Kjaramál
161 162 163 164 165 ›
Tugir fatlaðra barna án vistunar Um 75 fötluð börn, sem stunda nám í Öskjuhlíðarskóla eru á köldum klaka í yfirstandandi kennaraverkfalli. Þau fá enga skóladagvist og geta ekki farið í sameiginlega gæslu. Verkfallið veldur miklu róti í lífi fötluðu nemendanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:40
Illskiljanleg kjaradeila Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri segir að upp sé komin mjög erfið staða í viðræðum kennara og sveitarfélaga. ,,Það ber mikið á milli aðila og ég tel að það sé ógjörningur fyrir sveitarfélögin að verða við kröfum kennara. Það bætir ekki úr skák að umræðan um kröfugerðina er illskiljanleg venjulegu fólki." Innlent 13.10.2005 14:40
Engar aðgerðir að sinni Kennarar ætla ekki að grípa til aðgerða vegna meintra verkfallsbrota að sinni, af tillitssemi við börnin. Þeir segja fyrirtæki standa fyrir kennslu í íþróttahúsi í Mosfellsbæ, sem sé klárt verkfallsbrot, og svíður sárt að þar skuli starfa nemi í Kennaraháskólanum. Innlent 13.10.2005 14:40
Stál í stál Mikið ber í milli í deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna og sáttafundur hefur ekki verið boðaður fyrr en á fimmtudag. Kennarar lögðu fram sáttatillögu sem þeir töldu hafa 16 prósenta kostnaðarhækkun í för með sér fyrir sveitarfélögin. Launanefnd sveitarfélaga taldi hækkunina nær 24 prósentum. Innlent 13.10.2005 14:40
Foreldrar aðstoða í Ísaksskóla Vökul augu verkfallsvarða fylgdust grannt með foreldrum sem fylltu upp í kennslustundir barna í Ísaksskóla í morgun. Skólinn er meðal þeirra einkaskóla sem starfa í verkfallinu en það gerist með hjálp foreldra. Innlent 13.10.2005 14:40
Aðför að stéttarfélögum landsins Formaður Sjómannasambandsins segir að samningur áhafnarinnar á togaranum Sólbaki EA og útgerðarfélagsins Brims, um stofnun einkahlutafélags um rekstur skipsins til að sniðganga kjarasamninga, sé aðför að stéttarfélögum í landinu. Innlent 13.10.2005 14:40
Undanþágubeiðnir vegna verkfalls Um tíu undanþágubeiðnir hafa borist vegna verkfalls grunnskólakennara, bæði frá einstaklingum og skólum. Svo virðist sem bið verði á svörum þar sem ekki hefur tekist að koma saman svokallaðri undanþágunefnd. Innlent 13.10.2005 14:40
Barnagæslan verkfallsbrot Kennarar segja skipulagða barnagæslu fyrirtækja á nokkrum stöðum meðan á verkfalli stendur vera verkfallsbrot. Þeir eru nú að íhuga til hvaða aðgerða á að grípa. Mjög mikil aðsókn er í gæsluna og komast færri að en vilja. Innlent 13.10.2005 14:40
Höfnuðu lokaútspili kennara Grunnskólakennarar segja Launanefnd sveitarfélaga hafa hafnað lokaútspili kennara um skammtímasamning og þar með sé sú hugmynd ekki lengur á borðinu. Verkfall skall á um miðnætti og verður verkfallsmiðstöð opnuð í fyrramálið í gamla Karphúsinu við Borgartún 22. Innlent 13.10.2005 14:40
Fáum ekki aðstoð verkfallssjóðs Systurnar, Júlíana Ósk og Guðmunda Guðmundsdætur, segja barnapössun vegna kennaraverkfallsins bjargast fyrstu dagana en málið farið virkilega að vandast ef teygist á verfallinu. Sjötugur faðir systranna, Guðmundur Árni Bjarnason, ætlar að gæta fjögurra barnabarna sinna í verkfallinu en fyrir passar hann yngsta barnabarnið. Innlent 13.10.2005 14:40
Aðgerðir gegn leikjanámskeiðum Skipulögð starfsemi eins og leikjanámskeið á starfstíma kennara er verkfallsbrot að mati Kennarafélagsins. Búast má við aðgerðum, enda lítur félagið svo á að gengið sé inn á verksvið kennara. Innlent 13.10.2005 14:40
Lág laun leikskólakennara Daglaun leikskólakennara eru um 30 þúsund krónum lægri en grunnskólakennara á mánuði. Leikskólakennarar setja fram kröfur um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun í kjaraviðræðum við ríkið. Innlent 13.10.2005 14:40
Víðtækasta verkfall um árabil Víðtækasta verkfall á Íslandi um langt árabil er brostið á. Vinnustöðvun 4300 kennara snertir með beinum hætti yfir þrjátíu þúsund fjölskyldur með börn á grunnskólaaldri. Innlent 13.10.2005 14:40
Kostnaður hækkar um 10 milljarða Launakostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólakennara fer úr 16 í 26 milljarða króna á ári, ef gengið verður að kröfum kennara, samkvæmt útreikningum Launanefndar sveitarfélaganna. Enginn fundur verður í deilunni fyrr en á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 14:40
Kennarar með 3.000 krónur á dag Kennarar fá 3.000 krónur fyrir hvern virkan dag í verkfalli. Um 900 milljónir eru í verkfallssjóði Kennarasambands Íslands. Allir samningar sambandsins eru lausir og segir Árni Heimir Jónsson, formaður stjórnar Vinnudeilusjóðs KÍ, greiðslur úr sjóðnum verða endurskoðaðar, vari verkfall kennara lengur en fjórar vikur. Innlent 13.10.2005 14:40
Hækkuðu kröfurnar á lokasprettinum Launanefnd sveitarfélaga segir grunnskólakennara hafa hækkað kröfur sínar verulega rétt fyrir boðað verkfall. Á heimasíðu Sambands sveitarfélaga segir að kröfur kennara hefðu þýtt 8,7 til 10,4 milljarða króna kostnaðarauka á ársgrundvelli. Heildarlaunakostnaður sveitarfélaga vegna grunnskólakennara á þessu ári nemur 16,2 milljörðum. Innlent 13.10.2005 14:40
Hver dagur púsluspil "Það verður að taka einn dag í einu og púsla saman hverjum degi fyrir sig," Hanna Lára Steinsson, einstæð tveggja barna móðir, um stöðu margra á meðan kennaraverkfalli stendur. Innlent 13.10.2005 14:40
Verkfallsverðir á ferðinni Fjölmörg dæmi eru um að fyrirtæki og stofnanir hafi skipulagt einhverskonar gæslu fyrir börn starfsmanna meðan verkfall grunnskólakennara varir. Verkfallsverðir hafa heimsótt fleiri en tuttugu skóla, stofnanir og fyrirtæki í dag til að kanna hvernig starfsemi það er sem börnunum er boðið upp á. Innlent 13.10.2005 14:40
Viku verkfall hið minnsta Að minnsta kosti viku verkfall kennara blasir við í grunnskólum landsins eftir að slitnaði upp úr viðræðum samninganefnda kennara og sveitarfélaga á tíunda tímanum í gærkvöldi og verkfall skall á á miðnætti. Innlent 13.10.2005 14:40
Sjóðurinn dugar í tvo mánuði Um 900 milljónir króna eru í verkfallssjóði kennara. Meðan á verkfalli stendur fá grunnskólakennarar í fullu starfi greiddar þrjú þúsund krónur á dag, eða um 90 þúsund krónur á mánuði. Þetta þýðir að sjóðurinn verður uppurinn þegar um 4300 kennarar í Félagi grunnskólakennara hafa fengið úr honum greitt í tvo mánuði. Innlent 13.10.2005 14:40
Launin hafa hækkað um 20% Grunnskólakennarar eru með að meðaltali tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði í laun með yfirvinnu. Heildarlaunin hafa hækkað um tæp tuttugu prósent á síðustu þremur árum en hafa þó ekki hækkað jafn mikið og laun framhaldsskólakennara. Innlent 13.10.2005 14:40
Kennaraverkfall hafið Rúmlega 43 þúsund grunnskólabörn þurfa að sitja heima í dag og næstu daga þar sem ekki tókst að leysa kjaradeilu kennara og sveitarfélaga. Samningafundi grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga var slitið á tíunda tímanum í gærkvöld og hófst boðað verkfall 4.500 grunnskólakennara um land allt á miðnætti. Samningafundur er boðaður á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 14:40
Þorgerður áhyggjufull Verkfall kennara var rætt á ríkisstjórnarfundi í gær. "Þetta mál er á valdi sveitarfélaganna en ráðherrar í ríkisstjórninni létu í ljósi áhyggjur af yfirvofandi verkfalli," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Innlent 13.10.2005 14:39
Ekkert svigrúm til launahækkana Sveitarfélögin hafa einfaldlega ekki svigrúm til að greiða 30 til 35 prósenta hækkun á launakostnaði kennara, segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra. "Í því felst ekki neinn dómur um hvort það er réttlát lausn fyrir kennara eða ekki," segir Guðmundur. Innlent 13.10.2005 14:39
Ólíklegt að samningar náist "Það er ekki alveg að sjá að menn nái saman," segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari um kjaradeilu kennara og sveitarfélaga. Verkfallsstjórn kennara hefur verið kölluð til starfa. Innlent 13.10.2005 14:39
Mótmæltu kennaraverkfalli Fámennur hópur mótmælti því að börnum verði úthýst úr grunnskólum landsins verði af verkfalli kennara. Anna María Proppé, framkvæmdastjóri Heimili og skóla - landssamtaka foreldra, segir börn eiga lagalegan rétt til að ganga í skóla. Innlent 13.10.2005 14:39
Fá úrræði fyrir börn "Mér finnst útlitið ekki bjart," segir Erla Hermannsdóttir, starfsmaður Barnaheilla og móðir tveggja stúlkna á grunnskólaaldri. "Ég hræðist að ef verður af verkfalli kennara þá verði það langt," segir Erla. Innlent 13.10.2005 14:39
Forsendur kjarasamninga að bresta Verðbólgan er stöðugt yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Verkalýðsforystan útilokar ekki uppsögn samninga. Formaður Starfsgreinasambandsins hefur þungar áhyggjur af samningamálum kennara. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:39
Áskorun nemenda í Hafnarfirði Hópur nemenda í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði hefur hafið undirskriftasöfnun meðal nemenda í unglingadeildum gunnskóla Hafnarfjarðar, þar sem skorað er á samninganefndir grunnskólakennara og sambands sveitarfélaga að ná samkomulagi, svo koma megi í veg fyrir kennaraverkfall. Innlent 13.10.2005 14:39
Þetta er ekki deila ríkisins Forsætisráðherra segir ekki koma til greina að ríkið hlaupi undir bagga með sveitarfélögum til að mæta kröfum kennara. "Þetta er ekki okkar deila," segir Halldór Ásgrímsson. Innlent 13.10.2005 14:39