Vill að Evrópa gefi efnilegum leikmönnum utan álfunnar tækifæri Arsène Wenger er hvað frægastur fyrir að hafa stýrt enska knattspyrnufélaginu Arsenal frá 1996 til 2018. Á þeim tíma gaf hann fjölda efnilegra leikmanna tækifæri og oftar en ekki um að ræða leikmenn sem voru uppaldir utan Evrópu. Hann vill sjá Evrópu gera slíkt hið sama nú. 10.6.2022 12:01
Ómar Ingi og Bjarki Már geta báðir orðið markakóngar á sunnudag Stórskyttan Ómar Ingi Magnússon og hornamaðurinn Bjarki Már Elísson eiga báðir góða möguleika á að verða markakóngar þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Ómar Ingi var markakóngur á síðustu leiktíð og gæti þar með skráð sig í einkar fámennan hóp. 10.6.2022 11:30
Salah og Kerr best | Son ekki í liði ársins Leikmannasamtök Englands, PFA, völdu Mohamed Salah, leikmann Liverpool, og Sam Kerr, leikmann Chelsea, sem bestu leikmenn tímabilsins 2021/2022 á Englandi. Manchester City átti bestu ungu leikmennina og þá vakti athygli að Son Heung-Min var ekki í liði ársins. 10.6.2022 10:30
Gríðarlegt ósætti með frammistöðuna: Fáum alltaf alvöru leik með Arnar Þór sem þjálfara Ísland marði San Marínó í vináttulandsleik í fótbolta í gærkvöld. Segja má að Twitter hafi logað á meðan leik stóð og eftir leik en frammistaða íslenska liðsins var ekki upp á marga fiska. 10.6.2022 09:29
Matthías Örn mætir heimsmeistaranum í kvöld: „Draumur að rætast“ Matthías Örn Friðriksson, þrefaldur Íslandsmeistari í pílukasti, tekur þátt á gríðarsterku móti í Kaupmannahöfn í dag. Hann hefur leik gegn heimsmeistaranum Peter Wright, eða Snakebite, en er lítið að spá í því þar sem það er einfaldlega draumur að rætast. 10.6.2022 09:00
Lið Óttars segir öldungardeildarþingmanni að halda sig frá félaginu Bandaríska fótboltaliðið Oakland Roots hefur sent öldungardeildarþingmanninum Ted Cruz skýr skilaboð eftir nýjasta útspil þingmannsins á Twitter-síðu sinni. Óttar Magnús Karlsson leikur með félaginu. 10.6.2022 08:31
Forseti UFC gaf Gunnari Nelson veglega gjöf eftir síðasta bardaga Gunnar Nelson fékk veglega gjöf frá Dana White, forseta UFC-sambandsins, eftir bardaga kappans í mars á þessu ári. 10.6.2022 08:00
„Sé annan brag á Kristínu Ernu núna en ég hef séð í langan tíma“ Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði sigurmark ÍBV er liðið lagði Keflavík 3-2 í 8. umferð Bestu deildar kvenna á dögunum. Farið var yfir frammistöðu Kristínar Ernu í Bestu mörkunum að leik loknum. 9.6.2022 23:31
Chelsea búið að sækja fyrsta leikmanninn eftir breytingu á eignarhaldi félagsins Ève Périsset varð fyrsti leikmaðurinn til að semja við Chelsea eftir að salan á félaginu gekk í gegn. Kemur hún á frjálsri sölu frá Bordeaux í Frakklandi. 9.6.2022 17:01
Segir Barcelona þurfa tæplega hálfan milljarð evra til að „bjarga“ félaginu Eduard Romeu, varaforseti fjármáladeildar Barcelona, telur félagið þurfa 427 milljónir evra svo hægt sé að bjarga því frá glötun. 9.6.2022 16:00