Kvöldfréttir Stöðvar 2 Talið er að fimmtíu óbreyttir borgarar hafi fallið og yfir þrjú hundruð særst í eldflaugaárás Rússa á lestarstöð í borginni Kramatorsk í suðausturhluta Úkraínu í morgun. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heimsótti Bucha í dag og segir grimmd Rússa þar skekja allt mannkynið. 8.4.2022 18:02
Stefna á að birta niðurstöður úttektarinnar í júní Ríkisendurskoðun hefur fallist á beiðni Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um úttekt á nýafstöðnu útboði og sölu á tæplega fjórðungshlut ríkisins í Íslandsbanka. Stefnt er að því að niðurstaðan verði birt í júní. 8.4.2022 17:32
Vaktin: Evrópusambandið bætir í refsiaðgerðir Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa nú gera árásir á Odesa frá Svartahafi. Innviðir hafi orðið fyrir skemmdum. Breska varnarmálaráðuneytið segir að svo virðist sem Rússar hafi nú alfarið yfirgefið norðurhluta landsins. 8.4.2022 06:49
Vilja eyða hleðslukvíða á djamminu Þau sem hafa lagt það í vana sinn að stunda næturlíf Reykjavíkurborgar kannast eflaust ófá við vandamálin sem geta fylgt því hversu mikið tak snjalltæki hafa á okkur flestum. Þegar á djammið er komið getur verið sérstaklega mikilvægt að hafa símann við hönd, og þá er eins gott að hann sé vel hlaðinn. 31.3.2022 07:00
Örkumlaðist við barnsburð og ætlar að stefna ríkinu Kona sem örkumlaðist við barnsburð hyggst stefna ríkinu vegna læknamistaka sem hún segir hafa átt sér stað við fæðinguna. 29.3.2022 22:10
Steinhissa á framkvæmdum í Tryggvagötu Framkvæmdir við Tryggvagötu í Reykjavík eru þyrnir í augum eins íbúa götunnar, sem einnig rekur þar tvo veitingastaði. Hann segir að hvorki íbúar né rekstraraðilar hafi verið látnir vita af framkvæmdunum fyrr en eftir að þær hófust og er óánægður með Reykjavíkurborg. 29.3.2022 22:01
Segir vorið komið en það þurfi sinn tíma til að fæðast Blautasti marsmánuður sögunnar í Reykjavík er nú senn á enda. Veðurfræðingur segir að vætutíðinni sé svo gott sem lokið, en úrkomumet var slegið í mánuðinum í höfuðborginni. 29.3.2022 19:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nokkur árangur virðist hafa náðst í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna í Tyrklandi í dag sem gæti leitt til beinna viðræðna á milli forseta landanna. Sjö óbreyttir borgarar féllu í árás á stjórnarbyggingu í Mykolaiv í dag og fjöldi manns særðist. 29.3.2022 18:01
Vaktin: Allt að 75 prósent herafla Rússlands sagður taka þátt í innrásinni Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, segir Atlantshafsbandalagið hafa ýtt Rússlandi út í horn með þenslustefnu sinni. Viðskiptaþvinganir Vesturlanda væru á við stríðsyfirlýsingu gegn Rússum. 29.3.2022 15:30
Smith biður Chris Rock afsökunar á kinnhestinum Leikarinn Will Smith hefur beðist afsökunar á að hafa slegið starfsbróður sinn, Chris Rock, á sviðinu á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Hann sló Rock eftir að sá síðarnefndi, sem var að kynna verðlaunaflokk á hátíðinni, grínaðist með hárgreiðslu Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will, en hún er með sjúkdóm sem veldur hárlosi. 28.3.2022 23:42