpúðum og bílbeltum að þakka að ekki hafi farið verr. Hann segir of algengt að ósofnir ferðamenn ætli sér að aka langar vegalengdir eftir langt ferðalag til landsins.

Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði
Hjólhýsi fauk út af veginum í sunnanverðum Borgarfirði á fjórða tímanum í dag. Nokkrar tafir voru á umferð í kjölfarið.

Sofnaði eftir fjórtán mínútna akstur og olli banaslysi
Erlend kona á ferð um landið lést í alvarlegu umferðarslysi á Snæfellsnesvegi norðan Hítarár þegar þegar annar erlendur ferðamaður sem ók Nissan-bifreið úr gagnstæðri átt sofnaði við akstur, ók yfir á rangan vegahelming og framan á húsbílinn.

Hvorugt þeirra man eftir slysinu
Karlmaður hlaut í dag þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til eins árs, í Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna ofsaaksturs í Öxnadal í byrjun nóvember árið 2020, en bíll mannsins endaði utan vegar. Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bílnum slösuðust, en hvorugt þeirra man eftir slysinu.

Fullir á rafhlaupahjóli mega búast við sektum
Ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður með breytingu á umferðarlögum sem samþykkt voru fyrir frestun Alþingis fram á haust. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja.

Fjórir fluttir á slysadeild eftir árekstur í Hvalfjarðargöngum
Tveggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngum um klukkan eitt. Fjórir slösuðust og voru fluttir á slysadeild í Reykjavík, en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er enginn þeirra alvarlega slasaður.

Hvalfjarðargöngum aftur lokað
Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum á nýjan leik, að þessu sinni vegna umferðaróhapps.

Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið
Bíl var ekið á staur á Hafnarfjarðarvegi í Garðarbæ skömmu fyrir fimm í dag. Einn var í bílnum og engin slys urðu á fólki.

Flúðu vettvang eftir harðan árekstur
Fólksbifreið var ekið í veg fyrir jeppa á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að jeppinn valt nokkra hringi. Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar flúðu vettvang en lögreglu tókst að handtaka þá skömmu síðar.

Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi
Stjörnukokkurinn og Íslandsvinurinn Gordon Ramsay minnir fylgjendur sína á að hjóla ávallt með hjálm í nýrri færslu á X. Hjálmurinn hafi bjargað honum þegar hann lenti í hættulegu reiðhjólaslysi í Connecticut-ríki í Bandaríkjunum í vikunni.

Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins
Rútuslysið sem varð við Fagranes í Öxnadal átti sér stað á vatnsverndarsvæði Norðurorku. Mengunarslys, nánar tiltekið olíuleki í Öxnadalsá, varð vegna rútuslyssins.

Tveimur haldið sofandi vegna slyssins
Tuttugu og tveir erlendir ferðamenn í rútunni sem valt við Öxnadal í gær. Fimm voru fluttir með þyrlu og sjúkraflugvélum á Landspítalann og þar á gjörgæsludeild. Tveimur er haldið sofandi í öndunarvél en eru sagðir vera með stöðug lífsmörk.

Öxnadalsheiði opin á ný
Vegurinn um Öxnadalsheiði var opnaður á ný á fimmta tímanum í nótt. Honum var lokað í gærkvöldi eftir að alvarlegt rútuslys varð á veginum.

Of snemmt að kenna bikblæðingum um
Vegagerðin varaði við bikblæðingum á veginum um Öxnadalsheiði í dag. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að ekki megi gefa sér þær forsendur að blæðingarnar hafi valdið slysinu.

Alvarlegt rútuslys í Öxnadal
Hópslysaáætlun Almannavarna hefur verið virkjuð vegna rútuslyss sem varð í Öxnadal. Sömuleiðis hafa tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og tvær flugvélar verið kallaðar út til sjúkraflugs. Lögreglan segir slysið alvarlegt. Rútan hafi oltið og fjöldi farþega sé slasaður.

Fimm bíla árekstur á Akureyri
Fimm bíla árekstur varð á Hörgárbraut á Akureyri á öðrum tímanum. Um er að ræða aftanákeyrslu sem varð á leið af hringtorgi og inn í bæinn.

Einn fluttur á slysadeild eftir að bíll endaði utan vegar
Bíl var ekið af Elliðavatnsvegi, sem er einnig þekkt sem Flóttamannaleið, í morgun og var einn fluttur á slysadeild.

Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi
Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi í Borgarfirði, skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal, var Íslendingur á þrítugsaldri. Hann fæddist árið 1999 og var búsettur hér á landi.