Świątek jafnaði 25 ára gamalt met Tenniskonan Iga Świątek er vægast sagt að spila vel um þessar mundir. Hún lagði Lesley Pattinama Kerkhove í annarri umferð á Wimbledon-mótinu sem nú fer fram í Lundúnum. Hefur hún nú unnið síðustu 37 viðureignir sínar á tennisvellinum. 30.6.2022 20:31
Vill sjá fullan Ólafssal er Holland kemur í heimsókn „Maður tók eina góða viku fyrir norðan áður en maður kom hingað og byrjaði aftur með strákunum. Maður getur ekki kvartað, svo tekur maður júlí frekar. Er það ekki betri mánuður,“ spurði landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason kíminn en hann er einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins í körfubolta sem mætir Hollandi annað kvöld. 30.6.2022 20:00
Durant vill yfirgefa Brooklyn Nets Kevin Durant, eitt stærsta nafnið í NBA-deildinni í körfubolta, ætlar sér að yfirgefa Brooklyn Nets. Talið er að hann vilji helst fara til Phoenix Suns eða Miami Heat. 30.6.2022 19:25
Sogndal áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni Íslendingalið Sogndal er komið áfram í norska bikarnum í fótbolta. Eftir 1-1 jafntefli við KFUM Oslo þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem Íslendingafélagið hafði betur. 30.6.2022 19:00
Barcelona reynir að ræna Raphinha af Chelsea Spænska knattspyrnufélagið Barcelona reynir hvað það getur til að fá Brasilíumanninn Raphinha í sínar raðir. Leikmaðurinn ku vera á leið frá Leeds United til Chelsea en Börsungar hafa ekki lagt árar í bát. 30.6.2022 18:31
England gekk frá Sviss í síðari hálfleik England mætti Sviss í síðasta leik liðsins áður en Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefst þann 6. júlí næstkomandi. Eftir markalausan fyrri hálfleik setti enska liðið í fimmta gír og skoraði fjögur mörk í síðari hálfleik, lokatölur 4-0 Englandi í vil. 30.6.2022 18:05
Áhugi frá Englandi, Ítalíu og Þýskalandi Fjöldi liða virðist hafa áhuga á íslenska landsliðsmanninum Mikael Neville Anderson sem leikur með danska úrvalsdeildarfélaginu AGF. 30.6.2022 17:31
Umfjöllun og myndir: Pólland - Ísland 1-3 | Flottur síðari hálfleikur en betur má ef duga skal Ef til vill segir það allt um gæði íslenska landsliðsins og þá kröfur sem gerðar eru á að liðið að 3-1 útisigur á Póllandi er ekki talið nægilega gott. Eftir að lenda 1-0 undir í blálok fyrri hálfleiks svaraði íslenska liðið með þremur mörkum í þeim síðari og vann að mörgu leyti sannfærandi sigur. 29.6.2022 15:35
Hefur óþol fyrir kjaftæði, segir það sem honum finnst og er með einkar þétt handaband Grétar Rafn Steinsson var á dögunum ráðinn til enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspur þar sem hann mun hafa umsjón með frammistöðu leikmanna liðsins. 28.6.2022 07:01
Willum Þór á faraldsfæti um áramótin Það stefnir í að Willum Þór Willumsson skipti um lið er samningur hans við BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi rennur út um áramótin. 27.6.2022 23:31