Lokahóf HSÍ: Magnús Óli mikilvægastur og Óðinn Þór bestur | Rut Arnfjörð vann tvöfalt Lokahóf Handknattleikssambands Íslands fór fram í dag. Magnús Óli Magnússon, leikmaður Vals, var valinn mikilvægasti leikmaður Olís deildar karla á meðan Rut Arnfjörð Jónsdóttir var valin mikilvægust í Olís deild kvenna. 2.6.2022 12:45
Rüdiger til liðs við Evrópumeistara Real Madríd Þýski miðvörðurinn Antonio Rüdiger er genginn til liðs við Real Madríd. Orðrómar þess efnis hafa verið háværir undanfarnar vikur en vistaskiptin voru loks staðfest í dag. 2.6.2022 12:00
Guðmundur ekki áfram í Álaborg Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson mun ekki leika áfram með danska úrvalsdeildarliðinu AaB frá Álaborg þar sem félagið hefur ákveðið að framlengja ekki samning hans. 2.6.2022 10:31
Sara Björk fékk væna flugferð eftir lokaleik sinn fyrir Lyon Landsiðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir róir á önnur mið í sumar en ljóst er að hún verður ekki áfram á mála hjá Evrópu- og Frakklandsmeisturum Lyon. Hún lék lokaleik sinn fyrir félagið á miðvikudag og var tolleruð að loknum 4-0 sigri á Issy. 2.6.2022 10:00
Sjáðu sigurmark Óttars Magnúsar í uppbótartíma | Markahæstur frá upphafi Óttar Magnús Karlsson tryggði Oakland Roots 3-2 sigur á Orange County SC í nótt með frábæru marki úr aukaspyrnu í uppbótartíma. Staðan var 2-1 Orange County í vil þegar venjulegum leiktíma lauk. 2.6.2022 09:00
Rangur maður á röngum tíma Í gær var staðfest að Paul Pogba myndi yfirgefa Manchester United á frjálsri sölu í sumar. Er þetta í annað sinn sem það gerist og í bæði skiptin hefur það skilið eftir súrt bragð í munni stuðningsfólks Man United. 2.6.2022 08:00
Ísak Snær ekki með gegn Val | Atli Hrafn aftur í bann Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur birt lista yfir þá leikmenn og þjálfara Bestu deildar karla sem verða í leikbanni er deildin hefst á nýjan leik um miðjan júní eftir landsleikjahlé. Markahæsti maður deildarinnar er þar á meðal. 1.6.2022 17:01
Real horfir til Manchester fyrst Mbappé kom ekki Evrópu- og Spánarmeistarar Real Madríd vilja fá Raheem Sterling, leikmann Manchester City, í sínar raðir. Á hann að leysa Kylian Mbappé af hólmi en talið var nær öruggt að franski framherjinn myndi ganga í raðir Real í sumar. 1.6.2022 16:30
Segir sprengjuhótunina hafa verið yfir strikið Harry Maguire, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, segir að hann geti vel tekið gagnrýni á eigin frammistöðu en að það hafi verið farið yfir strikið þegar sprengjuhótun barst á heimili hans fyrr á þessu ári. 1.6.2022 15:30
Fyrrverandi leikmaður Liverpool segir Thiago einn þann ofmetnasta í Evrópu Dietmar Hamann, fyrrverandi miðvallarleikmaður enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur ekki mikið álit á spænska miðjumanninum Thiago Alcântara. 1.6.2022 15:01