Fréttamaður

Jón Ísak Ragnarsson

Jón Ísak er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Um­­fangs­­miklar breytingar í mennta­­kerfinu fram­undan

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að framundan séu einhverjar umfangsmestu breytingar á íslensku menntakerfi sem hafa orðið. Nýtt og betra samræmt námsmat, Matsferill, muni leysa gömlu samræmdu prófin af hólmi.

Setja 470 milljónir í við­gerð í Grinda­vík

Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefnd hefur kynnt aðgerðaáætlun vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis Grindavíkur. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum.

Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina

Sverrir Tryggvason varð fyrir því óláni í vikunni að flugmaður þyrlu ákvað að lenda á malarplani á Suðurnesjum þar sem bílnum hans var lagt. Hann segir grjótkast undan þyrlunni hafa valdið miklum skemmdum á bílnum, en fyrirtækið á bak við þyrluna neitar að borga tjónið, og segir ekki ljóst hvort skemmdirnar séu vegna þyrlunnar.

„Það má al­veg stríða pínu­lítið“

Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um góðlátlegt grín hafi verið að ræða, þegar hann sagðist vilja „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum borgarinnar“ í gær. Friðjón var þar að vísa í viðtal við Einar, sem kvaðst hafa óskað eftir alvöru úttekt á Brákarborgarmálinu.

Allt að 43 prósent lægra mat­vöru­verð án tolla

Afnám tolla á innflutt matvæli myndi lækka verð á matvöru umtalsvert, eða allt að 43 prósent. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á áhrifum tolla á verð nokkurra vinsælla vörutegunda.

Árni Þórður er látinn

Árni Þórður Sigurðarson, sonur Sigga storms, lést á heimili sínu á Völlunum í Hafnarfirði á mánudag. Hann veiktist lífshættulega árið 2021, en talið var að hann væri orðinn heill.

Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfis­lausrar Airbnb út­­leigu

Maður þarf að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 1.471.500 króna, eftir að hafa leigt út fjórar íbúðir í gegnum Airbnb án tilskilins rekstrarleyfis á árunum 2019-2021. Við ákvörðun sektar var tillit tekið til þess að hann hefði ekki gerst brotlegur gegn reglunum áður, og hefði endurnýjað leyfið eftir ábendingar sýslumanns. Sektin var lækkuð í málsmeðferð ráðuneytisins, en hún var upphaflega 4.960.000 krónur.

Sjá meira