Segist hafa einfaldað frásögnina til að hlífa sér og öðrum Fjölmiðlakonan Edda Falak segir að hún hafi „einfaldað“ frásögn sína af viðhorfum sem hún kynntist í fjármálalífinu í Danmörku til að hlífa bæði sjálfri sér og fólki sem sýndi henni vanvirðingu. Hún segist hafa fengið hótanir um ofbeldi vegna starfa sinna. 11.4.2023 22:31
Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik. 11.4.2023 19:53
Samstarfsmennirnir voru skotmark árásarinnar Bankastarfsmaður sem skaut fimm manns til bana í Louisville í Kentucky á öðrum degi páska ætlaði sér að myrða samstarfsfélaga sína sérstaklega, að sögn lögreglu. Lögreglumenn felldu byssumanninn. 11.4.2023 18:57
Meintur skotmaður á Dubliner dæmdur fyrir fjölda ótengdra brota Tæplega þrítugur karlmaður sem er grunaður um að hleypa af skoti á skemmtistaðnum The Dubliner í síðasta mánuði var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölda ótengdra brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að berja mann með kylfu. 11.4.2023 17:52
Finnar boðnir velkomnir í Atlantshafsbandalagið Hvítur og blár fáni Finnlands var dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel til marks um inngöngu landsins í dag. Landamæri Rússlands og NATO tvöfaldast að lengd með inngöngu Finna. 4.4.2023 15:26
Ætla að reka þingmenn sem mótmæltu skotvopnum Repúblikanar á ríkisþingi Tennessee í Bandaríkjunum tóku fyrstu skrefin að því að reka þrjá þingmenn demókrata af þingi eftir að þeir tóku þátt í mótmælum gegn skotvopnum í þinginu í síðustu viku. Fáheyrt er að þingmönnum sé vísað af þingi með þessum hætti. 4.4.2023 15:12
Hæstiréttur vísar deilu Slayer við Secret Solstice aftur til Landsréttar Deila bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice heldur áfram að velkjast um fyrir íslenskum dómstólum eftir að Hæstiréttur vísaði hluta málsins aftur til Landsréttar í dag. Eitt félaganna sem tók við rekstri hátíðarinnar var sýknað af kröfu hljómsveitarinnar. 4.4.2023 14:02
Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir. 4.4.2023 12:20
Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn. 4.4.2023 11:49
Handtóku meinta íslamista sem vildu hefna fyrir Kóranbrennu Sænska leyniþjónustan handtók fimm menn sem hún grunar um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk. Mennirnir eru sagðir hafa tengsl við Ríki íslams. Málið er eitt nokkurra sem sænsk yfirvöld segjast rannsaka í kjölfar umdeildra Kóranbrenna dansks hægriöfgamanns. 4.4.2023 10:14