Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum. 1.8.2026 17:02
Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hefur óskað eftir því að boðað verði í skyndi til fundar innanríkisráðherraráðs ESB. Tugþúsundir manna hafa á síðustu dögum synt af stað frá Marokkó yfir í hólmlenduna Ceuta sem er hluti Spánar en staðsett á meginlandi Afríku. 1.8.2026 13:07
Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1.8.2026 11:23
Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Niceair kemur fram að starfsemi á Íslandi hefjist í fyrsta lagi vorið 2027. Sagt er að flug þess á meginlandinu hefjist nú í nóvember en ekki er upplýst milli hvaða staða verður flogið. 31.7.2026 13:50
Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Samtök Paul Watson leiða líkur að því að þau hafi með aðgerðum sínum frá því að hvalveiðitímabilið hófst bjargað lífi allt að þrjátíu langreyða. 31.7.2026 11:33
Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Landhelgisgæslan fylgdi Bandero, skipi aðgerðarsinna Paul Watson-samtakanna, til Sundahafnar í nótt. Vísir fylgist með gangi mála í beinni útsendingu og í vakt hér að neðan. 31.7.2026 08:41
Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði „Það er ísjaki sem lónar fyrir utan Straumnesvita. Þetta er heljarinnar fleki,“ staðfestir Sjöfn Guðmundsdóttir sem búsett er í Fljótum, um miðja vegu milli Hofsóss og Siglufjarðar. „En hann er alveg úti við sjóndeildarhring enn þá.“ 30.7.2026 17:16
Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Jonathan Angulo Cifuentes ökuleiðsögumaður fylgdist með skelfingu lostinn þegar Suzuki Jimny-jepplingur keyrði út af veginum og steyptist niður hlíðar Bolafjalls í gær. Hann segir ökumanninn hafa, á miklum hraða, tekið fram úr þremur rútum áður en hann missti stjórn á bílnum með þessum afleiðingum. 30.7.2026 14:20
Mosfellsdalur minnti á vígvöll „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. 30.7.2026 00:02
Kíkti í kaffi til kanslarans „Ég átti þar leið hjá og nýtti tækifærið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands í færslu, en hún hitti Friedrich Merz kanslara Þýskalands í vikunni. 29.7.2026 22:21