Fá greiddan launaauka en enga yfirvinnu Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafa fengið greidda launaauka vegna álags í heimsfaraldrinum upp á samtals tæpa fimm og hálfa milljón. Víðir Reynisson og Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavörnum hafa unnið rúma 2.500 yfirvinnutíma samanlagt síðustu fimmtán mánuðum. 5.6.2021 20:55
Guðlaugur leiðir eftir fyrstu tölur Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er með flest atkvæði í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir fyrstu tölur. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra er í öðru sæti. 5.6.2021 19:05
Kjörstaðir opnir lengur vegna langra raða Langar raðir höfðu myndast fyrir utan kjörstaði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar þeir lokuðu klukkan 18 í kvöld. Þeir sem höfðu náð í röð fyrir klukkan 18 fengu að kjósa og var kosningin enn í gangi klukkan 18:25 þegar Vísir náði tali af yfirkjörstjórn flokksins. 5.6.2021 18:38
Vill nýja ríkisstjórn í anda R-listans Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segist lesa það úr nýlegum skoðanakönnunum að flokkur hans geti haft forgöngu um að mynda ríkisstjórn í anda R-listans eftir kosningar í haust. 5.6.2021 17:46
Kvartað undan bróður Áslaugar til yfirkjörstjórnar Kvartað hefur verið til yfirkjörstjórnar Sjálfstæðisflokksins vegna prófkjörs flokksins í Reykjavík vegna gruns um að bróðir dómsmálaráðherra hafi nýtt sér beinan aðgang að félagaskrá flokksins í prófkjörsbaráttunni sem nú stendur yfir í Reykjavík. 3.6.2021 16:45
Ábyrgð á eftirliti með vottorðum færð yfir á flugfélög Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. 3.6.2021 14:26
Íslendingur á gjörgæslu eftir Covid-smit á Everest Íslensk-kúbverski fjallgöngumaðurinn Yandy Nunez Martinez, sem reyndi að klífa að toppi Everest í síðasta mánuði, er nú á gjörgæslu í Katmandú í Nepal eftir að hafa fengið blóðtappa í lungu ofan í Covid-19 smit. Eiginkona hans segir hann heppinn að vera á lífi en hann er nú á batavegi. 3.6.2021 12:33
Stærð ferðaþjónustunnar ástæða lengra bataferlis Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins. 3.6.2021 11:11
Verkalýðshreyfingin óttast gullgrafaraæði innan ferðaþjónustunnar Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar er ekki sérlega spennt fyrir því að ferðaþjónustan fari aftur á fullt. Þau eru viss um að brotum á vinnumarkaði taki aftur að fjölga mjög á næstu mánuðum. 3.6.2021 06:01
Ísland verður síðasta þróaða ríkið til að endurheimta fyrri efnahagsstyrk Ekkert þróað ríki verður jafn lengi að endurheimta fyrri efnahagsstyrk eftir heimsfaraldurinn og Ísland, samkvæmt nýrri spá OECD. Við matið er verg landsframleiðsla á mann notuð sem mælikvarði á þetta. 2.6.2021 17:44