Þjálfari Hattar lét dómarana fá það óþvegið eftir gríðarlega svekkjandi tap gegn KR Höttur tapaði á einhvern ótrúlegan hátt gegn KR í gærkvöld í Dominos-deild karla í körfubolta. Höttur var sjö stigum yfir þegar 90 sekúndur voru til leiksloka en hentu frá sér sigrinum. 19.3.2021 07:00
Dagskráin í dag: Dregið í Meistara- og Evrópudeild, stórleikur í Keflavík ásamt Seinni bylgjunni og Körfuboltakvöldi Það er fjörugur föstudagur framundan á rásum Stöðvar 2. Dregið er í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu sem og Evrópudeildinni. Keflavík og Njarðvík mætast í Dominos-deild karla og svo mikið meira. 19.3.2021 06:00
Skelfileg tækling Kemar Roofe skyldi markvörð Slavia Prag óvígan eftir Kemar Roofe, fyrrum framherji Víkings Reykjavíkur og núverandi framherji Rangers, fékk rautt spjald er lið hans tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Slavia Prag í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og féll í kjölfarið úr leik. 18.3.2021 23:51
„Vorum skelfilegir í fyrri hálfleik“ Luke Shaw átti fínan leik í liði Manchester United er liðið vann 1-0 útisigur á San Siro í Mílanó og tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Hann sagði að leikmenn Man Utd hefðu verið skelfilegir í fyrri hálfleik. 18.3.2021 22:45
Pogba skaut Manchester United áfram í átta liða úrslit Manchester United vann 1-0 útisigur á AC Milan í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. 18.3.2021 22:15
Villareal og Ajax örugglega áfram Villareal og Ajax eru öll komin í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir sigra í kvöld. 18.3.2021 22:11
Mourinho áhyggjufullur eftir hörmulegt tap Tottenham | Myndband José Mourinho var myrkur í máli er hann ræddi við blaðamenn að loknu 3-0 tapi Tottenham Hotspur gegn Dinamo Zagreb í kvöld. Með því er Tottenham dottið út úr Evrópudeildinni og möguleikar liðsins á að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta ári orðnir litlir sem engir. 18.3.2021 21:46
Nýliðarnir fá liðsstyrk frá Venesúela Leiknir Reykjavík hefur samið Octavio Páez um að leika með liðinu í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar. Páez kemur frá Venesúela og er samkvæmt Leikni fyrsti leikmaðurinn frá téðu landi til að leika í deildinni. 18.3.2021 21:30
Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar fá að mæta til Þýskalands Þeir knattspyrnumenn sem leika í ensku úrvalsdeildinni mega ferðast til Þýskalands. Þetta kom fram á vef þýska knattspyrnusambandsins nú í kvöld. 18.3.2021 20:14
Molde úr leik þrátt fyrir sigur á meðan Roma fór örugglega áfram Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde sem vann Granada 2-1 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Granda vann fyrri leikinn 2-0 og fer því áfram í 8-liða úrslitin. Þá vann Roma 2-1 útisigur á Shakhtar Donetsk og einvígið þar með 5-1. 18.3.2021 20:01