Hart tekist á um lágmarksíbúafjölda: Minni sveitarfélögin hyggjast mynda formlegan félagsskap Hart var tekist á um lögfestingu ákvæðis um lágmarksíbúafjölda í sveitarstjórnarlögum á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag en tillaga um að hafna lögfestingu íbúalágmarks var felld með 67 atkvæðum gegn 54. 18.12.2020 22:30
Bóluefnin sem Íslendingar hafa samið um kosta 640 milljónir Belgískur ráðherra hljóp á sig í dag og birti viðkvæmar trúnaðarupplýsingar á Twitter; hvað Evrópusambandið hefur skuldbundið sig til að greiða fyrir þau bóluefni gegn Covid-19 sem það hyggst kaupa. 18.12.2020 20:40
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Ekki hægt að bjarga þeim sem létust Rannsakendur brunans á Bræðraborgarstíg telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Þeir telja að óháð því hvort um íkveikju var að ræða þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun ber vitni. 18.12.2020 14:08
Unnusta Khashoggi vill að Biden birti skýrslu CIA um morðið Hatice Cengiz, unnusta Jamal Khashoggi, hefur skorað á nýkjörinn forseta Bandaríkjanna að birta skýrslu leyniþjónustunnar (CIA) um morðið á blaðamanninum. Segir hún birtinguna munu skipta sköpum í því að leiða sannleikann í ljós. 18.12.2020 13:50
Gert að selja íbúðina: Lögregla kölluð til 27 sinnum á níu mánuðum Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp þann dóm að konu bæri að flytja úr íbúð sinni innan mánaðar og selja hana innan þriggja, vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum gagnvart öðrum íbúum í umræddu fjölbýlishúsi. 18.12.2020 11:12
Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum. 17.12.2020 12:34
Gandálfur bólusettur gegn Covid-19 Stórleikarinn Ian Mckellen hefur verið bólusettur við Covid-19 og segist alsæll með það. McKellen, sem er 81 árs, var bólusettur á Queen Mary's University Hospital í Lundúnum. 17.12.2020 09:53
Áætlaður rekstrarhalli Hafnarfjarðarbæjar 1,2 milljarðar árið 2021 Áætlaður rekstrarhalli A og B hluta Hafnarfjarðarbæjar nemur 1.2 milljörðum króna árið 2021, samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins sem samþykkt var í gær. 17.12.2020 08:47
Tilkynningum um barnaníðsefni gæti fækkað um 70% ef ný Evrópulöggjöf tekur gildi Svo kann að fara að internetfyrirtækjum verður ekki lengur heimilt að nota búnað sem ber kennsl á mögulegt barnaníðsefni. Ástæðan eru ný persónuverndarlög í Evrópu en viðræður standa yfir um undanþágur til handa fyrirtækjunum. 17.12.2020 07:53
Greiddi 12,5 milljónir fyrir að komast í návígi við Monu Lisu Ónefndur einstaklingur hefur greitt jafnvirði 12,5 milljóna króna til að fá að komast í meiri nálægð við Monu Lisu en gestum Louvre gefst vanalega kostur á. 17.12.2020 07:03