Fyrrverandi stórstjarna Barcelona og Inter Milan fékk 22 mánaða dóm Samuel Eto'o, fyrrverandi sóknarmaður Barcelona, Inter Milan og mun fleiri liða, hefur verið dæmdur í 22 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Eto'o játaði að hafa svikið 3,2 milljónir evra undan skatti er hann spilaði fyrir Barcelona. 21.6.2022 07:30
Sofia Sóley og Rafn Kumar vörðu Íslandsmeistaratitla sína Sofia Sóley Jónasdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur vörðu Íslandsmeistaratitla sína í einliðaleik í tennis á sunnudag. 20.6.2022 16:00
Evrópumeistararnir frá 2017 og 2019 að öllum líkindum ekki með á næsta ári Það virðist sem stórliðið Vardar Skopje frá Norður-Makedóníu, Evrópumeistarar 2017 og 2019, verði ekki með í Meistaradeild Evrópu í handbolta á næsta ári vegna fjárhagsvandræða. 20.6.2022 15:00
Blikar missa einn sinn besta leikmann í glænýtt lið Hildur Antonsdóttir hefur samið við hollenska félagið Fortuna Sittard. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Fortuna sem og Breiðabliks en hollenska félagið kaupir Hildi af Blikum. 20.6.2022 14:31
„Kom ekkert annað til greina, þetta skiptir svo miklu máli“ Arnar Grétarsson, þjálfari KA í Bestu deild karla í fótbolta, er gríðarlega ánægður með nýja aðstöðu KA á Akureyri. Þó enn sé nokkuð í land að félagið verði með aðstöðu sem jafnist á við þær bestu hér á landi er um að ræða skref í rétta átt. Arnar lagði sjálfur hönd á plóg. 20.6.2022 13:01
„Að yfirburðirnir yrðu svona miklir lét ég mig ekki dreyma um“ Guðjón Valur Sigurðsson náði fantaárangri í vetur sem þjálfari Gummersbach í þýsku B-deildinni í handbolta. Hann er á sínu öðru tímabili með liðið og mun stýra liðinu í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. 20.6.2022 12:01
KV kveður Sigurvin sem verður aðstoðarþjálfari Eiðs Smára hjá FH Sigurvin Ólafsson mun hætta sem aðalþjálfari KV í Lengjudeild karla í fótbolta og sem aðstoðarþjálfari KR í Bestu deild karla til að taka við starfi aðstoðarþjálfara FH sem leikur í sömu deild og KR. 20.6.2022 11:05
Tuttugu dagar í EM: „Með þá lágmarkskröfu á klefatónlist að það sé hægt að syngja með laginu“ Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Hallbera Guðný Gísladóttir ríður á vaðið. 20.6.2022 11:02
Álftanes safnar liði: Dúi Þór kynntur til leiks Leikstjórnandinn Dúi Þór Jónsson er genginn til liðs við Álftanes sem leikur í 1.deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Dúi Þór gengur til liðs við Álftnesinga frá Þór Akureyri sem lék í Subway-deild karla á síðustu leiktíð. 20.6.2022 10:31
Saga og Sigurður Bjarki Íslandsmeistarar í holukeppni Íslandsmeistaramótið í holukeppni í golfi fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ á sunnudag. Þar báru Saga Traustadóttir úr GKG og Sigurður Bjarki Blumenstein úr GR sigur úr býtum. 20.6.2022 10:00