Stjórnsýsla

Forsætisráðherra las ekki greinargerð ríkislögmanns í skaðabótamáli Guðjóns Skarphéðinssonar
Þrjár fyrirspurnir af fimm í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun beindust að Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og sneru að Guðmundar- og Geirfinnsmálum.

Ríkisendurskoðun með ársreikning ÁTVR til meðferðar
Ríkisendurskoðun hefur nú til skoðunar hvort ársreikningur ÁTVR sé fullnægjandi og samrýmist kröfu sem gerð er til ríkisfyrirtækja um að rekstur skili viðunandi arðsemi.

Vill vita af hverju ríkislögreglustjóri var ekki áminntur vegna bréfasendinga til fjölmiðlamanna
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að dómsmálaráðherra útskýri hvers vegna Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, hafi ekki verið áminntur eftir að hann sendi tveimur fjölmiðlamönnum bréf á bréfsefni embættis ríkislögreglustjóra vegna máls sem varðaði hann sjálfan.

Almannatengsl í þágu þjóðar
Ber er hver að baki nema sér almannatengil eigi. Þannig er að minnsta kosti tíðarandinn í íslensku stjórnkerfi.

Sendi greinargerðina til þriggja ráðuneyta
Settur ríkislögmaður sendi greinargerð sína í máli Guðjóns Skarphéðinssonar til yfirlestrar í forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti.

Tvær kvartanir vegna eineltis af hálfu ríkislögreglustjórans
Tvö mál er varða einelti ríkislögreglustjóra í garð sérsveitarmanna hafa borist dómsmálaráðuneyti. Fréttablaðið hefur bréf sem dómsmálaráðherra sendi lögreglustjórum undir höndum þar sem hún segir rétt að lögreglan verðirekin sem ein heild. Ríkislögreglustjóra boðin starfslok í sumar, sem ekki varð af.

Hægara sagt en gert að semja um starfslok embættismanna
Dósent í stjórnsýslurétti segir að það sé töluverðum takmörkunum háð að semja um starfslok embættismanna á borð við ríkislögreglustjóra.

Skoðar sameiningu Ríkislögreglustjóra og LRH og gefur sér nokkrar vikur til að finna lausn
Meðal þess sem er til skoðunar innan dómsmálaráðuneytisins til þess að leysa úr þeim deilum sem geysa á milli ríkislögreglustjóra og lögreglunnar í landinu er að hvort sameina ætti embætti Ríkislögreglustjóra og embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Dómsmálaráðherra gefur sér nokkrar vikur til að finna lausn á málinu.

Rústabjörgun eða slökkvistarf
KOM í krísustjórnun fyrir ríkislögreglustjóra.

Stjórnsýsluúttekt á RÚV á lokastigi
Ríkisendurskoðandi er með níu skýrslur í vinnslu.

Fjórar nýjar ríkisstofnanir áformaðar
Ríkisstjórnin áformar að sameina og breyta ríkisstofnunum ásamt því að setja á laggirnar nýjan dómstól sem og Þjóðarsjóð. Alls verða til fjórar nýjar ríkisstofnanir.

Endurskoða lög um Þjóðskrá
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu – og sveitarstjórnarráðherra, lagði fram nýtt frumvarp sem felur í sér heildarendurskoðun á lögum um Þjóðskrá og almannaskráningu en fyrri lögin eru frá 1962.

Sinnir ekki lögbundnum skyldum vegna manneklu
Landsnet bíður enn eftir því að Skipulagsstofnun skili áliti sínu vegna Hólasandslínu 3 en Landsnet, sem áformar uppbyggingu raforkukerfisins á þessu svæði, lagði inn skýrslu til Skipulagsstofnunar um verkefnið síðastliðið vor.

Stöðugri stjórn yfir Sorpu í stað óstjórnar
Reykjavíkurborg ábyrgist lán upp á nærri milljarð vegna mistaka hjá Sorpu. Stjórnarformaður segir ástæðulaust að skipa neyðarstjórn yfir fyrirtækið. Mikilvægt sé að tryggja að stjórnarmenn sitji lengur en eitt kjörtímabil.

Hefur komið til umræðu að lýsa yfir vantrausti á ríkislögreglustjóra
Ekki er ólíklegt að formenn aðildarfélaga Landssambands lögreglumanna lýsi yfir vantrausti á störf Haraldar Johannessen, ríkislögreglustjóra, á fundi sem verður haldinn eftir helgi. Mikil ólga er meðal lögreglumanna vegna ummæla og framferðis ríkislögreglustjóra undanfarin misseri.

Nýtt loftslagsráð tekið til starfa
Nýtt loftslagsráð kom saman í fyrsta sinn í gær en því er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi.

Vilja rýmri opnunartíma
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu á fundi borgarstjórnar í gær til að opnunartími stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar yrði gerður sveigjanlegri til þess að létta á umferð á höfuðborgarsvæðinu.

Segja ærandi þögn frá menntamálaráðuneyti
Menningarmálaráðuneytið hefur enn ekki svarað erindi Samtaka iðnaðarins frá því í ágúst í fyrra um kaup Ríkisútvarpsins á efni frá sjálfstæðum kvikmyndaframleiðendum.

Áslaug opin fyrir fækkun í yfirstjórn
Dómsmálaráðherra opinn fyrir að fækka í yfirstjórn lögreglu og vill breyta fyrirkomulagi embættanna. Engin tilkynning borist héraðssaksóknara um meinta spillingu í lögreglunni sem ríkislögreglustjóri ræddi við Morgunblaðið.

Ráðherra fundar með Haraldi um stöðuna í dag
Gríðarleg ólga er innan lögreglunnar eftir að viðtal við Harald birtist í Morgunblaðinu á laugardag.

Útgjöld eftirlitsstofnana aukast áfram
Umfang eftirlitsstofnana ríkisins hefur aukist umtalsvert á síðustu átta árum. Árið 2014 var sett vinna í gang við að fara yfir regluverk stofnananna með gögn OECD um hagkvæmni og skilvirkni til hliðsjónar en sú vinna rann út í sandinn vegna fjárskorts.

Íslenskir hvítflibbakrimmar sleppa við þungar refsingar
Aðeins níu prósent af sektum dómstóla innheimtast á Íslandi. Ástandið er verra eftir því sem sektin er hærri. Fangelsiskerfið er svo gott sem sprungið. Flestir fullnusta refsingar með samfélagsþjónustu sem getur að hámarki orðið 480 klukkustundir.

Seltjarnarnes neitar að ábyrgjast lán
Bæjarráð Seltjarnarness neitaði að gangast í ábyrgð fyrir láni til Sorpu vegna 1,6 milljarða króna framúrkeyrslu.

Hvetur eigin samninganefnd til að hugsa viðræður upp á nýtt
Trúnaðarmannaráði stéttarfélagsins Sameykis er fullkomlega misboðið hvernig komið er fyrir yfirstandandi kjaraviðræðum félagsins við fulltrúa hins opinbera.

Fleiri lögreglufélög fagna úttekt á ríkislögreglustjóra
Lögreglufélag Suðurnesja lýsir yfir stuðningi við ákall Landssambands lögreglumanna um úttekt á embætti ríkislögreglustjóra.

Úttekt gerð á embætti Ríkislögreglustjóra í heild sinni
Ríkisendurskoðun hefur fallist á beiðni um stjórnsýsluúttekt á embætti Ríkislögreglustjóra í heild sinni.

Ríkislögreglustjóra skylt að innheimta 200 milljónir umfram rekstrarkostnað
Ríkislögreglustjóra er skylt að innheimta árlega um 200 milljónir króna umfram rekstrarkostnað lögreglubifreiða í ríkissjóð.

Greiddu 82 milljónir fyrir fjóra lögreglubíla á þremur árum
Lögreglan á Norðurlandi vestra telur sig hafa verið ofrukkaða um hátt í tvö hundruð prósent af bílamiðstöð ríkislögreglustjóra vegna leigu á lögreglubifreiðum.

Utanríkisráðuneytið greiddi KOM mest
Utanríkisráðuneytið greiddi alls rúmlega 7,5 milljónir króna á síðasta ári í hvers kyns áskriftir að dagblöðum, tímaritum og miðlum.

Stjórnsýslan hjá Haraldi skoðuð
Bílamiðstöð ríkislögreglustjóra verður lögð niður um áramót.