
WOW Air

Samgöngustofa veitti röng og misvísandi svör þegar WOW air var í basli
Samgöngustofa er gagnrýnd harðlega í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á falli WOW air. Viðskiptalegir hagsmunir flugfélagsins virðist í einhverjum tilvikum hafa verið hafðir að leiðarljósi.

Tvö ár frá falli WOW Air: „Við gleymdum okkur í velgengninni“
„Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast í augu við þá staðreynd að þessu ótrúlega ævintýri væri lokið,“ svona hefst færsla Skúla Mogensen, eigandi hins fallna flugfélags WOW air, sem hann birti á Facebook í kvöld.

Föst í Boston þegar bréfið örlagaríka kom frá Skúla Mogensen
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona og skemmtikraftur, hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast en Helga Braga er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans.

Íslenskir forritarar höfðu betur í baráttu við Ballarin um vangoldin laun
USAerospace Associates LLC, félag í eigu Michelle Ballarin sem hefur stefnt að flugrekstri undir merkjum WOW air, hefur verið dæmt til að greiða tveimur forriturum rúmlega fjörutíu milljón krónur í vangoldin laun. Dómur var kveðinn upp í héraði í dag.

Margir enn atvinnulausir eftir fall WOW air
Þeim sem glíma við langvarandi atvinnuleysi fer hratt fjölgandi hér á landi. Þeir sem misstu vinnuna við fall WOW air eru margir hverjir enn atvinnulausir.

Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion
Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air.

MOM Air lokaverkefni í Listaháskóla Íslands
Flugfélagið MOM Air, eða gjörningurinn réttara sagt, er hluti af verkefni sem listneminn Oddur Eysteinn Friðriksson, eða Odee, vinnur nú að í námi sínu við Listaháskóla Íslands.

Tvö dómsmál gegn Michelle Ballarin
Búið er að höfða tvö dómsmál gegn bandaríska fjárfestinum Michelle Ballarin. Annað snýr að notkun á markaðsefni sem annar aðili telur sig eiga og hitt um vangoldin laun.

Hæstiréttur fellst á að taka mál fjármálastjóra WOW air fyrir
Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fyrrverandi fjármálastjóra WOW air en deilt er um hvort launakrafa fjármálastjórans, Stefáns Eysteins Sigurðssonar, verði viðurkennd sem forganskrafa í þrotabú WOW.

Mom Air, gjörningur eða nýtt flugfélag?
Fjölmiðlum barst í dag tilkynning um yfirvofandi stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags sem ber nafnið Mom Air. En er þetta alvara, eða kannski gjörningur?

Upprisa WOW air
Fjórar bekkjarsystur á níunda ári í Melaskóla í Vesturbæ Reykjavíkur vöktu athygli á flakki sínu um hverfið og víðar í dag. Segja má að búningar þeirra Bergrúnar, Rósu, Sigríðar Íseyjar og Vigdísar hafi slegið í gegn.

Vonbrigði fyrir Ballarin að „drífa ekki alla leið“
Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill sem hefur aðstoðað bandaríska fjárfestinn Michelle Ballarin hér á landi, segir hana hafa áhuga á að vera í viðskiptum hér á landi á komandi árum.

Skráði sig fyrir stórum hlut í Icelandair
Talsmaður kaupsýslukonunnar Michele Roosevelt Edwards Ballarin segir að hún hafi gert bindandi tilboð í hlutafjárútboði Icelandair. Samkvæmt heimildum fréttastofu hljóðar tilboðið upp á sjö milljarða króna.

Ballarin mætt vegna útboðs Icelandair og braut væntanlega sóttvarnarreglur
Michele Roosevelt Edwards Ballarin fjárfestir er komin til landsins til að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair. Ballarin braut væntanlega sóttvarnareglur en hún sást á kaffihúsi sólarhring eftir komu sína.

Glæsivilla Skúla Mogensen nú í eigu Arion banka
Arion banki hf. eignaðist glæsivillu Skúla Mogensen við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi í byrjun september.

WOW Air hefur fraktflug
Flugfélagið WOW Air er væntanlegt í loftið að nýju en tilkynnt var á Facebooksíðu flugfélagsins að starfsemi væri hafin í fraktflutningum frá flugvellinum í Martinsburg í Vestur-Virginíu.

Kröfu þrotabús WOW air um gjaldþrotaskipti Títan hafnað
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna kröfu þrotabús WOW air um að Títan fjárfestingafélag, sem var móðurfélag flugfélagsins, verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Sveik peninga út úr Íslandsbanka í háloftunum
Kona á fertugsaldri sveik rúmlega 400 þúsund krónur út úr Íslandsbanka á meðan hún var á ferðalagi með Easy Jet og WOW air. Hún játaði brot sín í héraðsdómi og var dæmt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

WOW air ræður framkvæmdastjóra Rússlandsflugs
Michele Ballarin, stjórnarformaður nýja WOW air, segir flugfélagið hafa ráðið til sín Dmitry Kaparulin.

Skúli sannfærður um að ferðaþjónustan muni ná sér á strik á nýjan leik
Í gær var ár liðið frá falli WOW air.

Ár liðið frá falli WOW Air
Í dag er ár liðið frá falli WOW Air og hafði fall félagsins mikil áhrif á atvinnu- og efnahagslíf á Íslandi.

Stjórnarmenn WOW fengið nóg af „rangfærslum og aðdróttunum“ Stefáns Einars
Fyrrverandi stjórnarmenn í hinu fallna WOW air saka viðskiptaritstjóra Morgunblaðsins um fréttaflutning sem ýmist er sagður efnislega rangur, byggja á endurteknu efni eða „aðdróttanir sem nauðsynlegt er að bregðast við.“

Krefja nýja eigendur WOW um sautján milljónir vegna vangoldinna launa
Tveir forritarar hafa stefnt félaginu USAerospace Associates, nýjum eiganda WOW Air, og krefjast sautján milljóna króna vegna vangoldinna launa og uppsagnafrests.

Endurvekja Facebook-síðu WOW Air
Þetta er auðvitað ákveðið lífsmark með undirbúningsferlinu sem hefur staðið yfir í marga mánuði en hefur tekið lengri tíma en við áttum von á. WOW world er ákveðið hugtak sem við höfum verið að nota og þetta er vísbending um að fólk sé að hugsa stórt segir Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill og talsmaður WOW Air.

Skúli og aðrir stjórnendur WOW krafðir um milljarðaskaðabætur
Hópur skuldabréfaeiganda krefst þess að stjórn og forstjóri hins fallna WOW air bæti þeim það tjón sem hópurinn varð fyrir við gjaldþrot félagsins í mars á síðasta ári.

Hótel Skúla á Ásbrú skellir í lás
Base hótel á Ásbrú á Reykjanesi, sem er í eigu félags Skúla Mogensen, fyrrverandi forstjóra og eiganda Wow air, hefur lokað og hætt rekstri.

Árangurslaus kyrrsetning á eignum Títans hjá slitabúi WOW
Eignirnar sem fundust eru allar veðsettar í Arion banka.

Ferðamannafjöldinn til Íslands í fyrra sá þriðji mesti í sögunni
Ferðamönnum fækkaði um fjórtán prósent á nýliðnu ári. Engu að síður reyndist það þriðja besta ferðamannaár sögunnar.

Boðar flugtak hins nýja WOW air á næstu vikum
Ef marka má stöðuuppfærslu Michelle Ballarin á LinkedIn er von á því að WOW air hefji flug á nýjan leik á næstu vikum.

Tilkynna hugsanleg brot í rekstri WOW air
Embætti héraðssaksóknara hefur borist tilkynning frá skiptastjóra þrotabús WOW air vegna hugsanlegs brots í rekstri flugélagsins.