Heilbrigðismál

Stuðningur við tillögu um spítalastjórn
Bæði fjármálaráðherra og formaður fjárlaganefndar telja æskilegt að skipa stjórn yfir Landspítalann. Formaður velferðarnefndar segir hugmyndina á frumstigi en að unnið sé að þingsályktunartillögu.

Fleiri hafa fengið vitlausa lyfjaskammta
Landlæknisembættið vill meira öryggi í lyfjaávísunum til barna og koma upp viðvörunum í rafrænni sjúkraskrá. Að minnsta kosti fjögur atvik hafa verið tilkynnt til embættisins síðustu ár þar sem röngum skammti var ávísað.

Sjúkraflug með 58 frá Hornafirði
"Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut,“ segir í bókun bæjarstjórnar Hornafjarðar.

Ekki hægt að kenna læknum í hlutastarfi um vanda Landspítalans að mati lækna
Formenn læknafélaga og læknaráð Landspítalans bregðast harðlega við fullyrðingum landlæknis.

Menntamálaráðherra gerir ráð fyrir að kjör kennara FÁ haldist óbreytt
Segir ekki verið að einkavæða Fjölbrautaskólann við Ármúla verði hann sameinaður rekstri Tækniskólans.

Sjúklingar fá ekki lyf sem læknar vilja ávísa
Fé til upptöku nýrra lyfja er af svo skornum skammti að ný krabbameinslyf eru ekki tekin í notkun hér á landi. Krabbameinslæknir segir þolinmæði á þrotum. Ríkisstjórnin lofaði að tryggja fjármagn til lyfjakaupa um miðjan febrúar.

Siglum inn í mikinn skort á geðlæknum
Mun færri læknar sækja sér nú sérfræðimenntun í geðlækningum en undanfarin ár. Geðlæknar eru margir hættir að taka við nýjum sjúklingum.

Heilbrigðisráðherra skoðar breytingar á lögum um leyfi til heilbrigðisþjónustu
Hann ítrekaði á Alþingi í dag að ekki stæði til af hans hálfu að auka á einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.

Heilbrigðisráðherra gagnrýndur: „Ég hlustaði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar“
Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu störf heilbrigðisráðherra og þá sérstaklega málefni Klíníkurinnar í Ármúla.

Óskar eftir sérstökum umræðum um Vífilsstaði: "Enn og aftur finnst ráðherra þingið bara vera fyrir“
Sigurður Ingi Jóhannesson, segir að þingið eigi enn efitr að ræða um Vífilsstaðalandið sem staðsetningu fyrir þjóðarsjúkrahús og sölu ríkisins á því.

Hefur áhyggjur af stöðu sjúkraflutninga
Fimm af sjö sjúkraflutningamönnum sem starfa á Blönduósi hafa sagt upp störfum vegna vanefnda ríkisins við endurskoðun kjarasamninga.

Telur Óttar skila auðu varðandi einkarekstur
Stjórnarandstöðuþingmenn kalla eftir pólitískri stefnumótun og skýrari svörum frá heilbrigðisráðherra um einkarekna heilbrigðisþjónustu. Ráðherra segir bagalegt að upp sé kominn ágreiningur.

Ráðherra segir agaleysi hafa ríkt gagnvart einkarekstri
Heilbrigðisráðherra segir agaleysi hafa ríkt í íslenska heilbrigðiskerfinu síðustu áratugi í garð einkarekstrar og boðar breytingar

Ráðherra svarar ekki gagnrýni landlæknis
Afstaða heilbrigðisráðherra til starfsemi Klíníkunnar breytist ekki þrátt fyrir gagnrýni Landlæknis. Sjúklingar greiða aðgerðir fullu verði.

Landlæknir segir einkarekstur nánast stjórnlausan
Útgjöld ríkisins til einkareksturs hafa aukist um 40 prósent á síðastliðnum árum, meðan þau hafa nánast staðið í stað til opinbers reksturs.

Loforð um aukið fé til lyfjakaupa ekki efnt
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í febrúar að setja meira fé til innleiðingar nýrra lyfja. Það fé hefur ekki skilað sér. Ráðherra neitar að tjá sig um málið. "Krabbameinssjúklingar geta ekki beðið,“ segir formaður.

Endómetríósa styrkti sambandið: „Auðveldara að vera í þessu saman heldur en að vera ein“
Júlía Katrín Behrend og Jónas Bragason segja frá því hvernig þau hafa tekist á við endómetríósu saman.

Frumþjónusta í heilbrigðiskerfinu
Í umræðunni um heilbrigðismál á Íslandi er mest rætt um sjúkrahús. Sjúkrahús eru kostnaðarsöm bæði í byggingu og rekstri. Það er því mikilvægt fyrir samfélagið að skoða heilbrigðiskerfið í heild sinni.

Bubbi bendir á læknana: „Gísli Pálmi er ekki sökudólgurinn“
Bubbi segist vona að Gísla Pálma beri gæfa til þess að verða edrú því lífið sé stórkostlegt án efna.

Ómögulegt að gulusótt komi til Íslands án moskítóflugna
Yfirlæknir sóttvarna hjá Landlæknisembættinu segir ekki hættu á gulusóttarfaraldri á Íslandi. Ástæðan er sú að hér séu engar moskítóflugur. Varað er við heimsfaraldri gulusóttar sem er lífshættulegur sjúkdómur.

Sérnám í lyflækningum hér fær vottun
Nýlega vottaði Konunglega breska lyflæknafélagið (Royal College of Physicians, RCP) sérnám í lyflækningum á Íslandi.

Þurfa að hafa birgðir fyrir helgina
Blóðbankinn biðlar til almennings um að gefa blóð.

Zika-veiran hættulegri en áður var talið
Smitsjúkdómalæknir útskýrir Zika-faraldurinn.

Kári slær Íslandsmetið í undirskriftasöfnun
Undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskar erfðagreiningar, á vefsíðunni Endurreisn.is er orðin sú fjölmennasta í Íslandssögunni.

Leki á skurðstofu kvennadeildar
Lekinn kom upp út frá ónýtri þakrennu fyrir um það bil hálfum mánuði. Lekinn var lagfærður um leið og hans varð vart og samkvæmt upplýsingum frá Landspítala var ekki þörf á að loka skurðstofunni. Engum aðgerðum var aflýst en einhverjum var frestað.

Ísland í dag: Aðstaðan á deildinni óboðleg fyrir mæður
Engin deild kemur býr við jafn slæman húsakost á Landspítalanum og deild 33C. Húsnæðið hriplekur og myglusveppur grasserar. Á deildinni dvelja meðal annars mæður sem eiga þið fæðingaþunglyndi að stríða.

Gefa sjúklingum meira val
Engin ný heilsugæsla hefur verið starfrækt á höfuðborgarsvæðinu í tíu ár, þrátt fyrir fjölgun um tuttugu þúsund íbúa.

Inflúensa herjar á landann: Mikið álag á Landspítala og fjöldi starfsmanna rúmliggjandi
Mikið er um veikindi á flestum vinnustöðum landsins.

Leggjast alfarið gegn áformum um einkavæðingu
Stjórn BSRB segir heilsu fólks og heilbrigði ekki geta orðið eins og aðrar vörur á markaði.

Íslensk börn reykja og drekka miklu minna
Svo virðist sem íslensk börn verji mun meiri tíma með foreldrum sínum nú en þau gerðu fyrir áratug.