Pistorius sleppt úr fangelsi í janúar Fangelsisyfirvöld í Suður-Afríku hafa samþykkt umsókn Oscar Pistorius um reynslulausn. Honum verður því sleppt úr fangelsi þann 5. janúar. 24.11.2023 11:34
Kanadísk „ofursvín“ ógna Bandaríkjunum Íbúar nokkurra ríkja í norðanverðum Bandaríkjunum óttast innrás kanadískra „ofursvína“ og eru að grípa til aðgerða gegn þeim. Stofn svínanna hefur stækkað gífurlega í Kanada og óttast sérfræðingar þar að svínin muni valda hamförum á lífríkinu þar. 24.11.2023 11:23
Bær rýmdur eftir enn eitt lestarslysið Íbúum lítils þorps í Rockcastle-sýslu í Kentucky í Bandaríkjunum hefur verið leyft að snúa aftur til síns heima, eftir að bæirnir voru rýmdir í kjölfar lestarslyss. Minnst sextán lestarvagnar fóru af sporinu nærri Livingston og var þorpið rýmt í kjölfarið. 24.11.2023 09:56
Særði konu og þrjú börn með hníf í Dyflinni Stúlka og kona eru sagðar í alvarlegu ástandi eftir að maður réðst á konuna og hóp barna í miðborg Dyflinnar á Írlandi. Þrír aðrir, og þar af tvö börn, særðust einnig en ekki jafn alvarlega. 23.11.2023 15:58
Vopnahléið hefst í fyrramálið og þrettán gíslum sleppt Vopnahlé milli ísraelska hersins og Hamas-samtakanna hefst klukkan fimm í fyrramálið, að íslenskum tíma. Það er klukkan sjö að staðartíma. Þá verður fyrstu gíslunum sleppt fyrir fólk í haldi Ísraela klukkan sex seinni partinn á morgun. 23.11.2023 15:05
Saka Indverja um banatilræði í Bandaríkjunum Yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð hafa stöðvað banatilræði gegn síka-aðgerðasinna í Bandaríkjunum. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa rætt við ráðamenn í Indlandi um að þeir síðarnefndu hafi komið að tilræðinu. Stutt er síðan ríkisstjórn Kanada sakaði Indverja um að hafa komið að morði á leiðtoga aðskilnaðarsinna síka þar í landi. 23.11.2023 14:27
Áströlsk rokkstjarna á fyndnustu dýralífsmynd ársins Sigurvegari Comedy Wildlife Photography Awards 2023 hefur verið valinn. Fyndnasta dýralífsmynd ársins er af kengúru sem virðist vera að spila luftgítar. Jason Moore tók myndina, sem vann einnig til sigurs í flokki landdýra. 23.11.2023 14:01
Hélt fyrst að bíllinn væri flugvél Sprenging varð á landamærum Bandaríkjanna og Kanada við Niagarafossa í gærkvöldi. Það gerðist þegar bíll sem ekið var á miklum hraða að landamærunum, Bandaríkjamegin, tókst á loft og sprakk. Hjón létu lífið og einn landamæravörður slasaðist en enn liggur ekki fyrir af hverju bílnum var ekið á svo miklum hraða. 23.11.2023 10:36
Föruneyti Pingsins: Barist í Baldur's Gate Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3. 22.11.2023 19:31
Dæmdur fyrir að afhöfða mann með flugvél Franskur flugmaður hefur verið sakfelldur fyrir að afhöfða fallhlífarstökkvara með flugvélarvæng árið 2018. Flugmaðurinn flaug á fallhlífarstökkvarann, sem hafði skömmu áður stokkið úr þessari sömu flugvél, í um fjögur þúsund metra hæð. 22.11.2023 14:11