Willum Þór áfram í Hvíta-Rússlandi Miðjumaðurinn Willum Þór Þórsson verður í herbúðum BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi út þetta ár. Hann er loks orðinn góður af meiðslum sem hafa plagað hann undanfarið og ætlar sér stóra hluti á árinu. 11.2.2022 20:31
Ísak Bergmann sá um Blika: Sjáðu mörkin Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði tvívegis er FC Kaupmannahöfn lagði Breiðablik í markaleik á æfingamótinu Atlantic Cup sem nú fer fram í Portúgal. Lokatölur 4-3 Kaupmannahafnarliðinu í vil. 11.2.2022 19:00
Nýtti tímann vel í einangrun: „Datt í hug að búa til heimasíðu fyrir fyrirtæki sem ég og pabbi minn erum að reka“ Skíðakappinn Sturla Snær Snorrason er meðal þátttakenda á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Hann greindist með kórónuveruna síðastliðinn laugardag og var í kjölfarið sendur á hálfgert „gámasjúkrahús“ þar sem hann nýtti tímann heldur betur fer. 11.2.2022 18:35
Aron Elís leikmaður ársins hjá OB: „Hafði aldrei spilað sem djúpur miðjumaður áður“ Landsliðsmaðurinn Aron Elís Þrándarson hefur verið kjörinn leikmaður ársins 2021 hjá danska úrvalsdeildarfélaginu OB. Hann segist mjög stoltur yfir valinu, sérstaklega í ljósi þess að hann spilar nú stöðu sem hann hafði aldrei gert áður en hann kom til Danmerkur. 11.2.2022 18:01
Segir ásakanir um kynferðisbrot vera misskilning Peng Shuai, kínverska tenniskonan sem gufaði upp af yfirborði jarðar í nokkrar vikur síðasta haust eftir að ásaka háttsettan mann innan kínversku ríkisstjórnarinnar um kynferðisbrot, segir málið vera byggt á misskilningi. 8.2.2022 07:01
Dagskráin í dag: Áhugaverður leikur í Safamýri, hart barist í Ljósleiðaradeildinni, körfubolti og golf Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 8.2.2022 06:01
Kepptu með grímur vegna veirunnar Leikur Kanada og Rússlands í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum sem nú fara fram í Peking vakti mikla athygli þar sem bæði lið kepptu með grímur til að koma í veg fyrir að leikmenn smituðust af veirunni. 7.2.2022 23:31
Chelsea borgar skaðabætur vegna ofbeldis sem fyrrverandi leikmenn félagsins urðu fyrir Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur ákveðið að borga fjórum fyrrverandi leikmönnum félagsins skaðabætur vegna kynþáttaníðs sem þeir urðu fyrir af hálfu þjálfara sinna á tíunda áratug síðustu aldar. 7.2.2022 23:00
Enn nokkrar vikur í Jóhann Berg | Brasilíumennirnir hjá Man Utd með veiruna Jóhann Berg Guðmundsson verður enn fjarri góðu gamni er Burnley mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Sömu sögu er að segja af þeim Alex Telles og Fred en báðir nældu sér í kórónuveiruna á dögunum. 7.2.2022 21:31
Úrslitaleik Reykjavíkurmótsins frestað vegna óveðurs Þróttur Reykjavík var 2-0 yfir gegn Íslandsmeisturum Vals í úrslitum Reykjavíkurmóts kvenna í knattspyrnu er flauta þurfti leikinn af vegna veðurs. 7.2.2022 20:46