Hælisleitendur Fólk eins og við Við í Vinstri grænum teljum að fjölbreytileiki sé styrkur hvers samfélags og því eigi íslenskt samfélag að taka þeim fagnandi sem hingað koma, óháð uppruna þeirra eða þeim forsendum sem dvölin byggir á. Skoðun 8.9.2021 14:30 Gagnrýna að settur forstjóri Útlendingastofnunar sé nú formaður eftirlitsnefndar Tólf félagasamtök gagnrýna harðlega skipun Þorsteins Gunnarssonar í embætti formanns kærunefndar útlendingamála og fara fram á að hann segi af sér vegna vanhæfis. Innlent 6.9.2021 12:32 Þorsteinn nýr formaður Kærunefndar útlendingamála Þorsteinn Gunnarsson er nýr formaður Kærunefndar útlendingamála að skipan Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þorsteinn tekur við embættinu þann 1. september en hann var valinn úr sjö manna hópi umsækjenda. Hann hefur starfað í fjórtán ár hjá Útlendingastofnun, meðal annars sem settur forstjóri. Innlent 27.8.2021 16:53 Óléttri konu með smábarn vísað úr landi Sýrlensk fjölskylda segir að ekkert bíði sín annað en örbirgð og vonleysi á götum Grikklands, eftir að Útlendingastofnun tilkynnti þeim í síðustu viku um að umsókn þeirra um hæli verði ekki tekin til meðferðar. Hjónin óttast um framtíð tveggja ára dóttur sinnar og ófædds barns sem konan ber undir belti. Innlent 19.7.2021 19:25 Tökum vel á móti fólki Skoðun 16.7.2021 12:44 „
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 33 ›
Fólk eins og við Við í Vinstri grænum teljum að fjölbreytileiki sé styrkur hvers samfélags og því eigi íslenskt samfélag að taka þeim fagnandi sem hingað koma, óháð uppruna þeirra eða þeim forsendum sem dvölin byggir á. Skoðun 8.9.2021 14:30
Gagnrýna að settur forstjóri Útlendingastofnunar sé nú formaður eftirlitsnefndar Tólf félagasamtök gagnrýna harðlega skipun Þorsteins Gunnarssonar í embætti formanns kærunefndar útlendingamála og fara fram á að hann segi af sér vegna vanhæfis. Innlent 6.9.2021 12:32
Þorsteinn nýr formaður Kærunefndar útlendingamála Þorsteinn Gunnarsson er nýr formaður Kærunefndar útlendingamála að skipan Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þorsteinn tekur við embættinu þann 1. september en hann var valinn úr sjö manna hópi umsækjenda. Hann hefur starfað í fjórtán ár hjá Útlendingastofnun, meðal annars sem settur forstjóri. Innlent 27.8.2021 16:53
Óléttri konu með smábarn vísað úr landi Sýrlensk fjölskylda segir að ekkert bíði sín annað en örbirgð og vonleysi á götum Grikklands, eftir að Útlendingastofnun tilkynnti þeim í síðustu viku um að umsókn þeirra um hæli verði ekki tekin til meðferðar. Hjónin óttast um framtíð tveggja ára dóttur sinnar og ófædds barns sem konan ber undir belti. Innlent 19.7.2021 19:25
„Til skammar fyrir íslensk stjórnvöld“ Mótmælendur fylktu liði frá Austurvelli að lögreglustöðinni á Hverfisgötu í dag og gagnrýndu framferði lögreglu í húsnæði Útlendingastofnunar í síðustu viku. Þar hafi hælisleitendur verið beittir grófu ofbeldi sem sé til skammar fyrir íslensk stjórnvöld. Innlent 11.7.2021 21:30
Mótmælt á Austurvelli: „Út með Útlendingastofnun“ Baráttukonan Sema Erla Serdar vill að Útlendingastofnun verði lögð niður. Hún segir að í tíð sitjandi ríkisstjórnar hafi málefni flóttamanna og hælisleitenda færst til verri og ómannúðlegri vegar. Þeirri þróun og harðræði við hælisleitendur er mótmælt á Austurvelli í dag. Innlent 11.7.2021 12:08
Krefjast þess að Útlendingastofnun verði lögð niður Fern samtök sem huga að hagsmunum flóttafólks á Íslandi hafa boðað til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, sunnudag, klukkan 13. Innlent 10.7.2021 08:25
Solaris kvarta til Umboðsmanns vegna Útlendingastofnunar og lögreglu Stjórn Solaris - hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur sent tilkynningu til nefndar um eftirlit með lögreglu um „ámælisverða starfshætti lögreglu, starfsaðferð og framkomu í starfi“ vegna aðgerðar á vegum Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda í húsakynnum stofnunarinnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júlí. Innlent 9.7.2021 21:31
Hafna því alfarið að hafa beitt hælisleitendurna ofbeldi eða óhóflegu valdi Embætti ríkislögreglustjóra vísar á bug ásökunum um að lögregla hafi beitt ofbeldi við handtöku á tveimur hælisleitendum líkt og haldið hefur verið fram af fólki í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Innlent 8.7.2021 18:59
Neituðu tilboði Útlendingastofnunar og óttast framhaldið Útlendingastofnun boðaði hælisleitendur á fund sinn í morgun og bauð þeim fjármagn til að snúa aftur til heimalands síns. Kúrdar sem voru meðal þeirra hyggjast ekki taka tilboðinu. Þeir óttast framhaldið eftir að tveir palestínskir flóttamenn voru fluttir úr landi með valdi. Innlent 8.7.2021 14:01
Fluttur á bráðadeild með áverka eftir handtökuna Annar Palestínumannanna sem lögregla handtók í húsnæði Útlendingastofnunar á þriðjudagsmorgun var fluttur á bráðadeild Landspítala með áverka eftir handtökuna, meðal annars á höfði. Hann fullyrðir sjálfur að hann hafi margoft verið sprautaður niður án samþykkis. Innlent 8.7.2021 13:00
Útlendingastefna andskotans í skjóli Vinstri grænna Tveir palestínskir menn voru leiddir í gildru núna í vikunni samkvæmt fréttum, lokkaðir í húsakynni Útlendingastofnunar á fölskum forsendum svo senda mætti þá fyrirvaralaust úr landi. Skoðun 8.7.2021 13:00
Lögregla hafnar því að hafa notað rafbyssu við handtöku hælisleitendanna Lögreglan þvertekur fyrir að hafa notað rafbyssu við handtöku á tveimur hælisleitendum í húsakynnum Útlendingastofnunar í gær. Þeir voru sendir úr landi til Grikklands í morgun. Innlent 7.7.2021 18:07
Segja lögreglu hafa beitt rafbyssu og eytt myndböndum sjónarvotta Tveir palestínskir flóttamenn voru handteknir í móttöku Útlendingastofnunar í gær eftir að þeir höfðu verið boðaðir þangað til að sækja bólusetningarvottorð sín. Þeir voru fluttir af staðnum með valdi og sendir úr landi í morgun. Sjónarvottur sakar lögreglu um að hafa tekið af sér símann og eytt myndbandi sem var tekið upp. Innlent 7.7.2021 11:58
Hælisleitendur hafi verið blekktir til að þiggja bólusetningu og svo beittir hörku Tveir palestínskir hælisleitendur voru handteknir í móttöku Útlendingastofnunar í gær en til stendur að vísa þeim úr landi. Frá þessu greinir aðgerðahópurinn Refugees in Iceland. Innlent 7.7.2021 06:31
Hvar er afsökunarbeiðnin, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir? Að kunna að biðjast afsökunar er eiginleiki sem talinn er virðingarverður í siðmenntuðu samfélagi. Fólk sem er öruggt í eigin skinni gengst iðulega við mistökum sínum og biður hlutaðeigandi aðila afsökunar. Þetta er talið svo mikilvægt að reynt er að kenna börnum þessa háttsemi strax á unga aldri. Skoðun 1.7.2021 15:30
Að sjá fórnarlamb sem fórnarlamb Munið þið eftir máli Marte Dalelv frá árinu 2013? Marte var norsk, þá 24 ára gömul kona er hún kærði samstarfsmann sinn fyrir nauðgun í Dubai. Hún leitaði til lögreglu og bjóst við því að löggæslukerfið myndi vernda hana og réttindi hennar. Skoðun 22.6.2021 07:01
Kallar eftir afsögn dómsmálaráðherra Skaða- og miskabótamál verður höfðað gegn Útlendingastofnun fyrir að hafa svipt flóttamenn þjónustu og húsnæði. Samkvæmt niðurstöðu kærunefndar útlendingamála var það óheimilt og lögmaður telur að dómsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna málsins. Innlent 16.6.2021 17:27
Hælisleitendur sem neituðu að fara í Covid-próf fá þjónustu á ný Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður þjónustu til palestínsks manns sem neitað hafði að undirgangast próf við kórónuveirunni áður en flytja átti hann til Grikklands. Innlent 15.6.2021 15:25
Miðflokkurinn hafnar eflingu á móttöku flóttamanna Það er gömul saga og ný að sum góð mál klárist ekki fyrir þinglok á Alþingi. Í ár var engin undantekning á því, en sum góð mál komust því miður ekki til framkvæmda. Skoðun 15.6.2021 13:31
Lífshættulegt frumvarp dómsmálaráðherra Haustið 2020 voru fjögur egypsk börn, það elsta 12 ára gamalt, í felum frá íslenska ríkinu sem ætlaði að henda þeim úr landi en fjölskyldan kom hingað í leit að betra lífi. Við njótum þeirra forréttinda að búa í landi þar sem við þurfum ekki að flýja með börnin okkar í skjóli nætur vegna þess að við teljum þau vera í lífshættu muni þau búa hér enn. Skoðun 10.6.2021 07:31
Að vernda virðuleika flóttafólks Hvernig getur kirkjan aðstoðað flóttafólk - umsækjendur um alþjóðlega vernd (eða hælisleitendur)? Af hverju ætti hún að gera það? Þessar tvær spurningar eru meginleiðarstef okkar sem störfum á vegum kirkjunnar að málefnum flóttafólks. Skoðun 8.6.2021 11:31
Stelpur rokka, Röskva og Samtökin '78 telja ummæli Þórólfs ala á ótta og fordómum Tuttugu félagasamtök úr ólíkum áttum telja að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi alið á ótta og fordómum í garð flóttafólks og hælisleitenda í svörum sínum við spurningum blaðamanns um sjö smitaða einstaklinga fyrir helgi utan sóttkvíar. Allir voru hælisleitendur á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.6.2021 14:07
Logi fordæmir danska jafnaðarmenn Þeir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, voru gestir í Sprengisandi í morgun. Þar tókust þeir á um nýja stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Innlent 6.6.2021 17:08
Danskir kratar með rós í hatti Danska þjóðþingið samþykkti í vikunni lög sem heimila að umsækjendur um alþjóðlega vernd verði sendir til ríkis utan Evrópu þar sem þeir bíða niðurstöðu umsókna sinna. Kosningaloforð danskra jafnaðarmanna frá 2019 um móttökustöð hælisleitenda utan Danmerkur færist nær því að verða að veruleika. Skoðun 6.6.2021 09:01
Hópsýkingin tengd gömlum smitum sem ekki hefur tekist að rekja Innanlandssmit kórónuveirunnar sem greindust í gær tengjast öll hópsýkingu meðal hælisleitenda á höfuðborgarsvæðinu. Sýkingin hefur verið rakin til eldri smita, sem ekki hefur tekist að rekja til landamæra. Innlent 5.6.2021 12:47
Læknir braut lög með því að senda ófríska konu úr landi Landlæknir hefur úrskurðað um að læknir á vegum Útlendingastofnunar hafi brotið lög og reglur með útgáfu vottorðs um að albönsk kona sem gengin var 36 vikur á leið mætti fara í flug. Þetta segir lögmaður albönsku konunnar sem mun taka málið lengra. Innlent 4.6.2021 18:17
Hópsýking hjá hælisleitendum Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Um er að ræða hópsmit hjá hælisleitendum á höfuðborgarsvæðinu að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Innlent 4.6.2021 11:39
Sigmundur Davíð vill feta flóttamannaleið Dana Formaður Miðflokksins hvetur íslensk stjórnvöld að fara sömu leið og Danir, sem samþykktu lög í dag sem heimila að hælisleitendur verði vistaðir í öðru landi á meðan þeir bíða niðurstöðu vegna umsókna sinna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandið hafa áhyggjur af stefnu Dana. Innlent 3.6.2021 19:46