62 liggja í valnum eftir daginn 19. desember 2004 00:01
Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð. Auk þeirra sem fórust í árásunum særðust hundrað og þrjátíu. Þetta er mesta mannfall í árásum af þessu tagi síðan í júlí. Árásin í Kerbala var önnur bílsprengjuárásin í borginni á fimm dögum. Báðar sprengjurnar sprungu skammt frá Imam Hussein hofinu sem er einn helgasti staður sjíta. Lögregluskóli og strætisvagnastoppistöð eru skammt þar frá, sem er ein ástæða þess að fjórtán fórust og þrjátíu og níu særðust. Starfsfólk sjúkrahúsa sagði konur og börn áberandi meðal fórnarlambanna. Imam Ali hofið var skotmarkið í Najaf og aðstæður þar voru svipaðar: skammt frá var strætisvagnastoppistöð. Ökumaður bifreiðar, fylltri sprengiefni, sprengdi sig í loft upp um þrjúhundruð metra frá hofinu í miðri fólksmergð. Fjörutíu og átta hið minnsta fórust og níutíu særðust, margir hverjir alvarlega. Sjónarvottur sagði vettvanginn blóði drifinn. Lögreglan setti útgöngubann í borginni í kjölfarið. Uppreisnarmenn gera um hundrað árásir á dag, þó að fæstar séu jafn mannskæðar og árásirnar í dag.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sjá meira