Sóley Margrét nældi í silfur á EM og setti Íslandsmet í leiðinni Sóley Margrét Jónsdóttir vann til silfurverðlauna samanlagt í plús 84 kg flokki á Evrópumótinu í kraftlyftingum. Sóley Margrét bætti eigin Íslandsmet og vann til verðlauna í öllum greinum. Hún vann gull í hnébeygju. 8.5.2022 13:25
Chelsea varði Englandsmeistaratitilinn þökk sé sigri á Man United Chelsea er Englandsmeistari kvenna í fótbolta eftir 4-2 sigur á Manchester United er lokaumferð deildarinnar fór fram. Arsenal endar stigi á eftir Chelsea eftir 2-0 útisigur á Dagný Brynjarsdóttur og stöllum hennar í West Ham United. 8.5.2022 13:00
Sjáðu: Rautt spjald og „rangstöðumark“ í Vesturbæ, markasúpur á Skaganum og í Keflavík ásamt baráttunni í Garðabæ Það var nóg um að vera í Bestu deild karla á laugardaginn. Hér að neðan má sjá markasúpurnar upp á Akranesi og í Keflavík, rauða spjaldið og „rangstöðumarkið“ í Vesturbænum ásamt mörkunum í 1-1 jafntefli Stjörnunnar og Fram. 8.5.2022 12:06
KR aðeins unnið fimm af síðustu tuttugu heimaleikjum Leik KR og KA í Bestu deild karla í fótbolta lauk með markalausu jafntefli. Það þýðir að KR-ingar hafa aðeins unnið fimm af síðustu 20 heimaleikjum sínum í efstu deild. Sex leikjum hefur lyktað með jafntefli og níu hafa tapast. 8.5.2022 11:35
Verstappen gagnrýnir áreiðanleika RedBull Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 kappakstri, hefur gagnrýnt áreiðanleika liðs síns, Red Bull, eftir tímatökuna fyrir Miami-kappaksturinn. Verstappen telur RedBull vera að skaða möguleika sína á að verja heimsmeistaratitilinn. 8.5.2022 11:00
Vann átjánda og nítjánda Íslandsmeistaratitilinn um helgina Anna Soffía Víkingsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann sinn átjánda og nítjánda Íslandsmeistaratitil í júdó í Digranesi á laugardag þar sem Íslandsmótið í júdó fór fram. 8.5.2022 10:31
Komin 26 ár síðan leikmaður byrjaði Íslandsmót betur en Ísak Snær í ár Ísak Snær Þorvaldsson hefur farið lygilega vel af stað með Breiðablik í Bestu deild karla. Þegar fjórar umferðir eru búnar hefur hann skorað sex mörk. Fara þarf 26 ár aftur í tímann til að finna mann sem skoraði meira eftir jafn margar umferðir og Ísak Snær í ár. 8.5.2022 10:00
Stríðsmennirnir sölluðu Skógarbirnina niður Golden State Warriors er komið 2-1 yfir í einvígi sínu gegn Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta eftir stórsigur í nótt, 142-112. 8.5.2022 09:31
Þrír tugir handteknir vegna óláta í kringum leik Frankfurt og West Ham Eintracht Frankfurt og West Ham United mættust í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í vikunni. Mikil ólæti stuðningsfólks beggja liða setti svartan blett á leikinn en alls hafa þrjátíu manns verið handteknir vegna hegðunar sinnar í aðdraganda leiksins. 7.5.2022 09:00
Man Utd eytt 5.7 milljónum punda í hvert stig frá því Sir Alex Ferguson hætti Síðan hinn goðsagnakenndi Sir Alex Ferguson hætti sem þjálfari Manchester United hefur félagið eytt 5.7 milljónum punda í leikmannakaup og laun fyrir hvert stig sem það hefur fengið í ensku úrvalsdeildinni. Það samsvarar 927 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi. 7.5.2022 08:00