Baldur fremstur í nýrri könnun og Halla Hrund skákar Jóni Baldur Þórhallsson mælist með mest fylgi í nýrri könnun Prósents, eða 27,2 prósent. Katrín Jakobsdóttir mælist með 23,8 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 18 prósent. 22.4.2024 06:33
Einn með exi á lofti og þrír handteknir vegna líkamsárásar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningí gærkvöldi eða nótt um einstakling með „exi á lofti“ í miðborginni. Málið var afgreitt af lögreglu, segir í yfirliti yfir verkefni næturinnar. 22.4.2024 06:14
Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. Þátturinn er í beinni útsendingu og lifandi textalýsingu. 19.4.2024 11:10
Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Pólskur maður hefur verið handtekinn í tengslum við áform rússneskra yfirvalda um að ráða Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta af dögum. Þetta segja saksóknarar í Póllandi og Úkraínu. 19.4.2024 06:32
Ísraelar gera árás á Íran Ísraelar gerðu árás á Íran í morgun samkvæmt tveimur ísraelskum og þremur írönskum embættismönnum. Árásin er sögð hafa beinst gegn herstöð nærri borginni Isfahan. 19.4.2024 06:11
Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins á morgun, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. 18.4.2024 12:06
Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, mælist með 31,4 prósent stuðning í nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem spurt var hvern fólk vildi sjá sem næsta forseta Íslands. Hún hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor sem nú mælist með 24 prósent fylgi. 18.4.2024 09:31
Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Réttarhöld hefjast í dag yfir einum af helstu leiðtogum þýska stjórnmálaflokksins Valkostir fyrir Þýskaland en hann hefur verið ákærður fyrir að nota eitt helsta slagorð nasista. 18.4.2024 07:56
Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Stjórnvöld í Katar segjast vera að endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar í deilum Ísraelsmanna og Hamas. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í margar vikur án árangurs. 18.4.2024 06:54
Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Alls voru 57 hótanir um ofbeldi gegn lögreglu skráðar í lögreglukerfið LÖKE í fyrra og 28 hótanir gegn öðrum opinberum starfsmönnum. Þá voru 121 ofbeldisbrot gegn lögreglu skráð í kerfið og 50 brot gegn öðrum opinberum starfsmönnum. 18.4.2024 06:34