Níu mánaða barn meðal látnu Fjórir eru látnir eftir að maður ók bifreið inn á göngugötu í borginni Trier í Þýskalandi í dag. Meðal látnu er níu mánaða gamalt barn. Lögregla hefur handtekið 51 árs gamlan mann en hann er sagður hafa verið undir áhrifum áfengis. 1.12.2020 19:54
Vísar ábyrgðinni á hendur Alþingi Það er vitleysa að „mylja eigi niður Hjörleifshöfðann fyrir námuvinnslu“. Þetta segir Einar Freyr Elínarson, oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, í færslu sem hann birti á Facebook fyrir stundu. 1.12.2020 19:23
Rússnesk yfirvöld handsama „Volgu-brjálæðinginn“ Rússnesk lögregluyfirvöld segjast hafa klófest mann sem myrti að minnsta kosti 26 konur á árunum 2011 og 2012. Var morðinginn þekktur undir viðurnefninu „Volgu-brjálæðingurinn“. 1.12.2020 19:02
Ekki verjandi að hverfa frá niðurskurðaraðgerðum Matvælastofnun telur líklegt að riðusmit sé til staðar í hjörðinni á Syðri-Hofdölum og því ekki verjandi að hverfa frá aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST vegna andmæla landbúnaðarnefndar Skagafjarðar. 1.12.2020 18:33
Leikarinn Elliot Page úr Juno er trans Leikarinn Ellen Page hefur greint frá því að hán sé trans og gengur nú undir nafninu Elliot. Page, sem sló í gegn í myndum á borð við Juno og Inception, sagðist í stöðufærslu á Twitter vera „heppið“ að vera komið á þann stað sem hán væri á í dag. 1.12.2020 18:14
Daði Freyr í jólarómans Evróvisjón-farinn Daði Freyr frumsýndi í dag nýtt myndband við jólalagið Every Moment Is Christmas With You. Þar er hefðbundið jólahald og yndislegar stundir með fjölskyldu og vinum í forgrunni... en með smá tvisti. 1.12.2020 17:44
Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast. 1.12.2020 17:18
Whamageddon 2020: Hvenær dettur þú út? Á miðnætti hefjast leikar. Desember gengur í garð og áskorun ársins hefst. Hversu lengi heldur þú út? 30.11.2020 22:03
Fólk hafi meginmarkmið sóttvarna í huga í desember Horfa verður til meginmarkmiða sóttvarnaaðgerða þegar ákvarðanir eru teknar um mannamót í desember, frekar en einstaka regla. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir en yfirvöld hafa hvatt fólk til að velja sér „jólavini“ til að draga úr smithættu. 30.11.2020 15:38
„Ormagryfja“ fjölmiðlanefndar Hugi Halldórsson, sem stendur fyrir hlaðvarpinu FantasyGandalf, segir fjölmiðlanefnd þurfa að rökstyðja það og skýra hvernig hún ætlar að gera greinarmun á þeim hlaðvörpum sem þurfa að skrá sig sem fjölmiðla og þeirra sem þurfa þess ekki. 30.11.2020 15:04
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti