Landspítalinn

Fréttamynd

Krónunum kastað fyrir aurinn

Fréttir af því að Landspítalinn hafi skipt gamla góða smjörvanum út fyrir erlent jurtasmjörlíki hafa vakið töluverð viðbrögð og eflaust mun meiri viðbrögð en stjórnendur spítalans hafa búist við.

Skoðun
Fréttamynd

Steina vill á­frýja: „Brotið gegn grund­vallar­réttindum um­bjóðanda míns“

Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur falið Vilhjálmi Vilhjálmssyni, verjanda sínum, að óska eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í dag. Þar var hún sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Vilhjálmur telur að brotið hafi verið á grundvallarréttindum Steinu til réttlátrar málsmeðferðar og það sé meðal margra atriða, sem gæti orðið til þess að Hæstiréttur veiti áfrýjunarleyfið.

Innlent
Fréttamynd

Sakfelling Steinu stað­fest

Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing.

Innlent
Fréttamynd

Ný bráða­mót­taka að taka á sig mynd

Framkvæmdum við Nýjan Landspítala miðar vel þessa dagana en þó er ekki gert ráð fyrir að hann verði tekinn í gagnið fyrr en árið 2030, eða fjórum árum á eftir áætlun. Á spítalanum verður stærsta bráðamóttaka Norðurlandanna.

Innlent
Fréttamynd

Kerfið er vanda­málið ef það styður ekki ný­sköpun

Með nýsköpun í heilbrigðiskerfinu er hægt að framlengja sjálfstæða búsetu fólks, draga úr þörf fyrir innlagnir og leysa stóran vanda, að mati sérfræðings hjá Fjársýslu ríkisins. Framlínustofnanir þurfi að snúa bökum saman og kerfið eigi að treysta heilbrigðisstarfsfólki til þess að leita lausna.

Innlent
Fréttamynd

Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“

„Hvers vegna er álagi innan Landspítalans svona misskipt milli Bráðamóttöku og legudeilda Landspítala með tilheyrandi skaða fyrir sjúklinga og starfsfólk? Við viljum að Bráðamóttakan og hennar starf verði framvegis verndað, frekar en að hún sé gerð að forarpytti sýkinga og hættu.“

Innlent
Fréttamynd

„Þetta hefði ekki þurft að fara svona“

Maður sem annaðist aldraða, veika systur sína um árabil segir það hafa verið tilgangslausa þrautargöngu að reyna að fá hjúkrunarrými fyrir hana síðustu árin. Hann fór með hana sárveika á Landspítalann síðasta haust þar sem hún lést nokkrum dögum síðar eftir að matur stóð í henni.

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð vegna elds­voða að ljúka og Landspítali fær pláss

Hrafnista tekur í vikunni við ellefu skjólstæðingum Landspítala sem hafa beðið þar inni eftir hjúkrunarrými. Ástæðan er að viðgerðum er lokið á jafnmörgum hjúkrunarrýmum við Sléttuveg eftir alvarlegan bruna í nóvember. Þá verður hægt að taka á móti enn fleirum þegar húsnæðið verður að fullu tilbúið á næstu mánuðum. 

Innlent
Fréttamynd

„Al­veg hræði­legt á­stand“

Aldraðir og aðstandendur þeirra segja sorglegt að fólk sé geymt mánuðum saman á Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Þau furða sig á að ekki sé búið að bregðast við ástandinu fyrir löngu síðan. Stjórnandi á stofnun fyrir aldraða segir fólk þar óttast að leggjast inn á spítala vegna hættu á að festast þar inni.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­völd hafi út­vegað tvö ný rými og ó­breytt á­stand

Ástandið á Landspítalanum er óbreytt að sögn stjórnenda þar þrátt fyrir ákall um að þörf sé á aðgerðum nú þegar. Aðeins sé búið að útvega tvö hjúkrunarrými annars staðar. Formaður Læknafélags Íslands fagnar því að stjórnvöld viðurkenni vanda spítalans og boði aðgerðir. Það þurfi að vinna hratt.

Innlent
Fréttamynd

Þjökuð af sam­visku­biti meðan pabbinn bíður eftir plássi

Dóttir manns á níræðisaldri sem hefur legið á Landspítalanum í á fjórða mánuð vegna þess að ekki losnar pláss á hjúkrunarheimili segir tímabært fyrir ríkt land á borð við Ísland að huga að forgangsröðun. Hún segir sorglegt að maður sem hafi staðið sína plikt sé fastur á sjúkrahúsi, með takmarkaðan heimsóknartíma og enga endurhæfingu. Þótt hann sé einn af á annað hundrað sem bíða eftir plássi verði að muna að hann sé ekki tala á blaði. Ekki frekar en fjölskylda hans sem er þjökuð af samviskubiti.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ára­tugum of sein“

Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að til að bæta ástandið á Bráðamóttökunni þurfi að huga að rót vandans. Það sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma. Þetta er meðal þess sem hún sagði í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“

Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni

Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni

Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum og þannig myndi legurýmum fjölga svo hægt væri að létta á álaginu á bráðamóttökunni.

Innlent
Fréttamynd

Ekki ég!

Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð.

Skoðun
Fréttamynd

Við­brögð Ölmu mikil von­brigði

Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við.

Innlent
Fréttamynd

Vinna að því að fækka sjúk­lingum og flytja annað

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 

Innlent
Fréttamynd

Starfs­fólk bráða­mót­töku óttist um heilsu sína og öryggi

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Stoltur yfir arf­leifð Bryn­dísar Klöru en söknuðurinn sár

Starfsemi Bryndísarhlíðar, sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala, mun hefjast innan tíðar. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár.

Innlent
Fréttamynd

Að liggja á göngum sjúkra­húsa

Ég heimsótti ömmu mína á landspítalann þegar hún lá þar sína síðustu legu. Ég var smá tíma að finna hana, því ekki var hún á neinni deild. Mörgum rúmum hafði var raðað í röð með veggjum ganga spítalans, og ég man enn hvað ég var hissa á þessum slæmu aðstæðum.

Skoðun