„Greinilegt að peningastefnunefnd hefur ákveðið að skjóta langt fram hjá“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum valda sér miklum vonbrigðum. Stór hluti vinnumarkaðar hefur náð kjarasamningum, en þeir snerust að miklu leyti um að ná verðbólgu og vöxtum niður. 20.3.2024 09:57
Árásir með eggvopni og hamri á Akureyri Stunguárás og árás með hamri voru framdar á Akureyri aðfaranótt síðastliðins laugardags. Áverkar þeirra sem urðu fyrir árásunum voru minni háttar og hafa þeir verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. 19.3.2024 16:03
Bóndi dæmdur í fimm ára bann frá nautgripum Bóndi hlaut í síðustu viku þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundna til tveggja ára, í Héraðsdómi Austurlands fyrir vanrækslu á dýrum. Þá er honum óheimilt að hafa nautgripi í sinni umsjá, versla með þá, eða sýsla með öðrum hætti næstu fimm ár frá uppkvaðningu dómsins. 19.3.2024 15:34
HÍ mátti reka nemanda í geðrofi sem hótaði samnemanda lífláti Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðaði í dag að Háskóla Íslands hafi verið heimilt að víkja nemanda úr skólanum. Nemandinn, sem stundaði nám við Lyfjafræðideild háskólans, krafðist þess að ákvörðun forseta Heilbrigðisvísindasviðs um að víkja honum úr skólanum yrði felld úr gildi, og yrði breytt þannig að honum yrði ekki heimiluð skólavist. Áfrýjunarnefndin féllst ekki á það. 19.3.2024 13:39
Vill samskipti Þórdísar við Bankasýsluna upp á borð Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, furðar sig á því að Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekki brugðist við orðrómi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM. 19.3.2024 12:49
Vistmaður á fangelsinu Sogni fannst látinn Vistmaður á fangelsinu Sogni í Ölfusi fannst látinn seint síðastliðið fimmtudagskvöld. Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þrátt fyrir það rannsakar lögregla málið. Þetta staðfestir Páll E. Winkel fangelsismálastjóri í samtali við fréttastofu. 19.3.2024 11:16
Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur, ásamt lögmannsstofu sinni ESJA Legal, verið dæmdur til að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 490 þúsund krónur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu síðastliðinn fimmtudag. 19.3.2024 10:46
Hjónum fjölgar hjá umboðsmanni skuldara Einstaklingum sem leita aðstoðar umboðsmanns skuldara vegna fjárhagsvanda fer fjölgandi. Umsækjendum sem eru með vinnu hefur fjölgað og eru orðnir stærsti hópur umsækjenda, þegar litið er til atvinnustöðu. Þá sækja hjón og sambúðafólk í auknum mæli um aðstoð. 19.3.2024 09:26
Ástþór eyðir milljónum en næsti frambjóðandi þúsundköllum: „Það væsir ekkert um mig fjárhagslega“ Ástþór Magnússon hefur 28 ára reynslu af því að bjóða sig fram til forseta og hann er hvergi nærri hættur. Hann er byrjaður snemma að auglýsa framboð sitt að þessu sinni og notar samfélagsmiðla til þess. 18.3.2024 08:01
Ísdrottningin safnar undirskriftum til að komast á Bessastaði Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, er byrjuð að safna meðmælum fyrir forsetaframboð í komandi kosningum. Þetta má sjá á vefnum Ísland.is, en þegar þetta er skrifað eru 25 að safna meðmælum. 17.3.2024 22:54