Kjósendur styðja forseta sem ætlar að brjóta gegn stjórnarskrá Hátt í sjötíu prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun styðja Nayib Bukele, forseta El Salvador, til endurkjörs þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins kveði á um að forseti geti ekki setið fleiri en eitt kjörtímabil í einu. Bukele ætlar að bjóða sig fram engu að síður. 15.3.2023 07:01
Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið. 14.3.2023 23:32
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. 14.3.2023 21:55
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. 14.3.2023 19:58
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. 14.3.2023 18:47
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. 14.3.2023 17:33
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. 13.3.2023 23:39
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. 13.3.2023 23:14
Mögulegt að greinargerð um Lindarhvol verði aldrei birt Andstaða forseta Alþingis við að birta umtalaða greinargerð um Lindahvol ehf. gæti þýtt að hún komi aldrei fyrir augu þingmanna eða almennings þrátt fyrir vilja meirihluta þingheims, að sögn þingmanns Viðreisnar. Hann saknar þess að heyra forseta rökstyðja afstöðu sína. 13.3.2023 22:22
Skotmaðurinn handtekinn Maður sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi hefur verið handtekinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 13.3.2023 21:51