Þröng staða stjórnarflokkanna kalli fram átakavetur Stjórnmálafræðiprófessor segir stefna í átakavetur í íslenskum stjórnmálum, vegna fylgistaps ríkisstjórnarflokkanna. Ný könnun sýni ýktan mun á milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks, sem hefur ekki mælst með minna fylgi. 29.7.2023 13:49
„Ég leigi íbúð, borga skatta og geri allt sem venjulegur maður gerir“ Ganverskur maður sem búið hefur hér á landi um árabil segist ekki skilja hvers vegna vísa eigi honum úr landi. Hann borgi sína skatta og lifi hér eðlilegu lífi. Í Gana bíði hans hins vegar ekkert nema gatan. 24.7.2023 21:00
Gosmóðan ekki á förum í bráð Veðurfræðingur býst við áframhaldandi gosmóðu og mengun á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni fram yfir helgi. Ekki er búist við vaxandi suðaustanátt fyrr en á þriðjudag. Loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfisstofnun hvetur þá sem eru veikir fyrir að hafa hægt um sig. 21.7.2023 22:35
„Hérna er allt þægilegt og kósí og mjúk teppi“ Hjón búsett í Úkraínu undirbúa nú listasýningu í Reykjavík, sem fjallar um innri ró þrátt fyrir yfirþyrmandi erfiðleika vegna innrásar Rússa. Verkin sem verða til sýnis voru unnin í Kænugarði, oft í niðamyrkri vegna rafmagnsleysis eftir árásir Rússa á borgina. 21.7.2023 20:00
Nýjar verðbólgutölur „mjög góð tíðindi“ Hagfræðingur segir uppfærðar verðbólgutölur Hagstofunnar gefa góð fyrirheit og að stýrivaxtahækkanir séu að bera árangur. Ársverðbólga í júlí mælist minni en sérfræðingar höfðu spáð. 21.7.2023 12:07
Þegar ég fór með 49 öðrum gaurum í bíó Það heyrir almennt ekki til tíðinda þegar karlmenn á þrítugsaldri, svokallaðir „gaurar“, hópa sig saman og fara í bíó. Í bíóhúsum borgarinnar má oft sjá þó nokkra gaura sitja saman með popp og kók og njóta þess að horfa saman á misgóðar kvikmyndir. En, miðvikudaginn 19. júlí 2023 fóru 50 gaurar saman í bíó. Þetta er okkar saga. 21.7.2023 08:45
Gefur lítið fyrir gagnrýni Guðmundar en kallar eftir auknu fjármagni Forstjóri Brims segir að þær upplýsingar sem Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir frá félaginu verði ekki afhentar, þar sem félagið telji að samningur eftirlitsins við matvælaráðuneytið sé óeðlilegur. Upplýsingarnar liggi fyrir, en málið snúist um prinsipp. Forstjóri eftirlitsins segir samninginn ekki óvenjulegan að neinu leyti, en segir þörf á algjörri umbyltingu á rekstrarformi eftirlitsins. 20.7.2023 15:01
Kólnun á húsnæðismarkaði dragi verðbólgu niður fyrir spár Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að samdráttur í íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu geti orðið til þess að verðbólga hjaðni hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Þó megi búast við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti í næsta mánuði. 19.7.2023 11:54
Hitinn óbærilegur á gönguleiðinni hjá Sturlu Íslendingur sem gengur vinsæla gönguleið þvert yfir Spán segir hitann í dag hafa verið óbærilegan en hitabylgja gengur nú yfir stóran hluta Evrópu. Göngufólk á leiðinni leggi mun fyrr af stað til að forðast versta hitann, en sumir hafi þrátt fyrir það helst úr lestinni. 18.7.2023 21:00
Langir dagar hjá slökkviliðinu: Hraunið nái til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst Niðurstöður HEC-RAS hermunar Verkís á rennsli hraunsins í gosinu við Litla-Hrút sýnir að hraunrennsli muni ná til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá rannsóknarstofu í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands. Slökkviliðsmenn hafa undanfarna daga beitt tveimur aðferðum við að slökkva í gróðureldum á svæðinu og mæðir mikið á slökkviliðsfólki. 18.7.2023 19:31