Írak

13 írakskir lögreglumenn drepnir
Skæruliðar felldu þrettán írakska lögreglumenn og særðu tvo í geysiharðri árás sem þeir gerðu á lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Margskonar vopnum var beitt og reyndu lögreglumennirnir að verjast en ekki fer sögum af mannfalli í röðum skæruliða.

43 féllu í Írak
Alls féllu 43 fyrir hendi íraskra andspyrnumanna í gær. Af hinum föllnu voru flestir lögreglumenn. Árásirnar voru gerðar aðeins degi eftir að stærsti stjórnmálaflokkur súnní-múslima ákvað að bjóða ekki fram í kosningunum í janúar vegna stigvaxandi ofbeldis.

Stærsti flokkur súnníta hættur við
Stærsti flokkur súnníta í Írak hefur hætt við þátttöku í kosningunum sem fram eiga að fara þann 30. janúar næstkomandi. Talsmenn flokksins segja að ekki hafi verið orðið við kröfum sem flokkurinn setti fram og setti sem skilyrði fyrir þátttöku. Flokksmenn eru þrátt fyrir þetta ekki hvattir til að sniðganga kosningarnar.

Níu liggja í valnum
Níu fórust og 39 særðust í sprengjuárás í Bagdad í gær. Leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks sjía var skotmark árásarmannsins en hann sakaði hins vegar ekki.

Níu látnir og 40 særðir í Bagdad
Að minnsta kosti níu menn fórust og fjörutíu særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan höfuðstöðvar helsta stjórnmálaflokks sjíta í Bagdad í Írak í morgun. Flokkurinn var stofnaður í stjórnartíð Saddams Husseins og voru leiðtogar hans í útlegð þar til Saddam var steypt af stóli.

14 létust og 33 særðust í Írak
Fjórtán létust og þrjátíu og þrír særðust þegar tvær sprengjur sprungu í tveimur árásum suður af Bagdad í gærkvöld. Níu létust og þrettán særðust í sjálfsmorðsárás þegar bifreið hlaðin sprengiefnum ók inn í vegatálma. Þeir sem létust voru úr þjóðvarðliðinu og lögreglunni, auk nokkurra óbreyttra borgara.

Árásin í Mosul sjálfsmorðsárás?
Ekki er víst að flugskeyti hafi hæft matsal bandarískrar herstöðvar eins og í fyrstu var talið. Samtökin Ansar al-Sunnah segja að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Verið er að rannsaka málið.

Mikil spenna í Mósúl
Mikil spenna er í borginni Mósúl í Írak sem er í herkví eftir að tuttugu og tveir létust þar í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. Óttast er að uppreisnarmenn hyggi á nýja hrinu árása.

Erfitt að bera kennsl á líkin
Marga daga tekur að bera kennsl á lík þeirra sem fórust í sprengjuárás á messatjald á herstöð í Írak í gær. Tuttugu og tveir fórust í árásinni.

Hættir við öll verkefni í Írak
Einn stærsti bandaríski verktakinn í Írak, Contrack International Inc, hefur ákveðið að hætta við öll verkefni í landinu. Fyrirtækið hefur því sagt upp samningum að virði tuga milljóna dollara þar sem kostnaður við öryggisgæslu í Írak hefur rokið upp úr öllu valdi.

Blair óvænt til Bagdad
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór í óvænta heimsókn til Bagdad í gær og fundaði með Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar landsins. Þetta var þriðja heimsókn Blairs til Íraks og sú fyrsta síðan Saddam Hussein var handtekinn fyrir ári síðan.
Yfir 20 létust í sprengjuárás
22 létust og rúmlega 50 særðust í sprengjuárás á bandaríska herstöð í borginni Mosul í norðurhluta Íraks í gær.Samtökin Ansar al-Sunnah hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, en þau eru sögð vilja koma álíka stjórnarfari á í Írak og talibanar höfðu í Afganistan.

Sjítar vilja ekki hefnd
Leiðtogar sjíta í Írak biðja fylgismenn sína um að sýna stillingu og hefna ekki sjálfsmorðsárásanna sem urðu 60 manns að bana í gær. Talið er víst að sprengjunum tveimur, sem sprungu annars vegar í Najaf og hins vegar Karbala í gær, hafi verið komið fyrir af öfgasinnuðum súnní-múslimum.

Íraskir hermenn ekki tilbúnir
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna viðurkenndi í gær að íraskir hermenn væru ekki tilbúnir til þess að leysa bandarískar hersveitir í Írak af hólmi.

Tugir létust í Najaf og Karbala
Mesta mannfall á einum degi í Írak í nokkra mánuði varð í gær þegar tvær sprengjur sprungu í helgustu borgum sjíamúslima. Þrír starfsmenn kosninganefndar voru skotnir til bana. Myndband með tíu íröskum gíslum sýnt.

62 liggja í valnum eftir daginn
Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð.
Kosningastarfsmenn drepnir í Írak
Öflug bílsprenging sprakk fyrir stundu í borginni Kerbala í Írak. Í það minnsta tíu fórust. Þrír starfsmenn kjörstjórnar fyrir kosningarnar í næsta mánuði voru drepnir í Bagdad fyrr í morgun.
Þekktasta fórnarlambið á batavegi
Þekktasta fórnarlamb stríðsins í Írak er á batavegi. Ali Abbas, drengurinn sem missti hendurnar þegar sprengja lenti á heimili hans í Bagdad, vill snúa aftur heim til að starfa með öðrum sem misst hafa útlimi.

48 látnir og 10 særðir í Najaf
Að minnsta kosti 48 eru látnir og 90 særðir eftir sjálfsmorðsárás í hinni heilögu borg Najaf í Írak í dag. Árásarmaðurinn ók bíl upp að strætisvagnastöð, þar sem mikill mannfjöldi var samankominn, og sprengdi sig þar í loft upp.
Þrjár árásir á kosningaskrifstofur
Tveir hafa látist og níu særst í þremur árásum sem gerðar hafa verið á kosningaskrifstofur í Írak í dag. Sú mannskæðasta varð í borginni Dudsjæl í norðurhluta landsins þar sem tveir féllu.

Unglingsstúlka lést í sprengjuárás
Unglingsstúlka lést þegar sprengja sprakk í vegkanti í þann mund sem skólarúta átti leið hjá í Mósúl í Írak í dag. Sex særðust í árásinni, sumir mjög alvarlega. Sprengjutilræðinu virðist hafa verið beint gegn bandarískum hermönnum sem óku rétt á undan skólabílnum.

79 listar í kosningunum í Írak
Sjálfsmorðsárás var gerð á græna svæðið í Bagdad í morgun, annan daginn í röð. Árásin var nákvæmlega eins og gerð á sama stað. Sjötíu og níu listar hafa verið lagðir fram fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak sem haldnar verða í næsta mánuði.

Sjálfsmorðsárás við græna svæðið
Einn eða tveir eru taldir hafa farist í sjálfsmorðssprengjuárás við græna svæðið í Bagdad fyrir stundu. Þetta er annan daginn í röð sem öflug sprenging skekur græna svæðið þar sem ríkisstjórn landsins, erlend sendiráð og herstjórnin eru til staðar. Tólf eru sagðir sárir, sumir hverjir alvarlega, samkvæmt fyrstu fregnum.

Samstarfsmaður Zarqawis drepinn
Náinn samstarfsmaður hryðjuverkamannsins alræmda Abu Musabs al-Zarqawis hefur verið drepinn af írökskum öryggissveitum að sögn Iyads Alllawis, forsætisráðherra bráðbirgðastjórnarinnar í Írak. Maðurinn, Hassan Ibrahim Farhan að nafni, er meðlimur al-Kaída hryðjuverkasamtakanna og er sagður hafa staðið fyrir fjölda mannnrána og aftaka í Írak að undanförnu.

Hinir staðföstu halda heim
Uppreisnarmenn í Írak halda áfram árásum sínum og er lögregla vinsælt skotmark. Fyrir vikið fækkar í röðum írakskra sveita og hinir staðföstu halda heim á leið.

70 uppreisnarmenn handteknir
Rúmlega 70 írakskir uppreisnarmenn voru handteknir í Bagdad í dag þegar þeir gerðu tilraun til að ráðast að inn á lögreglustöð í borginni. Ekkert mannfall virðist hafa orðið í átökunum en árásir á írakskar lögreglustöðvar hafa verið tíðar undanfarið þar sem tugir lögreglumanna hafa fallið.

13 óbreyttir borgarar fórust
Í það minnsta þrettán fórust og töluverður fjöldi særðist í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad í morgun, allt óbreyttir borgarar. Bíl ku hafa verið ekið upp að eftirlitsstöð hersins nærri græna svæðinu, þar sem Bandaríkjaher og bráðabirgðastjórn Íraks hafa aðsetur, og hann sprengdur í loft upp.

Írakskur Hitler að fæðast?
Írakskur Hitler gæti fæðst haldi óöldin í Írak áfram með niðurlægingu og örvilnun írakskra borgara. Þetta sagði forseti Íraks, Ghazi Yawar, í viðtali við arabískt dagblað í morgun. Hann sagði ástandið sambærilegt við það sem var í Þýskalandi eftir fyrri heimsstyrjöldina, og minnti á að að hefði reynst frjór jarðvegur fyrir Adold Hitler og nasisma.

Látlausar blóðsúthellingar í Írak
Blóðsúthellingarnar í Írak virðast látlausar. Fjöldi fólks týndi lífi í morgun þegar hryðjuverkamaður sprengdi sig í loft upp í miðri mannmergð í Bagdad.

Ár liðið frá handtöku Saddams
Ár er liðið frá því að Saddam Hússein var gómaður í holu í Írak. Örlög hans eru enn óráðin, en á meðan yrkir hann ljóð og uppreisnarmönnum vex ásmegin.