Segir jarðgangaáætlun miklu raunhæfari með kyndilborun Ný tækni með kyndilborun jarðganga gerir áform um stórfellda jarðgangagerð hérlendis miklu raunhæfari, að mati Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra, sem segir tækifærið það spennandi fyrir Íslendinga að ekki sé hægt að sitja hjá. 27.11.2023 20:10
Býður Íslendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarðgöng Evrópu Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð. 26.11.2023 20:10
Vilja Fjarðagöng fremur en Fjarðarheiðargöng Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun. 25.11.2023 09:09
Of snemmt að gera sér vonir um jól í Grindavík Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, telur að líkur á eldgosi syðst á kvikuganginum sem nú er undir Reykjanesskaga fari minnkandi. 22.11.2023 20:46
Varar við sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvar Sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvarinnar liggur upp í Heiðmörk og í kringum Rauðavatn, segir eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson. Hann hvetur til þess að áhættumat verði gert á höfuðborgarsvæðinu gagnvart jarðskorpuhreyfingum. 22.11.2023 17:07
Eldgos líkt Surtsey gæti lokað Keflavíkurflugvelli Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli. 22.11.2023 11:55
Telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé hálfstorknaður Eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og að líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól. 21.11.2023 21:11
Eldfjallafræðingurinn færi heim fyrir jól ef hann byggi í Grindavík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól. 21.11.2023 17:47
Gagnrýnir Veðurstofuna fyrir að hamla aðgengi að GPS-gögnum Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Veðurstofu Íslands fyrir að takmarka aðgengi almennings að GPS-gögnum sem geri mönnum kleift að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum. Segir hann að Veðurstofunni beri skylda til að koma þessum gögnum á framfæri svo þau séu öllum aðgengileg. 20.11.2023 10:40
Haraldur telur flekahreyfingar en ekki kviku orsaka umbrotin Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur flekahreyfingar orsök umbrotanna á Reykjanesskaga. Hann segir kviku, sem kunni að vera að gutla á um eins kílómetra dýpi í kvikuganginum, sennilega ekki nægjanlega til að valda eldgosi. 17.11.2023 09:49