Braut viljandi á Azpilicueta og myndi gera það aftur Það er sjaldan lognmolla í kringum hinn fertuga Zlatan Ibrahimović. Hann er leikmaður AC Milan á Ítalíu og sneri til baka í sænska landsliðið á dögunum. Þar komst hann í heimsfréttirnar fyrir að keyra harkalega inn í César Azpilicueta, leikmann Chelsea og Spánar. 22.11.2021 23:30
Lætin í Detroit gætu verið vendipunktur tímabilsins fyrir Lakers Los Angeles Lakers hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabils í NBA-deildinni í körfubolta. Mikil læti áttu sér stað í leik Lakers og Detroit Pistons, Lebron James var hent út úr húsi en Lakers kom til baka og vann slakt lið Detroit. Voru lætin það sem þurfti til að vekja Lakers? 22.11.2021 23:01
Leikmannasamtök Íslands formlega tekin inn í FIFPRO Leikmannasamtök Íslands voru nýverið tekin inn í FIFPRO, alþjóðlegu leikmannasamtökin, á ársþingi samtakanna sem fram fór í París. 22.11.2021 22:30
Ramos loksins klár í slaginn Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos verður í leikmannahópi París Saint-Germain er liðið sækir Manchester City heim í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Ramos hefur verið frá vegna meiðsla síðan hann gekk í raðir PSG í sumar. 22.11.2021 21:45
Ragnar Örn öfundar Brynjar Þór: „Væri til í að vera jafn smooth og hann í að vera fantur“ Ragnar Örn Bragason, leikmaður Íslandsmeistara Þórs Þorlákshafnar, segist mjög hrifinn af KR-ingnum Brynjari Þor Björnssyni sem leikmanni. Þá segist hann vera til í að vera jafn „smooth“ og Brynjar Þór þegar kemur að fantaskap. 22.11.2021 20:00
Bestu leikmenn ársins: Barcelona og PSG einoka listana Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur birt lista yfir þau sem eru tilnefnd sem leikmenn ársins. Segja má að það þeir sömu og venjulegu séu tilnefndir hjá körlunum á meðan ofurlið Barcelona einokar listann í kvennaflokki. 22.11.2021 19:16
Dagný í liði vikunnar á Englandi Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir var valin í lið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hún skoraði sigurmark West Ham United gegn Tottenham Hotspur í 1-0 sigri í gær, sunnudag. 22.11.2021 18:31
Southgate stýrir enska landsliðinu til 2024 Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, hefur skrifað undir nýjan samning við enska knattspyrnusambandið. Hann mun stýra enska karlalandsliðinu í knattspyrnu til desember 2024 hið minnsta. 22.11.2021 17:46
Dagskráin í dag: Olís deild karla og undankeppni HM Það er nóg um að vera á þessum líka fína mánudegi á rásum Stöðvar 2 Sport. 22.11.2021 06:01
Stórleikur Bayern og Barcelona fyrir luktum dyrum vegna veirunnar Engir áhorfendur verða í stúkunni er Bayern München og Barcelona mætast í Meistaradeild Evrópu þann 8. desember. Ástæðan er fjórða bylgja kórónufaraldursins. 20.11.2021 09:51