Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fjöru­tíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“

Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Stöðvar 2 og af því tilefni verður sýndur afmælisþáttur í kvöld þar sem litið verður yfir farin veg og rætt við ýmsar stjörnur, gamlar og nýjar, sem settu svip sinn á stöðina. Vala Matt verður á sínum stað með græna pennan og Simmi Vill mætir með handrið sem hann braut eftirminnilega af Fokker-flugvél við tökur á Idol stjörnuleit.

Elma seld til út­landa

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Ástar­bréf til ís­lenskra költmynda

Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna.

„Ætli við endum ekki í ein­hvers ­konar frá­hvörfum“

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í kvöld rokksöngleikinn Vorið vaknar. Ungt fólk í uppreisn er þar í aðalhlutverki og fléttar verkið saman siðferði, kynlíf og rokk. Einn forsvarsmanna sýningarinnar segir það lýðheilsumál að rækta bæjar- og áhugaleikhús landsins. 

Digger grefur sína eigin gröf

Stórmyndin Digger tæklar ýmis áleitin málefni samtímans: yfirstandandi hamfarahlýnun, hlutverk listar fyrir samfélagið og andvaraleysi nútímamannsins sem deyfir sig með afþreyingu meðan hann flýtur sofandi að feigðarósi. Þó að kafað sé ofan í fjölmörg mál er of grunnt farið og tapast sagan á endanum í frásagnarföndri.

Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur

Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og tónlistarmaðurinn Vilhelm Anton Jónasson, betur þekktur sem Villi naglbítur, eignuðust dóttur þann 27. september síðastliðinn. Fyrir á parið saman soninn Hring og svo á Villi tvo syni úr fyrra sambandi.

Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð

Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum í morgun. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022 og hefur síðan þá búið hluta ársins hérlendis á heimili sínu á Ægisíðu. Carson sagði að það væri henni ráðgáta hvers vegna verðlaunin hefðu fallið henni í skaut.

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Ó­þekkti sonurinn leitaði Her­bert uppi

Popparinn Herbert Guðmundsson fékk í byrjun árs óvæntan tölvupóst frá Arnari Jóhanni Ragnarssyni sem taldi Herbert vera föður sinn. DNA-próf staðfesti faðernið og hafa feðgarnir síðan þá verið að kynnast. Arnar er áttunda barn Herberts, þar af það sjöunda sem er blóðtengt honum.

Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu

Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct.

Sjá meira