Keflavíkurflugvöllur
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 44 ›
Kormákur & Skjöldur og Epal opna í Leifsstöð Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar og hönnunarverslunin Epal opnuðu í dag nýja verslun í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Verslunin verður í sama rými og verslun Eymundssonar var áður. Viðskipti innlent 12.7.2022 16:07
Bandaríkjamenn bera af í brottförum Alls voru brottfarir erlendra farþega frá landinu í gegnum Keflavíkurflugvöll 176 þúsund talsins í júní. Aðeins fjórum sinnum hefur meiri fjöldi ferðamanna farið í gegnum flugvöllinn í júnímánuði síðan mælingar hófust. Innlent 11.7.2022 18:31
Fjórfalt fleiri flugferðum aflýst Fjórfalt fleiri flugferðum frá Keflavíkurflugvelli var aflýst í júní en á sama tíma árið 2019. Innlent 11.7.2022 11:07
Bílastæðið muni fyllast í júlí Líkur eru á því að bílastæðið við Keflavíkurflugvöll muni fyllast í júlí. Í tilkynningu frá Isavia eru farþegar hvattir til að bóka bílastæði með góðum fyrirvara og kanna notkun annarra samgöngumáta. Innlent 8.7.2022 16:37
Eins árs fangelsi fyrir smygl á lítra af amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot eftir að hafa reynt að smygla tæpum lítra af vökva sem innihélt amfetamínbasa til Íslands með flugi frá Varsjá. Maðurinn hafði samþykkt að flytja efnið til landsins gegn greiðslu. Innlent 4.7.2022 11:04
Lýstu yfir hættustigi á Keflavíkurflugvelli Flugvél á leiðinni frá Frankfurt til Chicago lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir örskömmu síðan. Hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli fyrir lendinguna. Innlent 30.6.2022 21:01
Íslendingar slá alls konar met í ferðalögum Íslendingar eru að slá öll met í ferðalögum til útlanda og í fjölda gistinátta innanlands. Forstjóri Icelandair telur að tafir á flugvöllum víða um heim vegna manneklu lagist ekki fyrr en í vetur. Innlent 28.6.2022 21:01
„Pop-up verslun“ og nýr veitingastaður opnuðu á Keflavíkurflugvelli Tvær nýjar verslanir og veitingastaður opnuðu á Keflavíkurflugvelli í dag, en Isavia auglýsti nýverið laus svokölluð pop-up rekstrarrými til leigu á vellinum. Reiknað er með að fleiri pop-up veitingastaðir og verslanir opni á Keflavíkurflugvelli á næstu vikum. Viðskipti innlent 24.6.2022 13:35
Þórunn ný forstöðumaður hjá Isavia Þórunn Marinósdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Viðskiptatekna og sölu hjá Isavia. Viðskipti innlent 22.6.2022 11:01
Airport Direct segir hegðun bílstjórans óásættanlega Flautuleikaranum Pamelu De Sensi brá heldur í brún um borð í rútu Airport Direct í gær þegar hún sá bílstjórann ítrekað líta niður á síma sinn á meðan akstri stóð. Framkvæmdastjóri Airport Direct segir hegðunina vera óásættanlega og að rætt verði við starfsmanninn. Innlent 19.6.2022 12:17
„Ég er algjörlega sammála, þetta er bara viðbjóðslegt“ Forstjóri flugfélagsins Play tekur undir að hótel sem farþega var boðið eftir að flugferð félagsins var aflýst hafi verið óboðlegt. Hann segir lítið annað hægt að gera en að biðjast afsökunar og læra af reynslunni. Innlent 14.6.2022 23:40
Eiga rétt á fullri endurgreiðslu og bótum Tugir kvartana hafa borist Neytendasamtökunum síðustu daga eftir óvenjumikið af aflýsingum á flugferðum. Formaður samtakanna segir flugfélögin oft sleppa því að upplýsa fólk um fullan rétt sinn á skaðabótum sem sé mun meiri en flestir átti sig á. Neytendur 13.6.2022 20:30
Aflýstu flugi tuttugu mínútum fyrir áætlaða brottför Flugi flugfélagsins Play frá Keflavík til Gautaborgar var aflýst í morgun, tuttugu mínútum fyrir brottför. Innlent 13.6.2022 08:30
Rautt neyðarstig á Keflavíkurflugvelli í nótt Lýst var yfir rauðu neyðarstigi á Keflavíkurflugvelli í nótt þegar farþegaþota á leið frá Malaga til Keflavíkur lenti í vandræðum. Vélin lenti í Keflavík klukkan rúmlega hálf tvö í nótt og neyðarstigi aflétt í kjölfarið. Innlent 13.6.2022 06:16
Fjöldi brottfara í maí aldrei verið meiri Brottfarir Íslendinga í maí voru um 65 þúsund talsins og hafa ekki mælst svo margar í maí síðan mælingar hófust. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu. Þá voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um 112 þúsund talsins sem er fimmti fjölmennasti maímánuður frá því að mælingar hófust. Innlent 10.6.2022 10:04
Lækkun afsláttar í fríhöfn liður í aðgerðum gegn þenslu Fjármála- og efnahagsráðherra lagði tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir fjárlaganefnd í dag, sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Meðal tillagðra breytinga á tekjuhlið ríkissjóðs er lækkun á afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi í fríhöfninni. Innlent 9.6.2022 21:09
Tengiflugskerfið til Bandaríkjanna umbreytir rekstri Play Flugfélagið Play flutti rúmlega 56.600 farþega í maí sem er 58% aukning frá aprílmánuði. Farþegafjöldinn í maí var jafnmikill og á öllum fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Play segir tengiflugskerfi til Bandaríkjanna umbreyta rekstrinum og að það gangi vel að koma sér fyrir á flugmarkaðnum. Viðskipti innlent 7.6.2022 13:09
Höfðu ekki hugmynd um Strætó á Keflavíkurflugvelli Flestir þeirra ferðamanna sem Vísir ræddi við á Keflavíkurflugvelli í vikunni virtust ekki hafa hugmynd um að til staðar væru almenningssamgöngur að nafni Strætó sem gæti ferjað þau til höfuðborgarinnar. Flest voru búin undir hátt verðlag og sumir vissu vel af veðursviptingum hérlendis og voru tilbúin í sumar af eintómri rigningu. Lífið 5.6.2022 12:19
Air Canada hefur sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli á ný Air Canada hefur hafið sumarflug sitt milli Keflavíkurflugvallar og Toronto og Montreal á ný en flugfélagið flaug seinast til Íslands árið 2019. Flogið verður fjórum sinnum í viku til og frá Toronto og þrisvar sinnum í viku til og frá Montreal fram í október. Viðskipti innlent 3.6.2022 13:12
Mikil óánægja með samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli Mikil óánægja ríkir vegna þeirra ferðamöguleika sem til staðar eru til og frá Keflavíkurflugvelli. Rútuferð er nánast eini möguleikinn fyrir þá sem kjósa að ferðast ekki á einkabíl og flugvallarbílastæðið á það til að fyllast. Innlent 2.6.2022 07:00
„Það mun ábyggilega taka nokkur ár að ná fyrra trausti“ Mannauðsstjóri ISAVIA telur að það muni taka nokkur ár að ná því trausti sem fólk hafi áður borið til flugvalla sem vinnustað eftir þrengingarnar sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum. Fylgifiskur sóttvarnatakmarkana sem ýmist voru hertar eða víkkaðar út var skert starfshlutfall og uppsagnir. Viðskipti innlent 1.6.2022 13:20
Hildur Björk stýrir markaðsmálum hjá Isavia Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:33
Grunaður um mansal og að hafa brotið kynferðislega á ungum dreng Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði síðastliðinn fimmtudag karlmann í vikulangt áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um mansal og að hafa brotið kynferðislega á dreng. Innlent 19.5.2022 14:32
Heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til Raleigh-Durham í Norður-Karólínu Hjónin Peggy Oliver Helgason og Sigurður Helgason voru sérstakir heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til borganna Raleigh og Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem Icelandair kynnir nýjan áfangastað. Viðskipti innlent 13.5.2022 11:20
Gera ráð fyrir 5,7 milljónum farþega Farþegaspá Isavia fyrir árið 2022 gerir ráð fyrir að 5,7 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll í ár. Gerir spáin ráð fyrir að í ár verði fjöldi farþega 79 prósent af þeim fjölda sem fór um völlinn árið 2019. Viðskipti innlent 11.5.2022 08:01
Fregnir um opnun Wendy's reyndust falskar Ólíklegt má telja að skyndibitakeðjan Wendy's muni opna útibú á Íslandi á næstunni. Fréttatilkynning þess efnis barst þó fréttastofu í morgun. Við nánari athugun virðist um einhverskonar gjörning að ræða. Viðskipti innlent 3.5.2022 10:42
„Ef við setjum upp örbylgjuofn og samlokugrill getum við sótt um vínveitingaleyfi?“ Framkvæmdastjóri Hagkaups segir ekki hafa komið til umræðu hjá verslununum að sækja um vínveitingaleyfi. Hann veltir þó fyrir sér hvort verslanirnar gætu selt áfengi ef þær settu upp samlokugrill og örbylgjuofn og seldu veitingar á staðnum. Innlent 28.4.2022 14:04
Ljúka breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur Langþráð breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns er á leið í útboð og stefnt að því að fimm milljarða króna framkvæmdir hefjist um mitt sumar. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Reykjavíkur og Suðurnesja. Innlent 27.4.2022 22:22
Verslun 10-11 í Leifsstöð selur bjór í flöskum Verslun 10-11 í komusalnum í Leifsstöð hefur fengið áfengissöluleyfi. Verslunin selur belgíska bjórinn Stella Artois en þó aðeins með 4,6 prósenta vínstyrk en ekki 5 prósenta eins og í vínbúðum landsins. Viðskipti innlent 27.4.2022 15:23
Icelandair boðar aftur tengiflug milli Akureyrar og Keflavíkur Icelandair stefnir að því hefja á ný flugferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar og stórauka samtengingu innan- og utanlandsflugs. Viðskipti innlent 26.4.2022 15:59