Vaktin: Fimm hundruð sagðir látnir eftir loftárás á spítala Á fimmta hundrað eru látin eftir loftárás á spítala á Gasaströndinni síðdegis í dag. 17.10.2023 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tólf ára stúlka var flutt á bráðamóttöku Landspítalans í gærkvöldi eftir að ætlandi efnum var kastað í andlit hennar af skólafélögum. Stúlkan er með brunasár á andliti og þykir mildi að ekki fór verr. Rannsóknarlögreglumaður segir börn í sífellt meira mæli vera að elta hegðun sem þau sjá á netinu. 17.10.2023 18:00
Bókaði stærstu svítuna en varð til vandræða þegar hann fékk hana ekki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í dag kölluð út vegna manns sem var verið að vísa út af hóteli. Þegar lögregla kom á vettvang ræddi hún við manninn sem kvaðst hafa bókað stærstu svítuna á hótelinu en ekki fengið hana. Honum var vísað út af lögreglu. 17.10.2023 17:33
Dularfullur maður í læknaslopp með fulla tösku af kannabis Erlendur karlmaður hefur hlotið fimmtán mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, þar af verða tólf mánuðir skilorðsbundnir, fyrir stórfellt fíkniefnabrot. 17.10.2023 09:01
Ákærður fyrir að káfa á starfskonu veitingahúss Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað á veitingastað. 17.10.2023 07:00
Árásarmannsins enn leitað Árásarmannsins, sem skaut tvo Svía til bana í Brussel fyrr í kvöld, er enn leitað. Sá sem er grunaður um verknaðinn segist sjálfur heita Abdesalem Al Guilani, en í myndbandi sem er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum játar hann á sig verknaðinn. 16.10.2023 23:56
Agnes ætlar með málið fyrir dóm Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ætlar að kæra niðurstöðu úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar til dómstóla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum. 16.10.2023 21:49
Tveir látnir eftir skotárás í Brussel Minnst tveir eru látnir eftir skotárás í Brussel, höfuðborg Belgíu. Árásin átti sér stað klukkan sjö í kvöld að staðartíma. Hæsta viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka hefur verið virkjað. 16.10.2023 19:36
„Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt?“ Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nokkur brot gegn fyrrverandi unnustu sinni á heimili hennar á Akureyri í þrjú skipti í janúar á síðasta ári. 16.10.2023 07:00
Áflog tveggja með steypuklumpi í strætóskýli á Akranesi Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast gegn hvorum öðrum við Strætóstoppustöð á Akranesi í mars í fyrra. 15.10.2023 20:00