Kennedy íhugar að hætta og styðja Trump í staðinn Varaforsetaefni Roberts F. Kennedy yngri, óháðs frambjóðanda til forseta Bandaríkjanna, segir að hann íhugi að draga framboð sitt til baka og lýsa yfir stuðningi við Donald Trump. Hvert hneykslismálið hefur rekið annað hjá Kennedy að undanförnu. 21.8.2024 11:35
Húsleit hjá Andrew Tate vegna brota gegn ólögráða einstaklingum Grímuklæddir lögregluþjónar gerðu húsleit á heimili breska áhrifavaldsins Andrews Tate við Búkarest og á þremur öðrum stöðum í morgun. Húsleitin var gerð eftir að nýjar ásakanir um mansal og peningaþvætti komu fram. 21.8.2024 09:52
Stærsta drónaárásin á Moskvu til þessa Rússnesk stjórnvöld segjast hafa skotið niður 45 úkraínska dróna á nokkrum stöðum í nótt, þar á meðal við höfuðborgina Moskvu. Þetta hafi verið umfangsmesta drónaárás Úkraínumanna á Moskvu frá upphafi stríðsins fyrir tveimur og hálfu ári. 21.8.2024 09:32
Óbreyttir stýrivextir í enn eitt skiptið Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir í að minnsta kosti sex vikur til viðbótar. Þeir hafa nú verið óbreyttir í 9,25 prósentum í meira en ár. Bankinn varar við því að það gæti tekið tíma að ná niður verðbólgu. 21.8.2024 08:31
Segja snekkjuna hafa sokkið á örfáum mínútum Læknir sem tók á móti eftirlifendum af lystisnekkjunni sem sökk við Sikiley í gær segir þá hafa lýst því að snekkjunni hafi hvolft og hún sokkið á örfáum mínútum. Talið er að lík sex manna sem enn er saknað séu föst inni í snekkjunni á hafsbotni. 20.8.2024 14:06
Telja apabóluna ekki „nýja COVID“ Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir að mpox-veiran, sem áður var þekkt sem apabóla, sé ekki „nýtt COVID“. Heilbrigðisyfirvöld viti hvernig eigi að hefta útbreiðslu veirunnar sem hefur skotið upp kollinum víða um lönd undanfarið. 20.8.2024 13:22
Höfðu hendur í hári barnsmorðingjans Spænska lögreglan handtók ungan mann sem er grunaður um að stinga ellefu ára gamlan dreng til bana á fótboltavelli í bænum Mocejón um helgina. Morðinginn flúði vettvang og upphófst mikil leit að honum. 20.8.2024 10:47
Staðfesta að Íranar brutust inn í tölvur framboðs Trump Bandaríska leyniþjónustan staðfestir að írönsk stjórnvöld hafi staðið á bak við gagnastuld frá forsetaframboði Donalds Trump. Hún telur Írani einnig hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi framboðs Kamölu Harris. 20.8.2024 10:07
Lögreglumenn vopnast rafbyssum í byrjun september Almenningur má eiga von á að sjá lögreglumenn vopnaða rafbyssum á næstunni en þær verða afhentar lögregluembættum á landinu í fyrstu viku september. Lögreglan segir um helming landsmanna hlynntan rafbyssuburði lögreglumanna. 20.8.2024 09:22
Stjórnarformanns Morgan Stanley saknað eftir snekkjuslysið Leit að sex manns sem er enn saknað eftir að lystisnekkja sökk rétt utan við Sikiley í gær hélt áfram í morgun. Á meðal þeirra sem er saknað er stjórnarformaður fjármálarisans Morgan Stanley International og eiginkona hans. 20.8.2024 08:56