Bjargvætturinn Benzema alltaf til staðar þegar mest á reynir Þegar tímabil Real Madrid virtist endanlega vera fara fjandans til þá steig hinn 33 ára gamli Karim Benzema upp, setti liðið á herðar sér og dró það í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. 20.12.2020 10:00
Anton Sveinn og Snæfríður Sól sundfólk ársins Sundsamband Íslands útnefndi í dag þau Anton Svein McKee og Snæfríði Sól Jórunnardóttur sem sundfólk ársins. Anton Sveinn syndir fyrir Sundfélag Hafnafjarðar og er sundmaður ársins þriðja árið í röð. Snæfríður Sól syndir fyrir Álaborg í Danmörku. 18.12.2020 17:30
Bronze fyrst Breta til að vera kosin best Lucy Bronze var í gær valin leikmaður ársins 2020 í kosningu Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Er hún fyrst Breta til að vinna slík verðlaun, sama hvort um er að ræða í karla- eða kvennaflokki. 18.12.2020 17:00
Rússland í 5. sæti eftir öruggan sigur á heimsmeisturum Hollands Rússland mætti Hollandi í leiknum um 5. sætið á Evrópumótinu í handbolta. Heimsmeistarar Hollands stóðu ekki undir væntingum á mótinu og fór það svo að Rússar unnu sannfærandi sigur í dag. Lokatölur 33-27. 18.12.2020 16:16
Lenda alltaf undir á útivelli en vinna samt Sigur Manchester United á Sheffield United í gærkvöld var tíundi sigur liðsins á útivelli í röð í ensku úrvalsdeildinni. Á þessu tímabili hefur liðið alltaf lent undir á útivelli en samt tekist að knýja fram sigur. 18.12.2020 15:30
Steinunn og Guðmundur Ágúst íþróttafólk ársins í Reykjavík Steinunn Björnsdóttir, handknattleikskona úr Fram og atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR eru íþróttakona og íþróttamaður ársins hjá Reykjavíkurborg árið 2020. 18.12.2020 15:16
Íslenska landsliðið fer til Póllands frá Færeyjum Knattspyrnusamband Íslands staðfesti í dag annan æfingaleik íslenska karlalandsliðsins næsta sumar. Sá er gegn Pólverjum þann 8. júní. Fer leikurinn fram í Poznan. 18.12.2020 15:01
Mikill meirihluti leikmanna vill halda áfram að krjúpa Leikmannasamtök knattspyrnumanna á Englandi hafa staðfest að stór meirihluti leikmanna deildarinnar vilji halda áfram að krjúpa fyrir leiki. Er þetta gert til að sýna stuðning í verki og sporna gegn kynþáttaníði. 18.12.2020 13:45
Valgeir þvær fötin í baðkarinu og stefnir á aðalliðið Hinn 18 ára gamli Valgeir Valgeirsson hefur æft með aðalliði Brentford nýverið en hann er á láni hjá félaginu frá HK. Valgeir býr á hóteli og hefur þurft að þvo föt sín í baðkarinu þar sem hann hefur ekki aðgang að þvottavél. 18.12.2020 12:46
Al-Arabi leikur til úrslita í fyrsta skipti í 27 ár Íslendingalið Al-Arabi leikur til úrslita í Emír bikarnum á morgun. Þó gengið í deildinni hafi ekki verið gott þá hefur liðinu gengið vel í bikarnum og er leikurinn besti möguleiki liðsins til að komast í Meistaradeild Asíu. 17.12.2020 18:00