Léku í sömu búningum gegn Englandi og kvennalandsliðið mun gera á EM Þýskaland og England gerðu 1-1 jafntefli er þjóðirnar mættust í Þjóðadeildinni í knattspyrnu. Búningur þýska liðsins vöktu athygli en karlalandsliðið lék í sömu treyjum og kvennalandsliðið mun gera á Evrópumótinu sem hefst þann 6. júlí næstkomandi. 8.6.2022 08:31
Mickelson til liðs við Sádi-arabísku ofurdeildina Phil Mickelson mun spila á fyrsta móti LIV-mótaraðarinnar í golfi. Mótaröðin er styrkt af Sádi-Arabíu og er talin einkar umdeild. 7.6.2022 17:01
Elín Sóley aftur til liðs við Val Valskonur hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Subway-deild kvenna í körfubolta. Eín Sóley Hrafnkelsdóttir mun leika með liðinu næstu tvö ár. Frá þessu greindi félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. 7.6.2022 15:31
Meistararnir með augastað á Bukayo Saka Orðrómar þess efnis að Englandsmeistarar Manchester City ætli sér að festa kaup á enska vængmanninum Bukayo Saka verða hærri og hærri með hverjum deginum. 7.6.2022 14:31
Íhugaði að hætta en fékk svo risasamning Aaron Donald íhugaði að leggja skóna á hilluna og hætta að spila í NFL-deildinni. Honum snerist hugur, fékk risasamning og stefnir nú á að vinna deildina annað árið í röð með Los Angeles Rams. 7.6.2022 14:02
Ragnar heim í Hamar Ragnar Ágúst Nathanaelsson hefur samið við uppeldisfélag sitt Hamar og mun leika með liðinu í 1. deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Hann var orðaður við ýmis lið í Subway deildinni en ákvað á endanum að söðla um og halda heim á leið. 7.6.2022 13:01
Salah neitaði að fara í myndatöku vegna meiðsla og spilaði svo allan leikinn Mohamed Salah var að glíma við meiðsli fyrir leik Egyptalands og Gíneu á sunnudag. Liverpool, atvinnuveitandi hans, bað hann um að fara í myndatöku fyrir leik en hinn 29 ára gamli Salah neitaði. 7.6.2022 12:30
Forseti Bayern segir Lewandowski samningsbundinn og muni spila áfram með félaginu Forseti Þýskalandsmeistara Bayern München, segir að Robert Lewandowski eigi ekki að vera tjá sig um framtíð sína þar sem hann er samningsbundinn félaginu. 7.6.2022 12:01
Þrír íslenskir kylfingar fyrir ofan Tiger á heimslistanum Tiger Woods tók nokkuð óvænt þátt á PGA-meistaramótinu í golfi í síðasta mánuði en þurfti á endanum að draga sig úr keppni þar sem hann treysti sér ekki til að halda áfram. Hann er sem stendur í 881. sæti heimslistans í golfi en þrír Íslendingar eru fyrir ofan hann á listanum. 7.6.2022 11:30
Hannes Þór um mark Albaníu: „Mikil einföldun að hann eigi að gera betur“ Ísland og Albanía gerðu 1-1 jafntefli í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í gærkvöld. Landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi kom Rúnari Alex Rúnarssyni til varnar en margur taldi að hann hefði átt að geta betur í marki Albaníu. 7.6.2022 11:01