

Framtíð landsliðsþjálfarans Þorsteins Halldórssonar er á milli tannanna á fólki og margir vilja sjá nýjan þjálfara hjá íslenska kvennalandsliðinu. En hver gæti tekið við? Besta sætið fékk að vita skoðun tveggja sigursæla reynslubolta sem þekkja íslenska kvennaboltann vel.
Knattspyrnusamband Íslands þarf að leggjast yfir málefni kvennalandsliða Íslands í kjölfar vonbrigða á EM samkvæmt fyrrum landsliðskonu sem er þó óviss um framtíð liðsins. Mikilvægt sé að hafa leikmenn með í ráðum varðandi næstu skref.
Besti markvörður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi er hörð á því að hún vill sjá nýjan þjálfara hjá liðinu. Henni hugnast það ekki að Þorsteinn Halldórsson fái að halda áfram en framtíð landsliðsins var rædd í Besta sætinu.
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, segir árangur Íslands á yfirstandandi EM í fótbolta vissulega vonbrigði og endurómar orð landsliðsþjálfarans um að staðan verði metin þegar heim er komið. Það yrði gert hvort sem árangurinn hefði verið góður eða slæmur á mótinu.
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum sem fylgist hafa með íþróttum að úrslitakeppni EM kvenna hefst miðvikudaginn 2. júlí. Ísland leikur fyrsta leikinn í mótinu gegn Finnum og hjá mörgum er spennan orðin ansi mikil.
Áhugaverður leikur fer fram í Egyptalandi í kvöld er U21 árs lið Íslands spilar við Brasilíu. Leikurinn verður því miður ekki á dagskrá Stöðvar 2 Sports eins og áður var auglýst.
Fulltrúar KSÍ voru meðal gesta á árlegu þingi FIFA á dögunum í Paragvæ. Þar gekk á ýmsu og gengu fulltrúar UEFA meðal annars út til að mótmæla forsetanum Gianni Infantino.
Þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta vill fullan völl þegar Ísland tekur á móti Frakklandi á nýju grasi á Laugardalsvelli í næsta mánuði. Völlurinn verður klár, óvæntir eftirlitsmenn fylgjast með störfum vallarstarfsmanna og stríða þeim
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann opinberaði landsliðshóp fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni við Noreg og Frakkland. Íslenska liðið sækist eftir því að binda enda sjö leikja hrinu án sigurs.
Formaður KSÍ segir fyrirhugaða framkvæmd Reykjavíkurborgar að nýju skólaþorpi við Laugardalshöll vera vanhugsaða og illa skipulagða. Það blasi illa við sambandinu að troða eigi áformunum í gegnum kerfið.
Steven Lennon átti mörg frábær ár í íslensku deildinni sem leikmaður og hver veit nema að við sjáum hann líka þjálfa í deildinni í framtíðinni.
Veðmál eru orðin stór hluti af íþróttum og íþróttaáhorfi í dag. Fjögur sambönd innan íslenskra íþrótta skipuleggja umræður um þessa hlið íþróttanna.
Sértilgerð saumavél er að störfum á Laugardalsvelli þar sem unnið er dag og nótt í von um að Ísland geti spilað þar landsleik í júní. Tímarammi framkvæmdanna stendur og formaður KSÍ er bjartsýnn að markmiðið takist.
Það styttist í endurkomu Laugardalsvallar í íslenska fótboltann og sumardagurinn fyrsti var tímamótadagur fyrir þjóðarleikvanginn.
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusamband Íslands fundaði í dag. Þar voru tveir leikmenn úrskurðaðir í bann í næstu umferð Mjólkurbikars karla. Um er að ræða 16-liða úrslit og fara leikirnir fram 14. og 15. maí næstkomandi.
Margt hefur afrekast frá því að framkvæmdir hófust á Laugardalsvelli í október síðastliðnum. Stjórnendur hjá KSÍ eru nú í kapphlaupi við tímann að ná Laugardalsvelli leikfærum fyrir leik kvennalandsliðsins í júní.
Knattspyrnusamband Íslands fær góðan gest í heimsókn til landsins í næsta mánuði en þar er á ferðinni einn besti knattspyrnumaður heims á sínum tíma.
Stundum á maður varla orð. Ung kona með víðtæka og góða reynslu í kvennaboltanum. Þrátt fyrir ungan aldur þá er hún hokin af reynslu, bæði sem iðkandi og ekki síður sem sjálfboðaliði árum saman. Hún hefur gengið í öll þau fjölmörgu verk sem þarf að inna af hendi í kringum kvennaboltann til þess að allt gangi upp. Leggur svo sannarlega sitt af mörkum.
KR-ingar eru ósáttir við tveggja leikja bannið sem Aron Sigurðarson var úrskurðaður í vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn KA í 1. umferð Bestu deildar karla um síðustu helgi og vinnubrögð aganefndar KSÍ.
Formaður og varaformaður Knattspyrnusambands Íslands komu færandi hendi á hótel íslenska kvennalandsliðsins í gær.
Fjórir leikmenn voru kærðir vegna gruns um hagræðingu úrslita í leik í 2. deild karla á Íslandi í fyrra. Þeir voru allir úrskurðaðir saklausir, af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.
Framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands segir umfang veðmálastarfsemi í kringum fótbolta hérlendis áhyggjuefni. Nýlega var fyrirliði Bestu deildar liðs dæmdur í bann vegna veðmála. Í ljósi þess hyggst sambandið auka fræðslu.
„Þetta er bara eins og fótboltinn er. Stundum bara er þjálfarinn vitleysingur og velur þig ekki,“ segir Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, um son hans Jón Dag Þorsteinsson sem á fyrir höndum landsleik með karlalandsliðinu í kvöld.
Þorsteinn Halldórsson gæti orðið án landsliðsfyrirliðans Glódísar Perlu Viggósdóttur í fyrsta skipti á hans tíma með liðið í komandi leikjum í Þjóðadeild UEFA.
Davíð Smári Lamude, þjálfari karlaliðs Vestra í fótbolta, segir bann fyrirliða félagsins vegna veðmálabrota vera högg. Hann kveðst viss um að töluvert sé um veðmál hjá leikmönnum hérlendis.
Athygli vakti að Aron Einar Gunnarsson hafi verið valinn í fyrsta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir komandi leiki karlalandsliðsins í fótbolta við Kósóvó í umspili Þjóðadeildarinnar. Misjafnar skoðanir eru á valinu.
Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra í fótbolta, viðurkennir að hafa veðjað á leiki í Bestu deild karla. Hann segist hafa brugðist sjálfum sér og segir að dómstólar KSÍ muni fá mál hans til rannsóknar.
Knattspyrnusamband Ísland hefur staðfest hvar leikir A landsliðs kvenna í fótbolta fara fram í næsta mánuði en Ísland á tvo heimaleiki í Þjóðadeild UEFA í apríl.
Ársþing KSÍ fór fram um helgina. Auk afgreiðslu tillagna og breytinga á reglugerðum sambandsins voru framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt fyrir þingfulltrúum og gestum.
Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Axel Kára Vignisson í starf lögfræðings á skrifstofu KSÍ og hefur hann störf 1. mars næstkomandi.