Myrti eiginkonu sína vegna þess að hún vildi ekki koma fram í raunveruleikaþætti Karlmaður í Flórída-ríki Bandaríkjanna hefur verið sakfelldur fyrir að myrða eiginkonu sína. Sjálfur hafði hann haldið því fram að hún hafi drukknað í baði. 19.10.2023 23:55
Segja mannfall í spítalasprengingunni talsvert minna en haldið var fram Bandarísk stjórnvöld áætla að á bilinu hundrað til þrjú hundruð manns hafi látið lífið í sprengingu sem varð á sjúkrahúsi á Gasaströndinni á þriðjudag. Þá hefur franski fjölmiðillinn Le Point eftir háttsettum evrópskum embættismanni að tala látinna sé á bilinu tíu til fimmtíu manns. 19.10.2023 21:40
Grunaður um nauðgun á gangstétt Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun sem átti sér stað um nótt árið 2021. Málið verður til umfjöllunar í Héraðsdómi Suðurlands. 19.10.2023 20:47
Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra. 19.10.2023 17:39
Ákærður fyrir að nauðga konu sem hlaut lífshættulega áverka Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. 19.10.2023 07:01
Musk íhugar að loka á X í Evrópu Auðjöfurinn Elon Musk er sagður hugleiða að loka samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, í Evrópu. Ástæðan er sögð vera sú að hann vilji forðast það að þurfa að fylgja reglugerðum Evrópusambandsins. 18.10.2023 23:23
Grunaður um að brjóta á systurdóttur og elta hana þegar hún komst undan Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni og fíkniefnalagabrot. Það er héraðssaksóknari sem höfðar málið sem verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. 18.10.2023 21:54
Atvikið í Breiðagerðisskóla sé áminning til foreldra Unnur Freyja Víðisdóttir, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, segir að atvik þar sem stíflueyðisdufti var skvett í andlit grunnskólastúlku vera áminningu til foreldra um að fylgjast með netnotkun barnanna sinna. Þau beri ábyrgð á börnunum sínum. 18.10.2023 20:12
Leita tveggja vegna hnífaárásar Lögregla hefur frá því í gær leitað tveggja manna vegna hnífaárásar sem átti sér stað á Barónsstíg í Reykjavík í gærmorgun. Þetta staðfestir Grímur Grímsson í samtali við Vísi og tekur fram að þeirra sé enn leitað. 18.10.2023 18:29
Grímur viðurkennir mistök lögreglu Yfirlögregluþjónn viðurkennir að mistök hafi orðið þegar lögregla fann ekki blóðugan hníf, sem er líklegt morðvopn í manndrápsmáli sem varð í Drangahrauni þann sautjánda júní. Hnífurinn fannst í gær af dóttur hins látna á heimili þeirra, þar sem morðið var framið. 18.10.2023 18:09