Ólíkir ráðherrar saman á fundi NATO fyrir hönd Íslands Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins (NATO) funduðu í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Tveir ráðherrar Íslands sátu fundinn en þeir hafa nokkuð misjafna sýn á hlutverk bandalagsins og hvort Ísland eigi í raun heima þar. 14.6.2021 22:52
Aðför Samherja einsdæmi á Norðurlöndum Norrænir fjölmiðlar virðast flestir kannast við hótanir, ofbeldi og hatur í sinn garð, sem stórt vandamál. Enginn þeirra hefur þó heyrt af eins alvarlegum árásum fyrirtækis á hendur fjölmiðlafólki og þeim sem Samherji réðst í eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um Namibíumálið. 14.6.2021 22:45
Fresta afléttingum um mánuð Lokaskrefi í afléttingaráætlun Englendinga hefur verið frestað til 19. júlí. Allar samkomutakmarkanir átti að afnema þann 21. júní en vegna bakslags í faraldrinum var tekin ákvörðun um að bíða með það í heilan mánuð. 14.6.2021 20:56
Fullbólusett forsetafrú með regnbogagrímu Eliza Jean Reid forsetafrú var bólusett með bóluefni Jansen í Laugardalshöll í dag. Hún var nokkuð seinni til að fá bólusetningu en eiginmaður sinn Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, en hann var bólusettur með fyrri sprautu AstraZeneca fyrir rúmum mánuði síðan. 14.6.2021 18:17
Langtímaatvinnulausir fá eingreiðslu á næstu vikum Eingreiðsla upp á hundrað þúsund krónur til þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 14 mánuði eða lengur verður greidd út fyrir miðjan júlí. 11.6.2021 07:00
Auglýsa langmest allra flokka á Facebook Flokkur fólksins er sá íslenski stjórnmálaflokkur sem hefur eytt langmestu í auglýsingar hjá samfélagsmiðlinum Facebook síðustu níutíu daga. Samtals hafa stjórnmálaflokkarnir allir eytt um fimm milljónum króna í auglýsingar hjá Facebook á tímabilinu. 10.6.2021 16:26
Stjórnvöld koma hvergi nálægt nýrri skimunarstöð við flugvöllinn Ný einkarekin skimunarstöð fyrir Covid-19 hefur verið opnuð í Reykjanesbæ, skammt frá flugvellinum. Hún er sérstaklega hugsuð fyrir ferðamenn sem þurfa að fara í sýnatöku fyrir brottför úr landinu. Þar verða notuð skyndipróf sem gefa niðurstöðu á fimmtán mínútum. 10.6.2021 13:53
Grípa til smáauglýsinga vegna lítillar trúar á verkfærum þingmanna Viðreisn birti smáauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem óskað var eftir skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um umsvif stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi. Þingmenn flestra flokka fóru fram á að skýrslan yrði gerð og var beiðnin samþykkt í þinginu fyrir jól. 10.6.2021 11:54
Blása á orðróma um að nafngiftin hafi verið í óþökk drottningar Talsmaður hjónanna Harry og Meghan þvertekur fyrir að þau hafi skírt nýfædda dóttur sína Lilibet, eða Lísbetu, í höfuðið á Elísabetu Bretlandsdrottningu án nokkurs samráðs við hana. Drottningin var kölluð Lilibet þegar hún var lítil stúlka. 9.6.2021 23:30
Segir Rúrik hafa haldið framhjá sér Fyrirsætan Nathalia Soliani hefur sakað Rúrik Gíslason, fyrrum landsliðsmann í knattspyrnu, um að hafa haldið fram hjá sér. Hún er nú hætt að fylgja honum á samfélagsmiðlinum Instagram. 9.6.2021 21:11